Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Side 18
0 18 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 Sport 0V Guðmundurtil ^ Keflavíkur? Sóknarmaðurinn Guð- mundur Steinarsson er að öllum líkindum á leið til Keflavíkur og leikur með nýliðunum í Landsbanka- deildinni á komandi tíma- bili. Rúnar Arnarson, for- maður knattspyrnudeildar Keflavíkur, staðfesti í sam- tali við DV Sport í gær að Keflvíkingar hefðu rætt nokkrum sinnum við Guð- mund og hann væri hæfi- lega bjartsýnn á að sam- komulag næðist. Guð- mundur, sem er uppalinn í Keflavík, lék með Frömur- A um á síðasta tímabili en skoraði ekki eitt einasta mark með liðinu í ellefu leikjum. Hann hefur spilað 93 leiki í efstu deild og skorað 28 mörk í þeim. Einar Logi til Friesenheim Stórskyttan Einar Logi Friðjónsson úr KA hefur gengið frá samningi við þýska 2. deildar liðið Fries- enheim en fyrir hjá félaginu er félagi hans úr KA, Hall- dór Sigfússon. Einar Logi skrifaði undir tveggja ára samning við þýska liðið og mun samn- ingurinn taka gildi 1. júlí næstkomandi. Þjálfari Friesenheim er Rússinn Al- exander Rymanov. Einar Logi sagði í samtali við vef- svæði KA að hann væri mjög ánægður með þennan áfanga en ætlaði að vinna titla með KA áður en hann færi. Stórsigur Keflvíkinga Keflavík vann stórsigur á KFÍ, 124-89, íleikliðanna í Intersportdeild karla í körfuknattleik á laugar- dagskvöld. Það var nokkurt jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik en í þeim síð- ari keyrðu Keflvíkingar ís- firðingana í kaf. Derrick Allen (sjá mynd) skoraði 27 stig fyrir Keflavík og Fannar Ólafsson 22 og tók 10 fráköst en Troy Wiley var stigahæstur hjá KFI með 30 stig og tók 17 fráköst. Framherjinn Carlton Cole, sem var sakaður um að hafa nauðgað ungri stúlku lætur ekki segjast og er nú viðriðinn annan kynlífsskandal. > Carlton Cole, framherji Charl- ton, var viðriðinn kynlffshneykslið sem skók England fyrir fimm mánuðum og í framhaldi af því var hann kærður fyrir nauðgun. Hann virðist þó lftið hafa lært af fyrri reynslu. Hann var ekki sakfelldur fyrir nauðgunarákæruna og -ef eitthvað er að marka frásögn átján ára enskrar stúlku, Sharon Miller að nafni, er hann enn við sama heygarðshornið. Miller þessi hitti Cole og Anthony Gardner, varnarmann Tottenham, úti á lffínu fyrir tíu dögum og upplifði miður huggulega við- kynningu af enskum atvinnuknatt- spyrnumönnum. Miller sagðist ekki hafa haft hugmynd um hverjir þeir voru þegar hún hitti þá og eftir smástund á skemmtistað hefði hún þekkst boð um að fara heim til Gardners í eftirpartí. Hún steig upp í bílinn hjá Cole og þurfti að hlusta á hann monta sig af því hvernig hann hefði sloppið frá atvikinu fyrir fimm mánuðum. Cole keyrði svo ekki til Gardners heldur hélt heim til sfn þar sem Miller upplifði martröð. Cole og tveir félagar hans skipuðu henni að klæða sig úr nærbuxunum og eftir það fóru þeir allir upp á hana, hvort sem henni líkaði betur eða verr. Þótt ótrúlegt megi virðast var martröð Miller þó rétt að byrja því að hún ákvað að taka leigubíl heim til Gardners til að hitta vinkonu sína. Þegar þanga kom beið Gardner ásamt fimm félögum sínum og komu þeir allir fram vilja sínum við Miller sem sagðist ekíd hafa getað barist á móti. „Þeir voru eins og villidýr og komu fram við mig eins og hvert annað kjötflikki, sagði Miller sem sagðist þó geta kennt sjálfri