Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Page 27
DV Fókus
MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 27
Stórbrotin og margverðlaunuð
stórmynd með óskarsverðlauna-
hafanum Nicole Kidman, Golden Globe
og BAFTA verðlaunahafanum Renée
Zwllweger og Jude Law
[ÍHUNTED MANsTÖn" ' " kl. 4 og 6 ]
BIÖRN BRðDIR kl. 4 Með Isl. tali |
SÝNDkl. 8 og 10.20
SÝND kl. 6, 8 og 10
B. i. 16 áta BIÖRN BRÓÐIR kl. 6 Með ensku tali |
www.samfaioin.is
tílnefningar tii óskarsvéiíðláuná
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30
SÝND kl. 5.20, 8 og 10.40
fíEGnBOEinn
ÖOOoiby fiJD/:
LAUGARAS ~ ~ 553 2075
mBBiOsmms
AlongCamePolly
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10
*** Kvikmyndir.coni
*** H.J Mbl,
Charttze Thtron vann GoJðen
Gtatoe- verðlaun fyrir biSia l«?ik i
áðaihlutvetki og rnyndin er einnig
tilnefnd til úskarsverðlauna
ÍHÉÍíÍTOEfiÉ uSiSí fYUim
SÝNDkl. 5.45, 8 og 10.15 B i 16
|PAYCHECK kl.8ogl0.ll
|LORD OF THE RINCS ~kl. 4.30
MADDITT kl. 4 Með ísl. tali 500 kr.
www.laugarasbio.is
In Transit, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu, hefur vakið nokkra athygli og gert
lukku undanfarið.
Ep kynlíf betra úr fjarlægú?
Leikhús
„Endalokum ástarsambands ætti að fagna eins
og því að vinna í lottói eða missa sveindóminn,"
skrifaði rithöfundurinn Hanif Kureshi, og átti þá
við að þegar sambandi
lyki væri heimurinn aftur
fullur af möguleikum. Ein
persónan í verkinu In Transit, sem sýnt er í Borg-
arleikhúsinu um þessar mundir, segir að ástar-
sambönd eigi ekki að endast, að þau eigi að hafa
ákveðinn endingartíma eins og kreditkort. Eftir að
skýr verkaskipting karla og kvenna á býlinu datt
upp fyrir mætti spyrja hvort Iangtímasambönd
séu nauðsynleg, eða jafnvel æskileg. Er lífið
kannski frekar biðstöð, eins og á flugvelli, þar sem
fólk kemur og fer, situr saman um stund og held-
ur síðan áfram, vafalaust á aðrar biðstöðvar, og
engum lokaáfangastað er nokkurn tímann náð.
Samskiptatæknin er alltaf að batna, en því
miður virðist sem samskipti fólks aukist ekki sam-
fara því. Ein persónan, 28 ára stúlka, segist aldrei
hafa stundað kynlíf, að það líti betur út í Ijarlægð;
önnur stundar símavændi, sem virðist stundum
vera svar nútímans við þörfinni fyrir nálægð. Per-
sónurnar tala hver fram hjá annarri, fólk er upp-
tekið af eigin vandamálum og enginn nær sam-
bandi við neinn annan. Á Vesturlöndum, þar sem
flestir hafa nóg að bíta og brenna, eru samskiptin
við hitt kynið stóra vandamálið. Erfitt er að finna
hamingjuna með þeim, en ómögulegt án þeirra.
Þetta er, að mínu mati, inntakið í verkinu, sem er
skrifað í samvinnu leikstjóra og leikara hópsins
Thalamus, sem er áhugaverð viðbót í flóruna.
Leikritið er flutt á ensku, en ein ástæðan fyrir
því er að gefa erlendum leikurum tækifæri til að
koma fram á íslensku sviði. Þarna eru þrír slíkir;
hin danska Maiken Ulrike Bernth, Bretinn Sean
McGlynn og Norðmaðurinn Oliver Burns. Sér-
staklega athygli vakti Burns. í fyrri hluta verksins
talaði hann með svo þykkum norskum hreim að
maður var farinn að efast um að hann hefði nokk-
urt vald á enskri tungu. En í seinni hlutanum tal-
aði hann svo fullkomna Oxford-ensku að manni
datt ekki annað í hug en að hann væri borinn og
barnfæddur Breti. Islendingarnir í sýningunni
hafa flestir hlotið menntun sína í Bretlandi, og
tala þeir í fyrri hluta verksins með breskum hreim
en með ýktum íslenskum í þeim seinni. Ber þar
hvað hæst Sólveigu Guðmundsdóttur, sem hefur
svo sterka nærveru að maður á erfitt með að ein-
beita sér að nokkru öðru. valur@dv.is
Júlli Kemp tók helgina snemma
og sást á ölstofunni og svo á Vega-
mótum fimmtudagskvöld, og var
danskur kvikmyndaframleiðandi
með í för. Á föstudagskvöldið sást
Hólmftíður Anna úr dægurmálaút-
Hverjir voru hvar
varpinu og kona Freys Eyjólfssonar
Miðnesings á ölstofúnnL
Hjá Sigga Hall á
föstudagskvöldið
gæddu sér á veiting-
um Jónína Ben og Jó-
hann VUhjálms,
tvíeykið Kormákur
og Skjöldur, og svo
Sigurður G. Guðjóns-
son. Sama kvöld
bauð Baltasar Kormákur með sér á
Kaffibarinn matvörumógúlana Lilju
Pálmadóttir, sem einnig er gift hon-
um og JónÁsgeir, sem er það ekki.
