Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Blaðsíða 19
DV Sport MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 19 ÍBV áfram eftir jafntefli Kvennalið ÍBV tryggði sér sæti í átta lið úrslitum í Áskorendakeppni Evrópu í gær þegar liðið gerði jafn- tefli, 27-27, gegn franska liðinu Le Havre í seinni leik liðanna í sextán liða úr- slitum í Vestmannaeyjum. ÍBV vann fyrri leikinn í Frakklandi með átta marka mun, 30-22, og komst því örugglega áfram. Átta marka forystan sem ÍBV hafði úr fyrri leiknum var aldrei í hættu og náði franska liðið mest tveggja marka forystu. Alla Gokor- ian skoraði átta mörk fyrir ÍBV, Birgit Engl skoraði sex mörk, Guðbjörg Guð- mannsdóttir og Sylvia Strass skoruðu ijögur fnörk hvor, Þórsteina Sigur- björnsdóttir og Anna Yak- ova skoruðu tvö mörk hvor og Anja Nielsen eitt. Keflavík deild- armeistari Keflavík tryggði sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna í körfuknatt- leik á laugardaginn þegar liðið sigraði KR, 73-58, í Keflavík. ÍS, sem var eina liðið sem gat hugsanlega náð Keflavík, tapaði fyrir Grindavík, 73-68, og þar með var titillinn í höíh. Keflavík, ÍS og KR eru örugg í úrslitakeppnina en Grindavík og Njarðvík berjast um fjórða og síðasta sætið. Grindavík hefur komið sér í góða stöðu með sigrum gegn Njarðvfk og ÍS í tveimur síðustu leikjum og þarf aðeins einn sigur í síðustu tveimur leikjunum til að ná 4. sætinu. 400 þúsund króna hagn- aður hjá Fram Rekstrarfélag Fram, sem rekur meistaraflokk og 2. flokk karla í knattspyrnu, skilaði rúmum 400 þúsund krónum í hagnað á síðasta ári. Þetta er þriðja árið í röð sem hagnaður er á rekstri félagsins en Brynjar Jó- hannesson, framkvæmda- stjóri þess, sagði í samtali við DV Sport í gær að hann hefði vonast eftir meiri hagnaði. Brasilíski landsliðsmaöurinn Roberto Carlos hefur engan áhuga á að yfirgefa herbúðir Real Madrid eftir komu Davids Beckham til liðsins. fek Beckham fram ylir Chelsaa Brasilíski landsliðsmaðurinn Roberto Carlos hefur ítrekað að hann vilji bara spila með Real Madrid og segir að áhugi Chelsea á honum standist ekki samanburð við vinskap þeirra Davids Beck- ham. Roberto Carlos hefur þráfaldlega verið orðaður við rússnesku byltinguna á Stamford Bridge enda einn af betri knattspyrnumönnum heims. Það virðist þó ekki ætla að verða að veruleika því að Carlos segir að koma Davids Beckham frá Manchester United til Santiago Bernabeu síðasta sumar hafl breytt lífi hans hjá Real Madrid lil hins betra. Vinskapurinn mikilvægari „Peningar skipta ekki lengur öllu máli fyrir mig,“ sagði Roberto Carlos við enska sunnudagsblaðið News of the World. „Ég veit um tilboð Chelsea en það er ekkert sem fær mig til að yfirgefa herbúðir Real Madrid. „Mér finnst frábært að spila með David Beckham og við höfum náð vel saman á vellinum, jafnvel þótt hann hafi ekki verið lengi hjá félaginu. Hann hefur fært liðinu mikið og reynst mér frábærlega. Við gerum grín hvor að öðrum í búningskiefanum og þrátt fyrir að hann sé alþjóðleg stórstjarna hefur honum tekist að halda sér tiltölulega eðlilegum. Við erum perluvinir og þennan vinskap mun ég ekki brjóta upp fyrir að spila með Chelsea," sagði Roberto Carlos í gær. oskar@dv.is „Við gerum grín hvor að öðrum í búnings- klefanum og þrátt fyrir að hann sé stórstjarna hefur honum tekist að halda sér tiltölulega eðlilegum." Góðir vinir David Beckham og Roberto Carlos eru orðnirperluvinir eftir að Beckham gekk til liðs við Real Madrid. Reuters RE/MAX-ÚRVALSDEILD IR-Valur 27-28 Mörk ÍR: Fannar Þorbjörnsson 6, Bjarni Friztson 6/4, Flannes Jón Jónsson 5, Ingimundur Ingimund- arson 5, Einar Flólmgeirsson 4, Sturla Ásgeirsson 1. Varin skot:Ólafur Helgi