Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Síða 21
DV Sport
MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 21
Arsenal er komið með sjö stiga forystu í ensku deildinni þegar tólf umferðir eru
eftir af tímabilinu. Liðið er jafnframt taplaust. Man. Utd. fór illa að ráði sínu gegn
Leeds á heimavelli og Eiður Smári var í sviðsljósinu gegn Arsenal.
Bein leiö... gatan
liggur greiö
„Þetta lið geturgert ótrúlega
hluti. Það hefur hæfileikana,
löngunina og reynsluna til
þess að fara alla leið og ég
myndi ekki afskrífa strákana
mína sírax."
Claus Jensen
Claus Jensen landaði þremur
mikilvægum stigum íyrir Charl-
ton með glæsilegu marki í
uppbótartíma gegn Blackburn.
Þá hafði hann aðeins verið inni
á vellinum í 12 mínútur. Charl-
ton hefur átt erfitt uppdráttar
frá því að Scott Parker var
seldur frá félaginu og því verða
leikmenn á borð við Jensen að
taka á sig aukna ábyrgð ef þeir
vilja berjast áfram í efri hlut-
anum. Þessi sigur ætti að gefa
Jensen og félögum hans byr
undir báða vængi.
Enski boltinn um helgina var með fjörlegasta móti, mikið
skorað í flestum leikjum og dramatíkin allsráðandi á mörgum
stöðum. Arsenal er komið í vænlega stöðu í deildinni eftir leiki
helgarinnar þar sem liðið vann Chelsea í annað sinn á einni
viku og Skyttunum leiddust síðan ekki fréttirnar sem komu frá
Old Trafford þar sem Man. Utd. gerði jafntefli við neðsta lið
deildarinnar, Leeds. Sjö stiga forysta því staðreynd og má
mikið vera ef Arsenal glutrar þeirri forystu niður því
spilamennskan er á þann veg að liðið er líklegt til þess að fara
taplaust í gegnum mótið. Eiður Smári kom mikið við sögu í
leiknum gegn Arsenal þar sem hann skoraði eftir 28 sekúndur
og var síðan rekinn af velli eftir klukkutíma leik.
Claudio Ranieri, stjóri Chelsea,
játaði sig sigraðan í kapphlaupinu
um enska meistaratitilinn eftir að
hans menn höfðu tapað á
heimavelli. Þeir eru núna 9 stigum á
eftir Arsenal.
„Níu stig eru einfaldlega of mikill
munur til þess að vinna upp. Við
viljum vera með í kapphlaupinu en
þetta er búið hjá okkur. Kannski ekki
fyrir Manchester United en við
erum að byggja upp nýtt lið. Við
munum þrátt fyrir það berjast allt til
enda tímabilsins," sagði Ranieri, en
Chelsea hefur ekki tekist að sigra
Arsenal í 16 tilraunum.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
var með báða fætur á jörðinni eftir
leikinn og segist ekki tilbúinn til
þess að opna kampavínið alveg
strax.
„Strákarnir eru komnir í stöðu
sem þá dreymdi ekki um að þeir
gætu komist í fjTÍr leikinn. Tímabilið
er samt ekki búið. Þrjú stig geta
horfið á skömmum tíma,“ sagði
Wertger en hans menn klúðruðu
stórri forystu í fyrra. Wenger vill ekki
líkja þessu við tímabilið í fyrra þar
sem þeir hefðu aldrei náð eins góðri
stöðu.
Smith skaðaði United
Alan Smith skaðaði Man. Utd illa
á laugardag. Hann skoraði
jöfnunarmark leiksins og slátraði
síðan Mikael Silvestre, sem fyrir
vikið spilar vart næstu vikurnar. Við
því má United illa. Þrátt fyrir áföllin
var enginn uppgjafartónn í Sir Alex
Ferguson, stjóra Man. Utd., eftir
leikinn.
„Sjö stig eru mikið en ekki
óvinnanlegt. Við verðum aftur á
móti að gera mun betur en við
gerðum í dag ef við ætlum að eiga
möguleika á titlinum. Við erum
með þessari frammistöðu búnir að
koma okkur í vonda stöðu. Því er
ekki hægt að neita. En þetta lið
getur gert ótrúlega hluti. Það hefur
hæfileikana, löngunina og
reynsluna til þess að fara alla leið
og ég myndi ekki afskrifa strákana
mína strax.“
Shearer til bjargar
Alan Shearer kom Newcastle til
bjargar enn eina ferðina þegar hann
skoraði sigurmarkið gegn Middles-
brough átta mínútum íyrir leikslok.
„Það eru ekki margir leikmenn
sem hefðu viljað taka þetta víti en
við eigum Alan og hann er alltaf
réttur maður á réttum tfma. Hann
hefur kjarkinn og reynsluna til að
taka svona víti og bregst okkur
sjaldan," sagði Sir Bobby Robson
um stjörnuna sína.
