Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Blaðsíða 25
DV Fókus
MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 25
Fyrir nokkrum dögum kom út fyrsta plata hljómsveitarinnar Probot, sem er í senn
eins manns hljómsveit duglegasta rokktrommarans í bransanum í dag og metal-
súpergrúppa dauðans. Trausti Júlíusson tók púlsinn á Probot.
Hljómsveitin Probot hefur frekar óvenjulega
mannaskipan. Gítarleikarinn heitir Dave Grohl,
trommleikarinn heitir líka Dave Grohl og það
sama má segja um bassaleikarinn og aðallaga-
smiðinn. Söngvararnir heita hins vegar Cronos
(úr Venom), Max Cavalera (Soulfly/Sepultura),
Lemmy (Motörhead), Mike Dean (Corrosion Of
Conformmity), Kurt Brecht (D.R.I.), Lee Dorrian
(Napalm Death/Cathedral), Wino (The Obsess-
ed), Tom G. Warrior (Celtic Frost), Snake (Voi-
vod), Eric Wagner (Trouble) og King Diamond.
Probot-platan kom út fyrir nokkrum dögum og
fær fínar viðtökur hjá þungarokkshausum um all-
an heim.
Gamall metal-haus
Probot-verkefnið varð til fyrir þremur og
hálfu ári. Dave Grohl leit
á það sem leið til þess
að hvíla sig á aðalstarf-
inu, hinni ofurvinsælu
hljómsveit Foo
Fighters. Dave er mik-
ill þungarokksaðdá-
andi. Snemma á ní-
unda áratugnum
hlustaði hann mikið
á hljómsveitir eins og
Iron Maiden, Motör-
head og Metallica,
sem þá voru lítið
þekktar. Hann var sérstaklega
hrifinn af kraftmiklum þungarokks-gítarriffum
og í upphafi var Proþot bara nafn á því gælu-
verkefni hans að safna saman og taka upp fúll't
af metal-riffum. Einhvers staðar á leiðinni datt
honum í hug að fá nokkra af sínum uppáhalds
þungarokkssöngvurum á árunum 1983-1990
til þess að syngja yfir eitthvað af þessum riff-
um. Honum til mikillar ánægju tóku allir sem
honum datt í hug að spyrja vel í hugmyndina
og á endanum var stefnan tekin á að gera
plötu.
OaveGrohl Fannst
Foo Fighters vera
orðnir ansi poppað-
ir og ákvað að fínna
annan vettvang fyr-
ir metal-þörfína.
Lemmy og 70 rokk-
stelpur
Dave Grohl semur öll lög-
in á Probot-plötunni og spilar á öll hljóðfærin,
nema hvað Lemmy og Cronos spila á bassa í sín-
um lögum, Wino spilar á gítar í einu lagi og Kim
Thayil, fyrrum Soundgarden-maður, spilar í
tveimur. Fyrsta smáskífan af plötunni er lagið
Shake Your Blood sem Lemmy syngur. Lag sem
minnir mikið á Motörhead-slagarann Ace Of
Spades. Myndbandið var ekki leiðinlegt í fram-
leiðslu, en í því sjást Lemmy, Wino og Dave
Grohl spila lagið á sviði innan um 70 léttklæddar
rokkstelpur frá vefsíðunni SuicideGirIs.com.
„Þetta er Lemmy," sagði Dave, „þannig að það
verða að vera dansandi stelpur í myndbandinu."
Tekst ekki að slíta sig frá settinu
Dave Grohl hefur gert töluvert að því að spila á
trommur undanfarið. Og vægast sagt með frá-
bærum árangri. Hann spilaði jú á snilldarverki
Queens Of The Stone Age, Songs For The Deaf,
fyrir tveimur árum og á Killing Joke-plötunni sem
kom út í fyrra. „Stelpurnar kunna að meta
trommara," sagði hann í nýlegu viðtali. Ætli það
sé ástæðan?
Bic Runga
Bic Runga
Neil Young, David
Bowie og Billy Holi-
day eru á meðal
áhrifavalda.
Nýsjálenska
söngkonan Bic
Runga er að gera
Gang ofFour A BriefHistory Of The 20th Century Q A*.K#K THtTAtm.
EMI/Skífan
Gang Of Four var ein af
mikilvægustu hljómsveitun-
um í post-pönk hreyflng-
Plötudómar
unni í Bretlandi. Hún var
stofnuð í Leeds-háskóla árið
1977 og starfaði til 1983.
Þessi safnplata var upphaf-
lega gefln út af Warner árið
1991, en er nú endurútgefin
af EMI og það er erfitt að
ímynda sér betri tímasetn-
ingu. Gang Of Four bland-
aði saman fönki og pönki á
svipaðan hátt og The Rapt-
ure og Radio 4, gerði það
bara rúmum tuttugu árum
fyrr. Annað sem einkenndi
Gang Of Four voru pólitískir
textar sem voru alltaf ein-
faldir og hnitmiðaðir. Lög
eins og At Home He’s A
Tourist, Damaged Goods,
Not Great Men, To Hell
With Poverfy og I Love A
Man In Uniform eru snilld
og hljóma jafn fersk í dag og
fyrir 20 árum...
Trausti Júlíusson
David Banner
Mississippi The
Album
★ ★★
Universal/Skifan
David Banner var ein
helsta uppgötvunin í rapp-
inu í fyrra. Hann var annar
af dúóinu Crooked Lettaz
sem gaf út plötu á tíunda
áratugnum, en var búinn
að vera að harka í neðan-
jarðarkreðsum í nokkur ár
þegar hann sló í gegn með
laginu Like A Pimp. I kjöl-
farið kom þessi plata, Miss-
issippi The Album. Þetta er
ekta Suðurríkja hip-hop,
taktarnir eru skítugir og oft
dansvænir og rappstíllinn
frekar hrár og groddalegur.
Það er stundum eins og
David hræki orðunum út úr
sér. Það eru nokkur mögn-
uð stykki hér, t.d. What It
Do, Might Getcha, Like A
Pimp og Mississippi. David
Banner hefur alveg tekist
ætlunarverkið sem var að
koma Mississippi á kortið í
rappheiminum.
Trausti Júlíusson
2. (-) TV On The Radio -
Poppy
3. (!) Scissor Sisters -
Comfortably Numb
4. (5) Probot-
Shake Your Blood
5. (3) Britney Spears -
Toxic
8. (6) Joss Stone -
Fell In Love With A Boy
7. (4) Basement Jaxx -
Good Luck
8. (7) Kelis -
Milkshake
9. (-) Bubba Sparxxx -
Deliverance
1 0.W Junior Senior -
Shake Your Coconuts
(DFA Remix)