Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson Ritstjóran lilugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjórar Kristinn Hrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setning og umbrot Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. 47 stunda sigling Varðskipið Týr dró í vik- nnni Manafoss alla leið frá Vestmannaeyjum til Akureyrar. Tók siglingin 47 stundir og gekk bæðihægtogvel. Mánafoss fer í slipp áAkureyri eftir að hafa hlekkstáíVest- mannaeyjum í síð- ustu viku. Bóndivill 18 milljónir Bæjarráð Vesturbyggðar hefiir hafnað tilboði bóndans í Otradal umkaupájörð hans fyrir 18 millj- ónir. Taldi bónd- inn að jörðin hent- aði jafnt til sorp- urðunar sem sum- arhtísabyggðar. Bæjar- ráðsmenn voru á öðru máli. Freyja fær styrk Uppgjör vegna Menning- arhátíðar sem haldin var á Raufarhöfn reyndist 154.983 krónur í pltís. Þótti það vel sloppið og því var ákveðið að veita kvenféiaginu Freyju 25 þtísund króna styrk af ágóðanum sem þakklætisvott fyrir góðar veitingar á viðráðanlegu verði á há- tíðinni sem gerði fjöl- skyldufólki kleift að sækja hana og njóta án verulegra fjártítláta. Heimavist verður hótel Undirritaður hefur verið samningur á milli Menntaskólans á Isafirði og Kunningja ehf. um að heimavist skól- ans verði notuð sem sumarhótel á þeim tíma sem skólastarf fer ekki fram. Er samningurinn til I sjö ára en Kunningi ehf. er í eigu Flugleiðahótela og Hótels ísafjarðar. Á heimavistinni eru 42 herbergi. Mínus hjá Mínusi Aðeins 60 gestir komu á tónleika hljómsveitar- innar Mfnuss semhaldnirvoru á Isafirði í fyrra- kvöld. Mínus hefur, sem kimn- ugt er, verið títi- lokuð frá tón- leikahaldi í félagsmið- stöðvum á höfuðborgar- svæðinu og á Akureyri og því voru vonir bundnar við ísafjörð. Þar brást að- sókn hinsvegar. 3 u*. O « o Ll_ £ 3 «o ro C u*. E ro «o £ ru ro ISI O 2* <v Dómarar Hæstaréttar styttu í gær um helming refsingu yfir manni sem níddist á ungri stúlicu á Patreksfirði. Hann hafði Verið dæmdur tU þriggja ára fang- elsisvistar af Héraðsdómi Vestfjarða en dóm- arar Hæstaréttar telja nægjanlegt að hann sitji inni í eitt og hálft ár. Ástæðan fyrir refsUækkuninni er sú, segir Hæstiréttur, að ekki séu fullsönnuð öll þau brot sem sttílkan hélt fram að maðurinn hefði framið. Eitthvert misræmi hafi gert vart við sig í framburði hennar. Þar með hefur Hæstiréttur í reynd dæmt hluta af framburði stúlkunnar lygi. Rétt eins og lítU stúlka, sem mannar sig upp í að segja frá hátterni níð- ings, taki um það meðvitaða ákvörðun að ljúga nú svolítið upp á hann lflca - í þokkabót við það sem hann var í rauninni sekur um. Því þótt Hæstiréttur komist kurteislega að orði um að ekki sé annað hægt en að meta vafa sakborningi í hag, eða hvemig sem það var nú orðað í dómnum, þá verður dómurinn lflca að horfast í augu við að þannig er hann um leið að dæma framburð stúlkunnar; við trúum þér ekki nema að hluta til. Ósköp er nú orðið þreytandi að þurfa æ ofan í æ að upplifa gremju og reiði yfir niður- stöðu dómstóla í málum barnaníðinga. Ég er ekki að halda því fram að dómstólar eigi skil- yrðislaust að dæma sakborninga seka, hvern- ig sem framburði er háttað, eða