Á laugardags-
kvöldið á Vegamót-
um voru engir aðrir
en smiðurinn
smekkvfsi Friðrik
Weisshappel, og
annar sjónvarpsper-
sónuleiki og núver-
andi blaðafulltrúi
breska sendiráðsins Teitur Þorkels-
son. Á Kaffibarnum voru Valsararnir
Bjarki Sigurðsson, Markús Máni
Mikaelsson og Gísli Eysteinsson, sem
kannski hafa forðast Kofa Tómasar
frænda af ótta við að verða mobbaðir
af æstum aðdáendum.
Jónsi í Svörtum fötum var að spila
á Gauknum en sást síðan einnig á
Kaffibarinn.Teitur Þorkelsson hefur
greinilega farið víða því hann sást líka
á Prikinu, en seinna um kvöldið var
Friðrik Weisshappel í svo miklu stuði
að hann sást dansandi á bamum á
Kaffibamum. Enda til mikils að vinna
þar sem sagan segir að hafi verið ein-
staklega mikið af fríðum fljóðum á
ferli það kvöldið. Ekki hefur spillt fyr-
ir að DJ Ámi var að þeyta skífur.
Gosi á Mojo varð hins vegar af því
þegar hann sótti í semi-írska and-
rúmsloftið á Celtic Cross. Ásdís Rán
var á Ellefunni, en ekki fylgir sögunni
hvort henni hafi tek-
ist að tæla einhverjar
menntaskólastelpur
þar. Á Hverfisbam-
um vom Birkir
Kristinnsson og hin
síunga Ragga Gísla,
en hennar fyrrver-
andi Jakob Frímann
Magnússon sást í Ráðhúsinu í
Reykjavíká Fashion Week, ásamt ekki
ómerkilegra fólki en Forsetanum og
Forsetafrúnni Ólafi Ragnari og Dor-
rit
Á Thorvaldsen vom Daddi diskó,
Ásgeir Hjartarson, þulan Eva Sólan,
EUý Ármanns og
BergþóraAirbrush. Á
Pravda leituðu sann-
leikans Raul
Rodriques, Elli Ingi-
mars á
Rossopomodoro og
Óli Boggi. Á meðan á
þessu öllu stóð fögn-
uðu fulltrúar allra helstu peningaafla
landsins á Hótel Nordica. Var þar
meðal annars að sjá Björgúlf Guð-
mundsson Landsbankamógúl, Jón
Ásgeir Baugsforingja og Geir H. Haar-
de fjármálaráðherra.
Hljómsveitin Muse Saknar giftingar-
hrings bassaleikarans.
Giftingar-
hringnum stolið
Meðlimir Muse hafa sent út
beiðni til aðdáenda hljómsveitar-
innar um að skila giftingarhring
bassaleikarans Chtis Wolstein-
holme. Hringnum var kippt af þegar
Chris tók í höndina á æstum aðdá-
anda í Osaka um miðjan mánuðinn.
Á vef hljómsveitarinnar grátbiðja
strákarnir um að hringnum verið
skilað og bjóða frían aðgang að öll-
um tónleikum hvar sem er í heimin-
um, bara ef hringnum. er skilað.
„Þetta er gullhringur en tilfinninga-
tengsl Chris við hann eru meiri en
orð fá lýst. Ef einhver hefur séð
hringinn, vinsamlega látið okkur
vita og við gerum eitthvað fyrir ykk-
ur í staðinn," kemur fram á vefsíð-
unni þeirra.
Paulá
Glastonbury
Staðfest hefur
verið að Bítillinn
Paul McCartney
mun verða eitt
stærsta númerið
á Glastonbury-
tónlistarhátíðinni
sem haldin verð-
ur í Bretlandi í
sumar. Aðstand-
endur hátíðarinn-
ar segja Bítilinn
hafa verið bókaðan strax eftir síð-
ustu hátíð til að tryggja komu hans.
Önnur stór nöfn sem nefnd hafa
verið í tengslum við hátfðina eru PJ
Harvey, James Brown, Basement
Jaxx, My Morning Jacket, Oasis, The
Strokes, Pixies og Islandsvinirnir í
hljómsveitinni Muse. Hátíðin fer
fram helgina 25.-27. júni í Somerset
á Bretlandi.
McCartney Bókaður
ó Glastonbury.
Ozzyfékkvitrun
Rokkarinn Ozzy Osbourne heldur
því fram að nokkrum mínútum áður
en hann lenti í slæmu vélhjólaslysi
hafi hann fengið slæma tilfinningu.
„Það seinasta sem ég man var að
þegar ég settist á hjólið fékk ég slæmt
bragð í munninn og fann á mér að
eitthvað slæmt myndi gerast," sagði
gamli rokkarinn. Ozzy hefði átt að
taka mark á vitrun sinni því
nokkrum mínútum seinna
lá hann í götunni
hálsbrotinn. Hann
viðurkennir að
hafa farið of hratt
og að auki með
engan hjálm, en
neitar staðfast-
lega hafa verið
dópaður eða
fullur.