Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Side 23
DV Fókus
MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 23
og vonbrigöi
LeBlanc hófferil sinn í
Ijósbláu kapalþátta-
röðinni Red Shoe Di-
aries, og hefur meira
að segja leikið í henni
eftir að hann sló í
gegn í Vinum. Hann
lék á móti apa í Ed,
sem er sjaldnast góð
hugmynd
honum, og hefur því líklega valið
skynsamlega með því að ákveða að
vera áfram Joey.
Jennifer Aniston - Meg Ryan
sinnar kynslóðar
Leikur hina léttsnobbuðu Rachel
Green sem selur tískuvörur. Hefur
tekist hvað best að hasla
sér völl utan vina-
hópsins, og ekki
spillti fyrir þegar hún
giftist fallegast
manni í heimi, Brad
Pitt. Hóf feril sinn í mis-
heppnuðum sjónvarpsþáttum
byggðum á kvikmyndinni um Ferris
Bueller, sem voru leikstýrðir af eng-
um öðmm en hinum uppmnalega
Hulkleikara Bill Bixby. Mögulega var
hugmyndin dauðadæmd frá upp-
hafl. Eftir að hún sló í gegn í Vinum
lék hún í ófáum rómantískum gam-
anmyndum, svo sem She’s the One,
Picture Perfect og Object of My Af-
fection. Árið 1999 lék hún í einni
bestu mynd sem einhver úr Vinun-
um hefur komist í, Office Space, þó
ekki hafi hún verið í burðarhlutverki.
Síðan þá hefur hún verið kærasta
Mark WahJberg í Rock Star, átti sam-
farir við skrýtinn afgreiðslumann í
The Good Girl, og leikið kæmstu Jim
Carrey í Bruce Almighty. Myndin var
geysivinsæl og íjallar um mann sem
verður almáttugur en dettur fátt
betra í hug að gera við valdið en að
gefa kæmstunni stærri brjóst.
Nýjasta mynd hennar er Along Came
Polly, og ekki er ólíklegt að Aniston
nái að hasla sér völl sem einhvers-
konar Meg Ryan sinnar kynslóðar.
David Schwimmer - Sein-
heppinn utan skjásins og á
honum
Leikur hinn marggifta risaeðlu-
fræðing Ross Geller. Lék smáhlut-
verk í þáttunum Bernskubrek og
NYPD Blue, og í kvikmyndinni Wolf,
áður en hann sló í gegn í Vinum.
Reyndi, eins og aðrir
vinir, að hasla sér völl
rómantískum
gamanmyndum,
svo sem The Pallbe-
arer og Kissing a
Fool, sem stendur
undir nafni. í henni leikur hann
mann sem er að fara að giftast konu
en fær besta vin sinn til að reyna við
haha til að athuga hvort hún falli fyr-
ir honum. Hún gerir það, og
Schwimmer hefur ekki fengið aðal-
hiutverk í bíómynd sfðan. í mynd-
inni 6 Days/7 Nights er hann aftur
trúlofaður lesbíu, í þetta sinn Ánne
Heche, sem stingur af með Harrison
Ford. í Apt Pupil er hann í aukahlut-
verki sem kennari nemanda í gaggó,
en besti vinur nemandans er Nasisti
og stríðsglæpamaður. Og í Love and
Sex leikur hann Vitni Jehóva.
Vinir í bíómyndum Þeim hefurgengið
ágætlega i kvikmyndum og stefna
örugglega á stærri sigra i framtiðinni.
Schwimmer virðst vera eins sein-
heppinn utan skjásins og á honum,
og er helst liklegt að hann eigi feril
fyrir sér í sjónvarpsmyndum, en
hann hefur meðal annars leikið í
Breast Men, Uprising og tókst bæri-
lega að komast úr Ross hlutverkinu
sem spilltur liðþjáifi í Band of
Brothers þáttunum.
Courteney Cox - Óhrædd í
hlutverkavali
Leikur hinn hreinlætisóða kokk
Monica Geller Bing. Kemur úr ríkri
suðurríkjaætt, og er því kannski
svipaðri Rachel Green í raunveru-
leikanum. Hóf feril sinn sem módel,
og var á forsíðu ófárra
ástarsögubóka.
Dansaði við Bruce
Springsteen í
myndbandinu við
Dancing in the
Dark og var kærasta
Michael J. Fox f Family Ties þáttun-
um. Hún hitti geimveruna He-Man í
Masters of the Universe og enn fleiri
geimverur í Cocoon: The Return
árið 1988. Ferli hennar tók að dala
eftir þetta þangað til hún lék í Ace
Ventura samá. ár og Vinir byrjuðu.
