Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Page 15
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 15
am.
é&'l É0Ú ;$■; i
3
Innsigli
var rofiða
Bergstaða-
stræti 19
Innsigli á bakhurðinni
að Bergstaðastræti 19 var
rofið í fyrrinótt. Nágrann-
ar tóku eftir þessu í gær-
morgun. Þeir sem rufu
innsiglið höfðu þó ekki er-
indi sem erfiði því þeim
tókst ekki að komast inn í
húsið. Bakhurðin er það
rammgerð og vel njörvuð
aftur að verkfæri á borð
við borvél þarf til að kom-
ast í gegnum hana. Sem
kunnugt er af fréttum DV
var húsinu lokað og það
innsiglað af slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins fyrr
í vikunni vegna íkveikju-
og sprengihættu. Úti-
gangsmenn hafa hafst við
í húsinu síðan síðasta
haust, sumir með skrif-
legu leyfi eigandans Sig-
urðar Óla Sigurðssonar,
sem rekur veitingastaðinn
A. Hansen í Hafnarfirði.
íbúum í nágrenni Bergstaðastrætis 19 er létt eftir að langri baráttu þeirra við að fá
útigangsmenn burt af svæðinu er lokið. Ekkert gerðist fyrr en DV skrifaði um málið.
Þökkum ykkur
kærlega fyrir
„Það er líka furðulegt að
þessi eigandi skuli hafa
getað gefið útigangs-
mönnum skriflegt leyfi
fyrir að fá að vera í hús-
inu þegar vitað var að
búið var að setja leigu-
bann á það enda húsið
algerlega óíbúðarhæft."
„Við þökkum ykkur kærlega fyrir stuðn-
inginn við að fá þessu húsi lokað," segir
Jenný E. Guðmundsdóttir, einn af næstu
nágrönnum við Bergstaðastræti 19, sem nú
hefur verið lokað útigangsmönnum sem
þar hafa hafst við með leyfi eiganda. Annar
nágranni, Helga Völundardóttir, sem er
þriggja bama móðir, segir einnig að DV eigi
þakkir skildar. „Það gerðist ekkert í málinu
fyrr en blaðið birti grein um húsið," segir
Helga. „Og næstum daginn eftir voru allir
mættir til að loka húsinu, slökkviliðið, lög-
reglan, heilbrigðisnefnd og lögmenn borg-
arinnar."
Fram kemur í máli þeirra beggja að ffá
því fyrir jól á síðasta ári, þegar umferð úti-
gangsmanna var orðin all umfangsmikil í
og við húsið, hafi ítrekað verið haft sam-
band við borgaryfirvöld til að fá húsinu lok-
að. „Þarna voru meðal annars sprautufíklar
þannig að manni stóð alls ekki á sama enda
á ég þrjár ungar dætur,“ segir Helga. „Það
er líka furðulegt að þessi eigandi skuli hafa
getað gefið útigangsmönnum skriffegt leyfi
fyrir að fá að vera í húsinu þegar vitað var að búið
var að setja leigubann á það enda húsið algerlega
óíbúðarhæft."
Húslð vlö Bergstaðastræti 19 til umfjöllunar hjá borgarjTtrvöldum eftlr aö slökkvi-
liöið fCkk þvl lokaö vegna bruna- og sprengihættu. Alls 13 gaskútar d vtö og dreif
um húslö. Eigandanum sent bréf um máliö meö skýrum skUaboöum.
um nágrannanna. P WðÖ8t upP ".enn ikvetta úr
Koma veröur husinu fnnahiippfhfr
Eins og fram hefur komið í DV hefur lögregl-
an fundið þýfi í húsinu í. heimsóknum sínum
þangað undanfarna mánuði. Helga segir að þegar
Bergstaðastræti 19 íbúari
nágrenninu eru DVþakklátir
fyrirað segja frá baráttu þeirra
á síðum blaðsins.
forráðamenn meðferðar-
heimilisins Byrgisins fóru
inn í húsið í fylgd sjón-
varpsmanna fyrir nokkrum
vikum síðan hafi móðir
hennar uppgötvað að ætt-
arborð þeirra hjóna var orð-
ið innanstokksmunur hjá
útigangsmönnunum. Móð-
irin hélt annars að borðið
væri tryggt í geymslu þeirra
hjóna. Um er að ræða stórt
útskorið borð úr vönduðum
viði, smíðað í Kaupmanna-
höfn snemma á síðustu öld.
Borðið var sótt af lögreglu skömmu síðar og kom-
ið til réttra eigenda á ný.
-yj**"".*.*
Áskriftar
happdrætti
ssv
Ferð fyrir 2 til London eða
Kaupmannahafnar
w Vinningshafar verða kynntir í
Askriftarsíminn er 550 5000 helgarblaði daginn eftir útdrátt
Á hverjum föstudegi til páska
verður dregið úr öllum
áskrifendum DV og sá heppni
fær ferð fyrir 2 með lceland
Express til London eða
Kaupmannahafnar.