Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Side 13
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 13 Sigurður H. Guðjónsson, lögmaður og faðir Bjarna í Mínusi, vandar æskulýðsfulltrúum landsins ekki kveðjurnar og telur stefna í óefni - óíslenska nefndin stefni þjóðfélaginu inn á braut fasisma og forræðishyggju. Sigurður H. Guðjónsson Segir æskulýðsfrömuði á hættulegri braut með að vilja ákveða hvað séu æskilegar fyrirmyndir og hvað ekki. Hann segir um svívirðilega aðför að Minusi að ræða. Sárt að bera dóporð af svni sínum „Ég hef fylgst með þessum strák- um frá upphafi, eða í ein fimm ár, og veit sem er að þeir hafa lagt mjög hart að sér og unnið vel. Þeir eru nánast á hverju kvöldi við æfingar og engin óregla né vitleysa í kringum það. Enda hafa þeir hvarvetna upp- skorið eins og til var sáð og hlotið mikið lof í útlöndum," segir Sigurð- ur H. Guðjónsson, lögmaður og for- maður Húseigendafélagsins. Óíslenska nefndin Sigurður er faðir Bjarna Magnús- ar, gítarleikara hljómsveitarinnar Mínuss sem nýverið kom til lands- ins. Hljómsveitin og aðstandendur hennar héldu fund á mánudag og var þá tekin ákvörðun um að láta kyrrt liggja að svo stöddu þó svo að hljómsveitinni hafi verið bannað að koma ffam á tónleikum sem ýmsar æskulýðshreyfingar standa fýrir - Samfés þar fremst í flokki. Þetta var eftir að þeim var gert að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis að þeir hefðu aldrei neytt fíkniefna. Sigurði þykir einsýnt að fáránlegt sé að ætla einhverjum dópistum að hafa náð eins langt og raun ber vitni með Mínus. „Þetta er mjög sárt, meðan allt gengur að óskum, að þurfa að bera dóporð af syni sínum eins og ég hef þurft að gera að und- anförnu,“ segir hann. Sigurður er ákaflega stoltur af syni sínum, segir hann reglusaman; dreypi stöku sinnum á bjór en snerti ekki dóp og haffi aldrei gert. „Bjarni er heimakær og lítt úti á galeiðunni og í slarkinu." Lögmaðurinn segir bannfæringu Samfés bera vott um ákaflega hættulegt hugarfar og skoðanakúg- un. „Svona aðferðum var beitt í Þýskalandi Hitlers og Bandaríkjun- um á tímum McCarthys. Þetta er þekkt frá McCarthy-tímanum en þá var spjótum beint að listamönnum sem þóttu í aðstöðu til að hafa áhrif. Þeir voru neyddir tU að skrifa yfirlýs- ingar þess efnis að þeir hefðu aldrei „Stráksi nautþess að vera í ætt við svo mik- inn rokkara en það snerist heldur betur við. Kennarar og nem- endur senda hann nú grátandi heim því krakkarnir eiga ekki að hlusta á Mínusa - þeir eru allir í dópi." aðhyllst kenningar kommúnista. Út- hýst af óamerísku nefndinni ef þeir neituðu. Ætli þetta megi þá ekki heita óíslenska nefndin?" Sigurður telur að athyglisvert væri að sjá helstu og stærstu rokkstjörnur íslands standa frammi fyrir svona yfirlýsingum og faUast á að skrifa undir þær eins og Mínus- mönnum var gert að gera. Svívirðileg aðför Sigurður segir Mfnus-menn dæmda í útlegð með þessum að- ferðum. AUir keppist við að mæra þá úti en þeir séu fordæmdir hér heima. „Ég hafði áður ekki við að taka á móti hamingjuóskum meðan aUt lék í lyndi og þeir tóku við verð- launum fyrir síðustu plötu sína. En þeir sem þóttu óskabörn þjóðarinn- ar áður eru nú allt í einu orðnir hættulegir æsku landsins. Og ein- hverjir eru þeir sem telja sig þess bæra að ákveða það fyrir aðra. Ojjjj, bara.“ Eftir að Samfés lýsti Mínus óalandi og óferjandi og hættulegt fordæmi snerist lofið í andhverfu sína. Sigurður segir sláandi dæmi af systursyni konu sinnar sem býr uppi á Kjalarnesi. „Stráksi naut þess að Bjarni í Mínus Sonur Sigurðar er heimakær, lifir fyrir tónlistina og hefur aldrei komið ná- iægt dópneyslu. Það fullyrðir faðir hans. vera í ætt við svo mikinn rokkara en það snerist heldur betur við. Kenn- arar og nemendur senda hann nú grátandi heim því krakkarnir eiga ekki að hlusta á Mínusa - þeir eru allir í dópi. Dæmi er um að krökkum í Hafnarfirði hafi verið bannað að klæðast Mínusbolum því það er óæskilegt. Þetta er auðvitað fyrir neðan allar hellur - það hlýtur hver maður með fullu viti að sjá.