Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Blaðsíða 31
DV Síðasten ekki síst MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 3 7 Matarhátíðinni Food and Fun var slúttað um helgina með 450 manna gala-veislu á Nordica hótelinu, og komust færri að en vildu. Einn helsti sælkerasérfræðingur heims telur að besta leiðin til landkynningar sé að halda á lofti sérkennum í matarmenningu íslendinga. Td þess hafi íslendingar alla burði enda allt hráefni hér á landi afburðagott. Þrátt fyrir að Food and Fun mat- reiðslukeppnin hafi einungis verið haldin í þrjú ár er hiín komin á kort- ið hjá alþjóðlegum meistarakokk- um sem sækjast eftir því að taka þátt. Keppnin hefiir nú þegar aukið ferðamannastrauminn á annars dauðum tíma. „Þetta er ný keppni og ótrúlega vel lukkuð miðað við að þetta er einung- is í þriðja sinn sem hún er haldin," segir David Rosengarten, formaður dómneíndar Food and íún og einn helsti sælkeri heims. Hann segir gæði íslenskrar matarframleiðslu framúr- skarandi. Rosengarten hefur stýrt hundruðum sjónvarpsþátta um mat og skrifað matreiðslubækur og ógrynni greina í þekktustu matar- og ferðatímarit heimsins. Rosengarten telur að sælkeraáherslan, meðal ann- ars með keppni eins og Food and fun, sé besta leiðin til að auka ferða- mannastrauminn. „Þetta er aðeins David Rosengarten og Siggi Hall David telur oð íslendingar eigi mikta möguleika á því að verða viðurkennd sæikeraþjóð á heimsmæiikvarða. spurning um tíma og ef rétt er haldið á spöðunum er þessi keppni stór- kostlegt tækifæri til að halda á lofti ís- lenskri matarmenningu. Það verður að stimpla Island betur inn og ein besta leiðin til landkynningar er að koma matarmenningu landsins á kortið." Hann er hrifinn af íslenska hráefninu: „Islenska lambakjötið fell- ur vel að bragðlaukum austurstrand- armanna í Bandaríkjunum en sjálfúr kýs ég þó veturgamalt kjöt með ríkari áferð og sterkara bragði. Því kraft- meira bragð því ánægjulegri er veisla bragðlaukanna", segir Rosengarten, sem hefur að sjálfsögðu bragðað á hákarlinum og brennivíninu þótt hann kjósi þá rammíslensku rétti ekki sem hluta daglegrar neyslu. Sjávaraf- urðirnar eru hans uppáhald og ein besta matarupplifun Rosengartens á Islandi var humarveisla á Stokkseyri. íslenski humarinn er, að hans mati, eitthvert mesta hnossgæti sem hér er hægt að fá - og þótt víðar væri leitað. Sælkerinn Rosengarten telur að ís- lendingar verði helst að varast að lenda í meðalmennskunni: „Ef ís- lendingar ætla að koma sér á kortið sem sælkeraþjóð verða þeir að halda á lofti sínum sérkennum." Sigurvegarinn John Besh frá New Orleans sigraði í keppninni og hlaut titilinn „Food and fun kokkur ársins 2004“. Allir meistarakokk- arnir tólf, sem komu til landsins með fylgdarliði, elduðu úr íslensku hráefni. John Besh eldaði meistaralega sigurrétti sína úr humri, steinbít og reyktum laxi í kavíar og skyrsósu. Islenska skyrið vakti mikla athygli meðal erlendu kokkanna sem voru á því, allir sem einn, að hér væri á ferðinni þjóðargersemi. Því miður er erfitt að gera skyrið að útflutningsvöru þar sem það er víðast ílokkað sem ostur, vegna vinnsluaðferðarinnar, og lendir því á múrum himinhárra verndartolla og inn- flutningskvóta. Formaður dómnefndar og framkvæmdanefnd Food and fun Rasengarten, Siggi Hall, Addý Ólafsdóttir, Magnús Stephensen og Baldvin Jónsson. Matur og menníng „Þessi hugmynd vaknaði f lok árs 2000 og var í mótun fyrstu mánuði ársins 2001,“ segir Magnús Stephensen sem átti hugmyndina að matarhá- tíðinni. Hann starfaði að markaðsmálum hjá lcelandair en réð sig nýverið til Atlanta. Food and fun sprettur af annarri markaðshugmynd Magnúsar, Iceland Airwaves tónlistarmessunni. „Við tókum það dærni og skiptum mat út fyrir músik." Hann er afar ánægður með árangurinn. „Hingað koma nú 50-60 erlendir blaðamenn sem skrifa um ísland og íslenskan mat. Með því að fá fræga erlenda kokka til að elda úr íslensku hráefni er verið að setja íslendinga á kortið sem matarþjóð. Þetta selur íslenskt hrá- efni erlendis, kjöt og fisk, auk þess sem ferðamannastraumurinn eykst.“ Febrúar hefur til þessa verið slakur fyrir ferðaþjónustuna en einungis í tengslum við keppnina komu hingað 400 manns, óbeinu áhrifin eru mikil og segir Magnús að fólk sé nú farið í auknum mæli að tengja ísland við góðan mat sem unninn er úr gæðahráefni. „Þegar menn eins og Rosen- garten segir að þessi keppni sé eitt sérstakasta matar- og skemmtifestival í heiminum, þá erum við að gera eitthvað rétt," segir Magnús

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.