sér um. oskar@dv.is Laerir ekki Cartton Cole, sem sést hér i leik með Charlton í vetur, virðist ekki hafa ieert affyrri reynslu efmarka má sögurnar sem berast frá Englandi. • Reuters Sænska meistaramótið í frjálsum Vala náði ekki lágmarkinu Vala Flosadóttir, stangar- stökkskona úr Breiðabliki, bar sigur úr býtum í stangarstökks- keppninni á sænska meistara- mótinu í frjálsum íþróttum í gær. Vala stökk 4,18 metra en átti þrjár tilraunir við 4,35 metra, sem er lágmarkið fýrir heimsmeistaramótið innanhúss í Búdapest í byrjun mars. Henni tókst ekki að komast yfir og verður því að bíða enn um sinn, en frestur til að ná lágmarkinu rennur út 29. febrúar. Sunna Gestsdóttir hafnaði í þriðja sæti í 200 metra hlaupi á tímanum 24,56 sekúndum, Björn Margeirsson varð sjötti í 800 metra hlaupi á 1:53,27 mínútum, sem er tæpri sekúndu frá íslandg- metinu sem hann setti í undanrásum á laugardaginn. Meistaradeild Evrópu í handknattleik Óiafur skoraði fimm mörk Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Ciudad Real sem vann þriggja marka sigur, 28-25, á ungverska liðinu Fotex Veszprem í Ungvetjalandi á laugardaginn í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum meistaradeildar Evrópu. Ciudad Real vann fyrri leikinn á Spáni með níu mörkum, 33-24, og komst því örugglega í undan- úrslitin. Þýskalandsmeistarar Lemgo duttu óvænt út fyrir slóvenska liðinu Celje eftir að hafa gert jafn- tefli, 28-28, á heimavelli á laugar- daginn. Celje vann fyrri leikinn f Slóveníu með sjö marka mun, 32-25, og komst því auðveldlega áfram. Leikir Magdeburg og Pick Szeged annars vegar og Flensburg og Zagreb hins vegar voru ekki byrjaðir þegar DV fór í prentun. Breytingar á starfsmannahaldi knatt- spyrnudeildar Keflavíkur Jón Pétur rekinn DV Sport hefur heimildir fyrir því að ástæða uppsagnarinnar sé ósætti á milli Jóns Péturs og nokkurra stjórnarmanna í knattspyrnudeild- inni og allt hafi farið í bál og brand á aðalfundi deildarinnar 4. febrúar síðastliðinn. Einn heimildarmaður blaðsins orðaði það svo að Jón Pétur hefði hætt sér inn á svæði sem var ekki vel séð að hann væri á. Þessi sami heimildarmaður sagði einnig að ánægja hefði verið með störf Jóns Péturs sem framkvæmdastjóra innan félagsins og því væri þessi ákvörðun óskiljanleg. Jón Pétur hafði veg og vanda af því að koma Iceland Express- mótinu á koppinn en það mót, þar sem sænska liðið Örgryte var meðal þátttökuliða, heppnaðist mjög vel. oskar@dv.is Jón Pétur rekinn Jóni Pétri Róbertssyni, framkvæmdastjóri knattspyrnudeiidar Keflavikur, var sagt upp störfum i síðustu viku. Ástæða uppsagnarinnar er óljós. DV-mynd Pjetur Forráðamenn knattspyrnudeild- ar Keflavíkur ákváðu seint í síðustu viku að' reka framkvæmdastjóra deildarinnar, Jón Pétur Róbertsson, en hann þjálfaði einnig 2. flokk félagsins. Jón Pétur staðfesti í samtali við DV Sport í gær að honum hefði verið sagt upp störfum en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið þar sem hann væri að ganga frá starfs- lokasamningi við deildina sem hann vonaðist til að kláraðist á næstu dögum. Rúnar Arnarson, formaður knatt- spyrnudeildar Keflavíkur, sagði að að það væri rétt að Jón Pétur hefði látið að störfum. „Annars vil ég ekki láta hafa neitt eftir mér um þetta mál. Það verður klárað í mesta bróð- erni á næstu dögum," sagði Rúnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.