“ Að mati lögmannsins lýsir sú orrahríð, sem Mínus hefur staðið í, stórhættulegu hugarfari. „Maður fær hreinlega hroll. Þetta eru atvinnu- menn í tónlist og er nú bannaðar bjargimar. Atvinna er frá þeim tekin, Ég tel að þessu fólki gangi gott eitt til og sennilega er það ekki meinfýsið. En ef haldið er lengra stefnum við í átt til hrollvekjandi þjóðfélags fas- isma: Ef æskulýðsfrömuðir æda að ákveða hver sé hin eina sanna rétta lína - hvað krakkar megi og eigi að hlusta á. Ekki er deilt um gæði tón- listarinnar en nú er hætt að horfa til þess heldur hvað telst æskileg fyrir- mynd. Og einhver ætlar sér þá dul að ákveða það fyrir alla línuna. Forræð- ishyggjan í þessu er ógeðsleg og þarna er um svívirðilega aðför að listamönnum að ræða,“ segir Sigurð- ur og skorar á forsvarsmenn lista- manna að láta málið til sín taka. . jakob@dv.is Hannes Hólmsteinn Sá besti að mati nemenda sinna. Hannes Hólmsteinn besti kennarinn Á árshátíð þjóðfélagsfræðinema við Háskóla íslands, sem haldin var um síðustu helgi, var Hannes Hólm- steinn Gissurarson prófessor kosinn besti kennari deilarinnar. Var kjör- inu lýst á árshátíðinni: „Ég fékk afhentan sérstakan skjöld með áletrun af þessu tilefni. Þetta kom mér mjög á óvart og gladdi mig,“ sagði Hannes Hólm- steinn eftir árshátíðina en Hannes hefur löngum þótt frábær kennari og verið vinsæli af nemendum sín- um þótt í umræðunni sé hann ávallt umdeildur. Að sögn margra fyrrum nemenda við HÍ eru umdeildu mennirnir oft bestu kennararnir. Þeir þora að taka af skarið og gefa meira af sér en hinir, sem fáar sem engar skoðanir hafa. SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsingum nýtt deiliskipulag og breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að nýju deiliskipulagi og breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Þingholtsstræti 3. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Þingholtsstrætis 3, um byggingu hótels á lóðinni. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að byggt verði hótel á fjórum hæðum, á fyrstu hæð verði gert ráð fyrir verslun, á annarri og þriðju hæð komið fyrir átta herbergjum á hvorri hæð og á fjórðu hæð komið fyrir sex herbergjum og einni svítu. Á efstu hæðinni yrði komið fyrir verönd, með heitum potti til nota fyrir hótelgesti. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Reitur 1.160.3, Hólatorgsreitur. Tillagaað deiliskipulagi reits 1.160.3, Hólatorgsreitur, sem afmarkast af Hólatorgi, Sólvallagötu, Blómvallagötu, Hávallagötu og Garðastræti. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að leyfðar verði viðbyggingar á þeim hliðum sem ekki snúa beint að götum þar sem slíkt rúmast innan lóðar, leyfilegt verði að byggja nýja bílskúra á þeim lóðum sem ekki eru bílskúrar á, innan þeirra bygg- ingarreita sem sýndir eru á deiliskipulagsuppdrætti, eingöngu verði leyfilegt að rjúfa garðveggi fyrir göngu- leiðir að útidyrum og framanvið bílskúra/bílastæði. Um einstakar lóðir, hækkun húsa, þakhæðir, kvisti, verndun og friðun, fjölgun íbúða, trjágróður og fleira er nánar um á uppdrætti og í skilmálum. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 08:20 - 16.15, frá 27. febrúartil 13. apríl 2004. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 13. apríl 2004. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 27. febrúar 2004 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.