Gíslason 15/1. MörkVals: Markús Máni Michaels- son 9/2, Baldvin Þorsteinsson 5/4, Heimir Örn Árnason 5, Hjalti Gylfason 4, Sigurður Eggertsson 2, Bjarki Sigurðsson 2, Atli Rúnar Steinþórsson 1. Varin skot: Pálmar Pétursson 4, Örvar Rúdólfsson 3. KA-HK 34-29 Mörk KA: Arnór Atlason 13/1, Andreus Stelmokas 10/4, Bjartur Máni Sigurðsson 3, Einar Logi Frið- jónsson 2, Sævar Árnason 2, Þor- valdur Þorvaldsson 1, Jónatan Magnússon 1, Árni Björn Þórarins- son 1. Varin stof:Hafþór Einarsson 6, Hans Hreinsson 3. Mörk HK: Andrius Rackauskas 8/3, Samúel Árnason 5, Haukur Sigurvinsson 5, Alexander Arnarson 4, Ólafur Víðir Ólafsson 3, Atli Þór Samúelsson 2, Brynjar Valsteinsson 2. Varin s/rof:Hörður Flóki Ólafsson 23/1. Stjarnan-Grótta/KR 16-27 Mörk Stjörnunnar: Björn Friðriksson 6/5, David Kekelia 3, ArnarTheó- dórsson 2, Arnar Jón Agnarsson 2, GuðmundurGuðmundsson 1,Jó- hannes Jóhannesson 1, Sigtryggur Kolbeinsson 1. Varin skot: Jacek Kowal 20. Mörk Gróttu/KR: Páll Þórólfsson 5/1, Sverrir Pálmason 5, Konráð Olavsson 5, Magnús Agnar Magnússon 4, Daði Hafþórsson 4, Kristinn Björgúlfsson 2, Brynjar Hreinsson 1, Þorleifur Björnsson 1. Varin skot: HlynurMorthens 22/1, Gísli Guðmundsson 2. Fram-Haukar 28-33 Mörk Fram: Valdimar Þórsson 6/2, Hjálmar Vilhjálmsson 4, Stefán Baldvin Stefánsson 3, Guðjón Drengsson 3, Héðinn Gilsson 3, Arnar Þór Sæþórsson 2/2, Haf- steinn Ingason 2, Martin Larsen 2, Jón Björgvin Pétursson 2/2, Þorri Björn Gunnarsson 1. Varin skot: Egedijus Petkevicius 9. Mörk Hauka: Ásgeir Örn Hall- grlmsson 6, Þorkell Magnússon 6, Robertas Pauzoulis 5, Þórir Ólafs- son 4, Andri Stefan 4, Halldór Ing- ólfsson 3, Vignir Svavarsson 3, Alieksandrs Shamkuts 1, Jón Karl Björnsson 1/1. Varin skot: Birkir fvar Guðmunds- son 23. Staðan: Valur 5 3 1 1 135:128 15 Haukar 5 4 1 0 159:128 14 KA 5 3 0 2 156:143 13 ÍR 5 2 0 3 140:139 12 Stjarnan 5 2 0 3 126:149 10 Grótta/KR 5 3 0 2 132:132 9 Fram 5 1 0 4 140:148 8 HK 5 1 0 4 131:152 7 Ekki fleiri landsleikir Alan Shearer ætlar ekki að spila fleiri landsleiki þrátt fyrir gylliboð Svens Görans Eriksson. Reuters Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, ætlar ekki að taka landsliðsskóna af hillunni. Afþakkaði landsliðssæti Alan Shearer, fyrirliði New- castle, hefur viðurkennt að hann hafi afþakkað sæti í landsliðshópi Englendinga fyrir nokkru þegar Sven Göran Eriksson, landsliðs- þjálfari Englands, ræddi við hann um hugsanlega endurkomu hans. Shearer hætti að spila með enska landsliðinu eftir Evrópukeppnina í Hollandi og Belgíu árið 2000 en þá hafði hann skorað 30 mörk í 63 leikjum. Shearer sagði í viðtali við stuðn- ingsmannatímarit Newcastle að hann hefði verið beðinn að snúa til baka fyrir hálfu ári en hann hefði afþakkað það. „Ég hugsaði mig vel og lengi um en sá síðan að ástæðurnar fyrir því að ég hætti voru fullgildar ennþá," sagði Shearer. Shearer skoraði 25 mörk á síðasta tímabili og skoraði sitt átjánda mark á þessu tímabili gegn Middlesbrough á laugardaginn, það fyrsta í sjö leikjum. Hann segist vera harðákveðinn í því að leggja skóna alfarið á hilluna eftir næsta tímabil. „Ég fæ ekki séð að nokkuð geti breytt því og það skiptir engu þótt ég skori 25 mörk á næsta tímabili." Shearer sagðist heldur ekki sjá eftir því að hafa farið til Newcastle frá Blackburn árið 1996 í stað þess að ganga til liðs við Manchester United. „Fólk þarf ekki að vorkenna mér því að ég hef verið mjög hamingjusamur hér. Mig dreymdi alltaf um að spila með Newcasde og það er mikilvægara en titlar." Enginn Alan Shearer Sven Göran Eriksson hefði gjarnan viljað nota hæfileika Alan Shearers I enska landsliðinu. Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.