leggja á hill- una hina gullvægu reglu um að hver sé sak- laus nema sekt hans hafi verið sönnuð. En í hverjum dómnum af öðrum undanfarin ár hefur réttarvitund og réttlætisvitund minni samt verið misboðið. Svo er um dóminn yfir Birgi Ingólfssyni á Patreksfirði. Það virðist með öllu ástæðulaust fyrir Hæstarétt að meta hugsanlegan vafa um framburð stúlkunnar svo mjög hinum ákærða í hag að refsing hans sé stytt jafn mikið og raun ber vitni. Þetta er maðurinn sem sagði við blaða- mann DV, þegar rætt var við hann um fram- burð barna gegn níðingum, að „þetta“ héldi fram hinu eða þessu. „Þetta“ þýddi börn. Og nú er heldur súrt að vita til þess að barnaníðingur fagni niðurstöðu Hæstaréttar en fórnarlambið skilji hvorki upp né niður í því af hverju ekki sé á því tekið mark. Illugi Jökulsson Dómur Hæstaréttar Netið hefur það sér til ágætis að rúma flest xmdir sólinni. Við höf- um nýlega rekist þar á skemmti- lega síðu sem heitir Vantrú.net og hefur að geyma íjöldann allan af alls konar greinum efahyggju- maxma í trúmálum. Þar eru færð fram rök gegn tilveru Drottins al- máttugs og fleiri guða fyrr og síðar og sömuleiðis er rökrætt gegn flestum þeim hugmyndum sem trúarbrögðin hafa alið af sér. Þar á meðal er eilíft líf en sannir efa- hyggjumenn geta náttúrlega trauðla trúað á slflc hindurvitni. Nýjasta greinin á Vantrúnni heitir einfaldlega Er líf eftir dauðann? og þar beitir höfundur hinni klassísku aðferð heimspekilegra höfunda, samræðunni, sem í þessu tílvUd er milli efahyggjumanns og annars sem bersýnilega trúir á eilíft líf. Okkur þykir ástæða til að birta greinina enda gott til þess að vita að ungt fólk hugsar um annað en brýnustu nauðþurftimar, en höf- undurinn er reyndar mörgum kunnur sem einn af spumingahetj- um Menntaskólans í Reykjavflc úr Gettu betur-keppninni og heitir Snæbjöm Guðmundsson. „Er líf eftir dauðann? Já, hvernig spyrðu? Auðvitað er líf eftir dauðann. í hverju felst slíkt líf? Við förum til himnaríkis. En þeir sem ekki eru kristnir, ættu þeir ekki að fara á einhverja aðra staði samkvæmt sínum trúar- brögðum? Ættu búddistar þá ekki að sameinast alheimssálinni? Er það rökrétt að allir fari á sinn hvorn staðinn einvörðungu eftir trúar- brögðum sínum? Nei, það er rétt hjá þér. Þetta fer líklegast ekki eftir trúarbrögðunum. En við förum örugglega samt öll til einhvers annars heims. Hvar er sá heimur? Hugsanlega annars staðar í vetr- arbrautinni. Brýtur það ekki gegn þekktum eðlislögmálum heimsins að ferðast efnislaus um í geimnum til annarr- ar plánetu? Jú, reyndar. En þá hljótum við að fara til annarrar víddar eftir dauð- ann, víddar samhliða okkar eigin. Bendir eitthvað til þess að þessi vídd sé til? Nei. En sálin er svo merkileg að hún hlýtur að vera eilíf. Var þá líf fyrir fæðingu? Nei. Það er óhugsandi. Af hveiju var ekki líf fyrir fæð- ingu? Því við vitum hvemig við urðum til, við samruna tveggja kynfruma foreldra okkar. Einhvem veginn hlýtur sálin samt að hafa orðið til, er það ekki? Jú, auðvitað. Varla hefur hún klofnað úr sál- um foreldra okkar? Gegn Guði Á vefsíðunni Vantrú.net eru færð framrök gegn tilveru Drottins almátt- ugs ogfleiri guðafyrrog síðar og