Var hún um tíma sú af Vinunum
sem best gekk í bíóheimum, enda
hafði mesta reynslu að baki. Hún lék
í hinum geysivinsælu Scream mynd-
um, og í hinni stórgóðu en van-
metnu Commandments, sem fjallar
um mann sem reynir að ná sér niðri
á Guði með að brjóta öll boðorðin.
Hún giftist meðleikara sínum úr Scr-
eam, David Arquette, en hefur
minna sést á hvíta tjaldinu síðan.
Hún leikur karlkyns geimveru sem
er gift Kenneth Branagh í Alien Love
Triangle, hittir Elvis eftirhermur f
3000 Miles from Graceland, og lék á
móti manni sínum f The Shrink is In.
Nú hafa hins vegar
fyrrum sambýlingarn-
ir Joey og Rachel fellt
hugi saman.... Hon-
um tóksfað eignast
barn með fyrstu eigin-
konu sinni, sem gerð-
ist lesbíaog skyldi við
hann. Og siðan hefur
hann afrekað að sofa
hjá einum nemanda
sínum.
Efhonum tekst að
halda sér edrú er
aldrei aðvita nema
honum takist enn að
slá i gegn.
Cox er kannski sú úr Friends geng-
inu sem hefur verið óhræddust við
að taka sér hlutverk sem stinga í stúf
við persónu hennar í þáttunum, en
það er ólíklegt að hún leiki ein-
hverntímann aftur í jafn vinsælum
myndum og Scream.
Matthew Perry - Þarf að for-
aðst dópið og offitu
Leikur hinn seinheppna en um
leið orðheppna Chandler Bing. Fær
allar bestu fínurnar í þáttunum og
því taldi maður í fyrstu að hann ætti
mesta framtíð fyrir sér
utan þeirra. Sú hef-
ur þó ekki orðið
raunin. Hann lék f
hlutverkum mjög
áþekkum Chandler
í Fools Rush In og
Three to Tango þar sem hann leikur
mann sem, líkt og Chandler, að allir
telja sé samkynhneigður. Hann lék í
Almost Heroes á móti Chris Farley,
sem gerði þó lítið fyrir leikferil
beggja. Farley dó úr hjartaáfalli í
kjölfarið og Perry hefur í kjölfarið
leikið á móti Elizabeth Hurley í Serv-
ing Sarah. Það er helst að Perry hafi
notið takmarkaðra vinsælda sem
seinheppinn tannlæknir í The
Whole Nine Yards, en framhald
hennar er væntanlegt í ár. Hann hef-
ur eytt talsverðum tíma í meðferð-
um og er þekktur fyrir að rokka upp
og niður í vigt. Ekki er þó öll von úti
fyrir Perry enn, sem þykir mikill sjar-
mör. I lann er, ásamt Ániston, yngst-
ur af Vinagenginu og er ekki nema
35 ára gamall. Ef honum tekst að
halda sér edrú og forðast að hlaupa í
spik er aldrei að vita nema honum
takist enn að slá í gegn á hvíta tjald-
inu.
Lisa Kudrow - Hefur ekki skil-
að hæfileikunum á hvíta
tjaldið
Leikur hina léttskrýtnu hippagellu
og nuddara Phoebe. Hefur af mörgum
verið talin hæfileikaríkasta gamanlei-
konán í hópnum, én hefur ekki enn
tekist að koma því til
skila á hvíta tjaldinu.
Var í ljóskumynd-
inni Romy and
Michelle’s High
School Reunion með
Miru Sorvinu, og með
aukahlutverk í Mad About You þátt-
unum sem tvíburasystir Phoebe. Lék
eiginkonu Billy Crystal í Analyze This
myndunum, sem nutu vinsælda. Hún
lék systur Diane Keaton og Meg Ryan
í Hanging Up, en virðist eiga langt í
land með að ná sömu fótfestu og þær
í bíóheimum. Síðan þá hefur ferilíinn
legið beint niður á við. Hún lék á móti
John Travolta í floppinu Lucky Num-
ber, hitti gamla Friends kærastann
Hank Azaria í Bark, og náði líklega
botninum með því að leika á móti
Damon Wayans í rapparamyndinni
Marci X. Hún henni færist mikið í fang
í litlu hlutverki sem eiginkona John
Holmes í Wondérland. Hún er elst
vinanna, kominn yfir fertugt, og ólík-
legt að henni takist að ná sömu vel-
gengni og til dæmis jafnaldra hennar
og samleikari úr Mad About You,
Helen Hunt.
valur@dv.is
smáauglýsingar
DV 500 kr.
Sími 550 5000
Fréttablaðið 995 kr.
Sími 515 7500
FRÉTTABLAÐIÐ
151.640 lesendur
# -