Steve McClaren, stjóri Boro, var
orðlaus í leikslok.
„Ég trúi ekki að við höfum tapað
þessum leik. Mér fannst við stýra
honum frá upphafi og ekki lenda í
neinum vandræðum."
Klúður hjá Everton
Leikmenn Southampton sýndu
mikinn karakter í sínum fyrsta leik
undir stjórn Steve Wigley, sem stýrir
liðinu til bráðabirgða. Þeir unnu
upp tveggja marka forskot Everton
og það var Frakkinn Fabrice
Fernandes sem skoraði jöfnunar-
markið á lokamínútu leiksins. David
Moyes, stjóri Everton, var að vonum
ósáttur í leikslok enda hefðu hans
menn átt að klára leikinn í fyrri
hálfleik.
„Leikurinn hefði átt að vera
búinn í hálfleik. Við klúðruðum
þvílíkum færum. Við vissum aðþeir
kæmu grimmir í síðari hálfleikinn
og við fengum kjaftshögg í
andlitið."
Coleman reiður
Úlfarnir hans Dave Jones hafa
ekki sagt sitt síðasta í vetur en þeir
unnu mikilvægan sigur á Fulham á
Molineux.
„Þetta er núna í okkar höndum.
Við eigum möguleika á að forðast
fallið, sem er magnað miðað við
hvað við vorum slakir í upphafi
tímabils," sagði Dave Jones, stjóri
Úlfanna, eftir leikinn.
Lftið hefur gengið hjá Fulharn
síðan félagið seldi Louis Saha til
Man. Utd. og Chris Coleman, stjóri
félagsins, sá enn og aftur ástæðu til
þess að ráðast á leikmenn sína eftir
leikinn.
„Úlfarnir voru miklu hungraðri
en við í dag. Við vorum bara í
einhverri slökun, sem gengur ekki
upp. Við misstum Louis, sem er
frábær leikmaður, en það þýðir
ekkert að velta sér upp úr því - hann
Alveg einstök tilfinning Patrick Vieira fagnar hér jöfnunarmarkisínu gegn Chelsea. Vieira
átti stórleik á miðjunni hjá Arsenal í leiknum. Reuters
er farinn. Það er engin afsökun að
hann sé farinn og það er sorglegt að
horfa upp á hvernig við erum að
tapa. Við leggjum okkur ekki einu
sinni fram.“
Keegan þakkaði Fowler
Kevin Keegan, stjóri Man. City,
þakkaði Robbie Fowler fyrir að
bjarga starfl sínu urn sinn er Fowler
lagði grunninn að sigri City gegn
Bolton.
„Það verður f það minnsta ekki
skrifað um að ég verði rekinn í
mánudagsblöðunum. Það er mikill
léttir," sagði Keegan en hans menn
höfðu leikið 14 leiki í deildinni í röð
án sigurs og þetta var fyrsti sigur
liðsins síðan 1. nóvember.
Sam Allardyce, stjóri Bolton, var
fúll út í sína menn. „Ég vona að þeir
hafi verið með hugann við leikinn í
Cardiff. Þrátt fyrir það mun ég ekki
leyfa þeim að gleyma þessum leik í
bráð."
Charlton vann ævintýralegan
sigur á Blackburn með marki í
uppbótartíma eftir að markvörður
Blackburn, Brad Friedél, hafði
jafnað fyrir Blackburn á lokamínútu
leiksins.
„Ég veit að Souness líður mjög
illa núna en svona er fótboltinn.
Þetta var frábær leikur," sagði Alan
Curbishley, stjóri Charlton, bros-
mildur í leikslok. hemy@dv.is
Bestu ummæli helgarinnar
„Við stýrðum leiknum
algjörlega. Það var eins og
við hefðum gleymtþví
hvernig ætti að spila
leiðinlegan fótbolta,"sagði
Dave Jones, knattspyrnu-
stjóri Wolves, eftirað hans
menn höfðu leikið á als oddi
og í fyrsta skipti í vetur spilað
sóknarbolta erþeir fengu
Fulham í heimsókn.
Eiður Smári Guðjohnsen
Eiður Smári Guðjohnsen fór
illa með tækifærið sem hann
fékk gegn Arsenal á laugardag.
Chelsea mátti engan veginn
við því að tapa leiknum og
Eiður gerði lítið til þess að
hjálpa félögum sínum með því
að láta reka sig af velli hálftíma
fyrir leikslok á heimskulegan
hátt. Bæði spjöldin sem hann
fékk í leiknum áttu fullan rétt á
sér og Eiður getur engum
nema sjálfum sér um kennt
hvernig fór. Fyrir vikið fellur
hann enn neðar á vinsælda-
listanum hjá Ranieri og mín-
útunum sem hann fær á vell-
inurn fer væntanlega fækkandi J
í næstu leikjum.