Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Síða 29
DV Fókus
MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 29
febrúar.
Jordan næsta
poppstjarna
Nú hefur súpermódelið Jordan
snúið við blaðinu eftir að hún og
söngvarinn Peter Andre játuðu ást
sína á hvoru öðru. Þau léku saman í
raunveruleikaþættinum I’m A
Celebrity og felldu hugi saman. Fóru
þau á dögunum út að borða og segja
vitni að þau hafí ekki getað látið
hvort annað vera og verið kelandi út
í eitt. Framkvæmdarstjóri veitinga-
hússins sem þau snæddu á segir:
„Þau sátu saman og snertu hvort
annað í gríð og erg og litu út íyrir að
vera mjög ástfangin.” Nú talar mód-
elið um það að hún sé tilbúin að
festa ráð sitt. Ekki er nóg með það
heldur ætlar hún líka að hætta að
nota módelnafnið sitt, Jordan, og
kalla sig skírnarnafni sínu, Katie
Price. Peter Andre hefur lýst því yfir
að hann hafi algjörlega fallið fyrir
Katie sjálfri en ekki kynbombu-
ímyndinni Jordan og segist Katie nú
vilja verða ráðsett móðir og eignast
börn með manninum sem hún elsk-
ar. Fyrir á hún einn tveggja ára son
með Blackburn-fótboltahetjunni
Dwight Yorke.
En þó hún sé að draga sig í hlé frá
fyrirsætubransanum og farin að
nota sitt eigið nafn er ekki þar með
sagt að hún sé hætt. Nú hefur hún
haft samband við Simon Cowell
Idol-frömuð með skilaboð þess efn-
is að hana langi til þess að reyna fyr-
ir sér í poppbransanum, en hana
hefur alla tíð langað til þess að verða
poppstjarna. Vinkona Katie Price
sagði í viðtali við tímaritið The Sun:
„Katie hefur talað við Simon um
söngferil sinn og hann segist meira
en tilbúinn til þess að hjálpa henni.
Honum líkar mjög vel við hana og
sér greinilegaj hæfileika í henni.
Hann er núna við upptökur í LA á
American Idol en þau hafa ákveðið
að hittast þegar hann kemur til
baka“. Svo nú verður spennandi að
fylgjast með hinni stórbrjósta Katie
Price og hvort hún á eftir að slá í
gegn eða hversu lengi samband
hennar við Peter Andre á eftir að
endast...
Katie Price eða Jordan
Langartil þess að reyna fyrir sér i
poppheiminum. Auk þess tangar hana
til þess að eignast börn með nýja
manninum i iifi sinu, PeterAndre.
Stjörnuspá
Heiga Soffía Konráðsdóttir, prestur í
Háteigskirkju, er 44 ára í
dag. „Listasviðið á vel
við konuna sem hér um
ræðir og jákvæð líðan
hennar stuðlar nánast
ávallt að réttu and-
rúmslofti hvar sem hún
sti'gur niður fæti," segir í
stjörnuspá hennar.
Helga S. Konráðsdóttir
VV Vatnsberinn (20.jan.-i8. febr.)
VY -----------------------------------
Skopskyn þitt er áberandi og
jákvæður kostur í fari þínu. Þú ert fær um
að tjá tilfinningaorku þína bæði jákvætt
og neikvætt en sú orka er kjarninn í lífi
þínu og því er mikilvægt að þú lærir að
veita henni eingöngu jákvæða útrás, sér í
lagi í vikunni fram undan.
F\skm\t (19. febr.-20.mars)
M
Þér hættir jafnvel til að halda of
lengi í barnslega heimssýn þína sem get-
ur reyndar verið mjög heillandi en það
getur hindrað þig í að ná að þroskast á
réttan máta.
T
Hrúturinn (2lmars-19.apriV
Tjáðu tilfinningar þínar og
hættu að hverfa til fortíðar þegar erfið-
leikar kunna að steðja að hjá þér.Treystu
að sama skapi á gáfur þínar því þær birt-
ast hér skarpar. Veldu af kostgæfni næstu
misseri og vertu skynsöm/skynsamur.
Þú ert fær um að hafa áhrif á náungann.
b
Nautið (20. aprii-20. maí)
n
Þú ert fær i hverju sem þú tekur
þér fyrir hendur því þú býrð yfir einstakri
aðlögunarhæfni sem kemur þér þangað
sem þú ætlar þér hverju sinni. Þú ert án
efa kappsfull(ur) og ættir þú aldrei að
missa trúna á eigin getu.
Tvíburarnir(2/. mai-21.júni)
Þú ert fær um að nota kjark
þinn og þor í nánast hverju sem á dynur
miðað við stjörnu þína, sem skín skært
um þessar mundir. Það er þýðingarmikið
fyrir stjörnu þína að hún haldi sig á jörð-
inni og vinni að þeim árangri sem hún
sættir sig við.
s-Q Kttbb'm (22.júni-22.júli)
Ef krabbinn þráir eitthvað óhóf-
lega verður hann mjög skjótt órólegur
með sjálfinu og á það við hérna af ein-
hverjum ástæðum. Ef þú finnur fyrir um-
ræddri líðan ættir þú að huga að því
smáa sem þú upplifir daglega með þeim
sem þú berð góðar tilfinningar til.
%
Ljónið (23.júli- 22. igúít)
Ljónið býr yfir mjög jákvæðum
eiginleika sem felst í því að vera fær um
að lýsa upp umhverfið með nærveru
sinni einni saman ef það aðeins lætur
áhyggjur lönd og leið. Mannfagnaður
einkennir umhverfi þitt hérvikuna fram
undan.
Meyjangj. ágúst-22. sept.)
Þú setur þér háleit markmið. Hér
kemur einnig fram að þú virðist hafa lag á
að fá hugmyndir frá náunganum og ekki
síður úr umhverfinu en líf þitt mun taka
óvæntum en ánægjulegum breytingum.
Vogin (23.sept.-23.okt.)
Þú virðist jafnvel vera ósátt(ur) í
vinnunni/skólanum. Kraftur þinn mun
aukast með hverjum degi hér eftir ef þú
eflir innra jafnvægi þitt með útiveru sér í
lagi. Þú ættir að hugsa um sjálfið og
leggja áherslu á að ná eigin markmiðum.
m,
Sporðdrekinn (2iokt.-2t.n6vj
Skilgreindu drauma þína, áætl-
anir og tilgang þinn í lífinu áður en þú
ákveður hvað skal verða ef þú stendur
frammi fyrir breytingum á högum þínum
eða jafnvel starfí. Fréttir eru væntanlegar
á sama tíma og mikilfengleg tækifæri
bíða þín.
/
Bogmaðurinn(2Zrw.-2i.ítej
Ef þú hefur áttað þig á áhersl-
um þínum og langar að vinna stöðugt að
markmiðum þínum skaltu taka af skarið
sem fyrst og huga að þér og þínum löng-
unum eingöngu því þar búa töfrar þínir
svo sannarlega.
■yr Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Steingeitin birtist hér sem
þrjósk manneskja í febrúarlok sem
gleymir af einhverjum ástæðum að virkja
eigin hæfileika þegar mikið liggur við,
hafðu það hugfast næstu vikur og reyndu
að breyta því meðvitað.
SPAMAÐUR.IS