Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Page 19
DV Sport
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 19
ibæk. Hann heldur til La Manga á Spáni á
or sig ekki vera samningsbundinn KR en
liðinu.
Á leiötil Stabæk? Veigar Páll Gunnarsson. sem sést her i lelk með KR
ingum gegn Skagamönnum i fyrra, segist wa á leiðinni til norska liðsins
Stabæk. Forráóomenn KR hafa ekkert heyrt fró VeigariPáli sern heldur ut
á morgun til æfínga.
fXkgmdPietur
Kvennalið ÍBV í handbolta spilar sinn Qórða bikarúrslita-
leik á fjórum árum þegar það mætir Haukaliðinu á morgun.
Sama félag - allt annaö liö
Kvennalið ÍBV spilar um helgina
sinn íjóröa bikarúrslitaleik i röð
þegar það mætir Haukaliðinu í
Laugardalshöllinni klukkkan 13 á
morgun en það hefur ekki verið
sama. Eyjalið sem hefur mætt í
Höllina síðustu þrjú árin.
Vigdís sú eina
Það er aðeins einn leikmaður
sem hefur komið við sögu í öllum
þremur leikjunum en það er
markvörðurinn Vigdís Sigurðar-
dóttir sem varði 48 skot í þessum
þremur leikjum (16 að meðaltali)
og var fyrirliði liðsins þegar það
vann bikarinn í fyrsta sinn fyrir
þremur árum.
Það er ekki nóg með að enginn
leikmaður hefur tekið þátt í öllum
þremur leikjunum, heldur hefur
enginn leikinaður ÍBV skorað í
fleiri en einum af þessum þremur
leikjum. Eyjamenn hafa þannig
þurft að búa við miklar manna-
breytingar á þessum fjórunt árum
en alltaf hefur liðið haft styrk til að
komast alla leið í þennan stærsta
leik ársins.
Nú í ár verður loksins breyting á
þessu því lið Eyjastúlkna er að
mestu leyti skipað sömu
lykilmönnum og í fyrra nema að
Vigdísi undanskilinni sem hefur
lagt skóna á hilluna.
Fjórði þjálfarinn á 4 árum
Aðalsteinn Eyjólfsson verður
fjórði þjálfarinn sem fer með IBV-
liðið í bikarúrslit á þessum fjórum
árum. Sigbjörn Óskarsson gerði
ÍBV að bikarmeisturum 2001,
Erlingur Richardsson endurtók
leikinn árið eftir og Unnur
Sigmarsdóttir stýrrrði ÍBV í fyrra.
Undir stjórn Aðalsteins hefur
ÍBV-liðið unnið 14 af 15
deildarleikjum sínum í vetur og
hefur 3ja stiga forustu á Hauka
þrátt fyrir að eiga heila þrjá leiki
inni miðað við Hafnarfjarðarliðið.
Þá er ÍBV-liðið komið í 8 liða úrslit í
Evrópukeppninni, fyrst íslenskra
kvennaliða. ooj@dv.is
Sú eina Vigdís Sigurðardóttir er eini
leikmaður IBV sem hefur komið við sögu I
öllum bikarúrslitaleikjum liðsins á siðustu
þremur árum. Vigdís er ekki með i ár.
ÍBV í ÚRSLITUM 2001
(BV varð bikarmeistari eftir 21-19
sigur á Haukum í framlengdum
leik.
Mörk fBV í úrslitaleiknum:
Tamara Mandizch 5/4
Edda Eggertsdóttir ’4
Anita Andreasen 4
IngibjörgÝr Jóhannsdóttir 3
Gunnleyg Berg 2
Amela Hegic • 2
Bjarný Þórvarðardóttir 1
ÍBV í ÚRSLITUM 2002
fBV varð bikarmeistari eftir 22-16
sigur á Gróttu/KR.
Mörk ÍBV í úrslitaleiknum:
Theodora Visokaite 6
Ana Perez 6/3
Dagný Skúladóttir 5
Ingibjörg Jónsdóttir 3
Andrea Atladóttir 2
ÍBV í ÚRSLITUM 2003
ÍBV tapaði fyrir Haukum, 22-23, í
bikarúrslitaleiknum.
Mörk (BV í úrslitaleiknum:
Sylvia Strass 7
Alla Gokorian 7/3
Anna Yakova 5
Elísa Sigurðardóttir 2
Birgit Engl 1
*
Arnór gerir gæfu-
muninn hjá KA
Framarar og KA-menn mætast í
fjórða sinn í vetur þegar liðin spila
bikarúrslitaleik karla í handbolta í
Laugardalsöllinni á morgun.
Framarar unnu fyrsta leik liðanna á
Akureyri þegar KA-menn léku án
Arnórs Atlasonar en KA hefur unnið
hina tvo þar sem Arnór hefur verið
með og hefur strákurinn skorað 23
mörk í þessum tveimur
sigurleikjum.
KA-menn ætla sér örugglega að
rifja upp bikarstemninguna frá því á
árunum 1994 til 1997 þegar liðið
komst í bikarúrslitaleikinn fjögur ár í
röð og vann bikarinn bæði 1995 og
1996, Á morgun leikur KA sinn
fyrsta bikarúrslitaleik frá 1997.
Arnór Atlason er markahæsti
leikmaður úrvalsdeildar karla með
52 mörk í frmrn leikjum. Hann
skoraði 12 mörk og nýtti 92% skota
sinna í 31-28 sigurleik KA á Fram á
dögunum. KA-menn treysta mikið á
Arnór og svo Andreus Stelmokas,
sem skoraði 9 mörk úr 12 skotum og
fiskaði 5 víti í þessum sigri KA á
Fram á Akureyri í byrjun febrúar.
Tveir bikarúrslitaleikir
Arnór Atlason gæti líka farið illa
með Framara tvo daga í röð því auk
þess að spila lykilhlutverk með
meistaraflokknum í bikarúrslita-
leiknum á morgun verður hann
einnig í stóru hlutverki með ung-
lingaflokknum daginn eftir en það
vill svo skemmtilega til þetta árið að
KA og Fram mætast í báðum
bikarúrslitaleikjum elstu karla-
flokkanna. ooj@dv.is
11,5 mörk í leik Arnór Atlason hefur farið illa með Framara það sem af er vetri og þeir verða
að stöðva hann, ætlir þeir sér bikarmeistaratitilinn á morgun. Hér reynir Framarinn Héðinn
Gilsson að stöðva Arnór ileik iiðanna i vetur.
I
I