sömu- leiðis errökrætt gegn flestum þeim hugmynd- um sem trúar- brögðin hafa aliðafsér. Þará meðal er eiiíft lít Fyrst og fremst Nei. Hún hefur annaðhvort orð- ið til við getnað eða fæðingu. Or hveiju varð hún til? Jah, hún virðist hafa orðið til úr engu. Fyrst sálin spratt upp úr engu við fæðingu, af hveiju verður hún þá ekki aftur að engu þegar við deyj- um? Er það líklegt að hún verði til um eilífð eftir að við deyjum en hafi ekki verið til áður en við fæddumst? Sko, þú verður að athuga að dauðinn er allt öðmvísi en fæðing- in. Við vitum hvemig við verðum til en ekki hvað verður um okkur þeg- ar við deyjum. Við dauðann er sálin orðin til og hún getur auðvitað ekki bara horfið sisvona. En núna taka rannsóknir vís- indamanna á heilanum stöðugum framförum. Menn gera sér betur og betur grein fyrir mismunandi hlut- verki heilastöðvanna og vísinda- menn telja sig jafrivel hafa fundið vísbendingar um staðsetningu sj álfsmeð vitundarinnar f heilanum. Er sálin ekki bara hluti afhinum gíf- urlega flóknu efnaskiptum sem fram fara í mannsheilanum og stöðvast þegar við deyjum? Jú, það er kannski rétt hjá þér. En þetta snýst í rauninni ekki um það. Það hlýtur einfaldlega að vera líf eftir dauðann því annars væri líf- ið tilgangslaust. En er ekki frumtilgangur lífs mannanna, eins og annarra dýra hér á jörð, að fjölga sér? Jú, það er frumtilgangurinn. En það hlýtur að vera einhver æðri tO- gangur með tilveru okkar. Er eitthvað æðra við tilveru okk- ar en tOveru annarra dýra? Nei. Hljóta þá ekki önnur dýr líka að eiga líf eftir dauðann í vændum? Jú, ef við eigum líf eftir dauðann í vændum hljóta önnur dýr lfka að eiga það. Ættu þá ekki öll dýr sem lifað hafa hér á jörð að hafa öðlast líf eft- ir dauðann? Jú. Veistu hversu margar lífverur það eru? Er einhver möguleiki að geta sér til um það? . Nei, það veit ég ekki. Ef taldar eru lífverur allra tegunda sem ein- hvern tímann hafa lifað á jörðinni, má ef til vill hugsa sér að saman- lagður fjöldi þeirra hlaupi á ipUlj- örðum milljarða. En það er vissu- lega afar erfitt að gera sér slíkan íjölda í hugarlund. Er einhver möguleiki á að slík mergð komist fyrir á jörðinni, jafn- vel þótt í annarri vídd sé? Er hægt að gera sér í hugarlund stað þótt þar.væru aðeins sálir allra þessara dýra? Nei, þetta er alveg rétt hjá þér. Þetta er allt saman rétt. Vandamál- ið er bara að það er svo hræðileg til- hugsun að maðurinn deyi bara og það gerist ekkert meira eftir það. Er það svo hræðileg tilhugsun þegar við höfum lifað giftusamlegu og hamingjusömu lífi og deyjum södd lífdaga? Bíður dauðinn hvort eð er ekki allra? Jú, en það er svo hræðilegt að geta dáið skyndilega, án alls fyrir- vara og að allt sem einstaklingurinn hafl áorkað í lífinu gufi upp. En fyrst erfitt er að ráða við dauðann, hjálpar það þá eitthvað að vera hræddur við hann? Ættum við ekki frekar að haga lífinu skyn- samlega og setja okkur það mark- mið að lifa þannig að við verðum hamingjusöm með ævistarfið þegar dauðann loks ber að garði? Snýst lífið nú ekki einu sinni um það sem gerist fyrir dauðann en ekki það sem gerist eftir hann?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.