Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Side 22
22 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004
Fókus DV
Síðasta serían afFríends er nú á dagskrá Stöðvar 2, og eru þrír þættir búnir. Sú spurning sem brennur á vör-
um allra Friends-aðdáenda er hver endi með hverjum. En sú spurning sem brennur eftil vill á vörum margra
framleiðanda er hvort einhver ieikaranna eigi erindi í bíó. Ferill þeirra á hvíta tjaldinu hingað til hefur verið
mjög brösóttur. Á einhver þeirra sér viðreisnar von?
Á skjánum er staðan svona: Tveir
af vinunum, þau Chandler og Mon-
ica, eru gift, en framtíð hinna er
óráðin. Lengi vel virtist sem Ross og
Rachel myndu enda saman, enda
búin að vera af og á síðan þættirnir
hófust. í einni seríunni giftust þau
reyndar á fyllerí í Vegas, en skildu
aftur um leið og rann af þeim.
Mögulega er Britney Spears aðdá-
andi þáttanna, og virtist þetta góð
hugmynd. Nú hafa hins vegar fyrr-
um sambýlingarnir Joey og Rachel
fellt hugi saman, og því mögulegt að
hann gangi barni Ross í föðurstað.
Phoebe þurfti í lok síðustu seríu að
velja á milli tveggja kærasta, rödd
Apu í Simpsons, Hank Azaria, sem
lék vísindamann, og Mark nokkurs,
og valdi af einhverjum ástæðum
þann síðarnefnda. Ross hefur verið
stórtækur síðan þættirnir byrjuðu.
Honum tókst að eignast barn með
fyrstu eiginkonu sinni, sem leist ekki
betur á hann en svo að hún gerðist
lesbía og skyldi við hann. Hann
kvæntist enskri konu, en klúðraði
því strax í vígsluathöfninni þegar
hann sagði óvart nafn Rachel. Og
síðan hefur hann meðal annars af-
rekað að sofa hjá einum nememda
sínum. Þessa dagana er hann með
kollega sínurn úr risaeðlufræðinni,
sem er á svipuðum aldri.
En hvar verður svo af leikurunum
sjálfum þegar syrpan tekur enda?
Mun einhverjum þeirra takast að
færa sig yfir í heim bíómyndanna?
Matt LeBlanc, sem leikur Joey, virð-
ist þegar hafa gefist upp og ákveðið
að halda sig við litla skjáinn. Mun
hann halda áfram að fara með hlut-
verk Joey í nýjum þáttum um kapp-
ann, sem munu gerast í Los Angeles.
Fordæmi eru fyrir því að ein persóna
úr þáttaröð fái eigin seríu, svo sem
hinn geysivinsæli Frasier sem áður
var aukapersóna í Staupasteini. Hef-
ur Jennifer Aniston, sem leikur
Rachel, lýst því yfir að hún vilji fara
með gestahlutverk í þáttunum, en
ólfldegt er að hún verði föst persóna,
enda er hún sú vinanna sem nýtur
hvað mestrar velgengni. En hvernig
hefur vinunum gengið utan þátt-
Vinirnir Leikurunum sex hefur reitt afar
misjafnlega afá hvita tjaldinu á þeim tíu
árum sem þættirnir hafa verið i gangi. Matt
LeBlanc virðist hafa gefið upp alla von um
frama i Hollywood en mestar vonir eru
bundnar við Jennifer Aniston.
LeBlanc virðist búinn að vera að gef-
ast upp á Hollywood, eða hún á
Matt LeBlanc - Búinn að
gefast upp á Hollywood
Leikur hinn misheppnaða leikara
Joey Tribbiani, sem tekur við öllum
hlutverkum sem honum bjóðast.
Þegar maður horfir á mynd með
LeBlanc finnst manni iðulega að þar
sé Joey að leika í enn
einni vonlausri B-
myndinni. LeBlanc
hóf feril sinn í Ijós-
bláu kapalþáttaröð-
inni Red Shoe Diaries,
og hefur meira að segja
leikið í henni eftir að hann
sló í gegn í Vinum. Hann lék á móti
apa í Ed, sem er sjaldnast góð hug-
mynd og síðan þá hefur hann helst
leikið kærasta stelpna sem meiri
töggur er í. Hann lék kærasta He-
ather Graham í Lost in Space, og
svo kærasta Lucy Liu í Charlie’s Ang-
els myndunum. Hann reyndi við al-
varlegt hlutverk 1' Lookin’ Italian,
sem IMDB lýsir sem „Looking Itali-
an? Looking at an awful movie."
Hann kom fram í dragi í All the
Queens Men, þar sem hann sigrar
Seinni heimstyrjöldina fyrir hóp
klaufalegra Breta. Sama heimild lýs-
ir henni sem „An awful, awful film.“