Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Side 31
BV Siðast en ekki síst FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 31 Orkuveitan heillar 250 þúsund gestir á ári „Fyrirtækið er eigendum sínum ástfólgið," segir Helgi Pétursson hjá Orkuveitu Reykjavíkur en árlega heimsækir fjórðungur úr milljón stofnunina; íslendingar í bland við gesti frá 60 þjóðlöndum. Listasöfn höfuðborgarinnar og Árnastofnun blikna í samanburði við Orkuveit- una þegar kemur að því að kveikja áhuga gesta. Svo ekki sé minnst á Þjóðminjasafnið sem alltaf er lok- að. „Það eru allar lóðir og lendur Orkuveitunnar sem fólk vill heim- sækja en eftirspurnin er helst eftir Orkuveituhúsinu sjálfu, Perlunni, Deildartunguhver, Nesjavöllum, Gvendarbrunnum og ekki má gleyma Elliðaárdalnum,“ segir Auður Björg Sigurjónsdóttir, mót- tökustjóri Orkuveitunnar, en hún er önnum kafin kona eins og gefur að skilja. „Það er ekki svo að við heilsum öllum þegsum gestum með handabandi en við tökum á móti öllum sem vilja koma. Við erum einfaldlega að mæta eftir- spurn,“ segir hún. Nær því allir útlendingar sem hingað koma í opinbera heimsókn koma við hjá Orkuveitunni. Þar fá þeir að sjá hið framandi sem í flest- um tilvikum er óþekkt í heimalandi þeirra; gufustróka og bullandi heitt vatn eins og hver vill hafa. Eins og sandurinn í Sahara eða ísinn á Grænlandi. Og Orkuveitan kann þá list að taka á móti fólki. Höfuð- stöðvar fyrirtækisins á Bæjarhálsi mynda glæsilegan ramma um þennan áhuga allan og er bygging- in þegar komin í hóp þeirra mark- verðustu í höfuðborginni; eins og skip sem rís upp úr örfoka mel, tákn um sigur gegn landlægum kulda og blæstri. Sigurtákn á Höfða. Auður Björg Sigurjónsdóttir og Jó- hanna Guðmundsdóttir Móttökustjórinn tekur vel á móti öllum þótt ekki geti hún heilsað öllum með handabandi. • Tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker vinnur nú ótrauður að því að afla fram- boði Ástþórs Magnússonar til forseta íslands fylgis líkt og hann gerði síðast þegar Ástþór bauð sig fram. Virðist því gróið um heilt en nokkuð slettist upp á vinskapinn þegar Sverrir fékk Ástþór í útvarps- viðtal til sín um árið. Þetta var þeg- ar Sverrir var með útvarpsþátt á út- varpsstöð sem eng- inn man lengur hvað hét eða heitir. Sverrir lét allt flakka og þegar vinur hans Astþór mætti í hljóðstofu var á línunni eng- inn annar en Hall- dórÁsgrímsson utanríkisráðherra. Við hann átti Ástþór ýmislegt van- talað og beindi að honum föstum skotum - hvað hann ætti eiginlega við með sinni herskáu utanríkis- stefnu. Varð fátt um svör hjá Hall- dóri og Ástþór fór úr þættinum harla ánægður með frammistöðu sína - hafði nú heldur betur tekið í lurginn á Halldóri. Það kom síðar á daginn, Ástþóri til mikillar raunar, að Halldór var ekki Halldór heldur Jóhannes eftirherma... • Eins og DV greindi frá í gær, hafa þeir tengdafeðgar, Jón Helgi Guð- mundsson í Bykó og Hannes Smárason í íslenskri erfðagrein- ingu, deilt um kaup Flugleiða á Eimskipafélagsbréfum um daginn. Jón Helgi vissi ekki að Flugleiðir væru að kaupa bréf af Hannesi sjálfum þannig að fyrsti verknaður nýrra stjórnenda væri að _ færa Hannesi ***" næstum 300 millj- ónir króna. DV greindi líka frá því að þeir tengdafeðgar hefðu átt í persónulegri deilum. Allt þetta dregur athygli að athyglisverðum moggaleiðara frá því Flugleiða- kaupin voru kynnt. Þar stóð: „Það er mikil ábyrgð fólgin í því að taka að sér eignarhald á svo stórum hlut í Flugleiðum. Þeir Jón Helgi Guð- mundsson og Hannes Smárason og fjölskyldur þeirra hafa sýnt að þeir eru til þess fallnir að standa undir slíkri ábyrgð.“... • Helgi Magnússon Málningarfor- stjóri keypti í fyrradag stóran hlut í íslandsbanka sem meta má á rnarga milljarða. Hann hefur setið í banka- ráði bankans fyrir lífeyrissjóðinn Framsýn sem seldi Landsbankan- um sinn hlut í bankanum fyrir skömmu. Helgi hefur tengsl við Björgólf enda störfuðu þeir náið saman fyrir mörgum árum þegar Björgólfur var framkvæmdastjóri Hafskips en Helgi endurskoðandi. Báðir hlutu þeir dóma í Hafskips- málinu umtalaða sem lauk í Hæsta- rétti 1991. Þeir sem fylgjast með viðskiptalífinu segja að Málningar- forstjórinn hafi með stórviðskiptun- um í gær hreinlega málað bæinn rauðan... ííSflKlt sm mEKONG t h a i I e n s k matstofQ IlfÉS iBil HWbúoi ♦Matsaman Thailenskur réttur með kjúkling oc steikt í matsamankarrí og salthnetusó^u. ♦Geng Sheo Van Svínakjöt steikt í sætu grænu karrý (sterkt) ♦Pas Síú Hrísnúðlur með kjúklingi, sprengdu eggi og grænmeti ♦Djúpsteiktar rækjur Með súrsætri sósu Kr. 1130 á mann, Kr.2260fyrir 2 1 líter af Pepsi fylgir frítt með. Eingöngu afgreitt fyrir 2 eða fleiri Á höfuðborgarsvæðlnu fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 17:00 til 21:00 Sími: 564 6111 Vílt þú gera glaðan dag í þínu fyrirtaskí eða er veisla framundan? ...Ef svo er, hringdu í okkur á Mekong og vlð aðstoðum þlg með bros á vðr. ♦Paneng Nautakjöt steikt í paneng og kókc (sterkt) ♦Svínakjöt í súrsætri sósu ♦Eggjanúðlur með kjúkling og grænmeti ♦Kao Pád Ped Chillí krydduð hrísgrjón með kjúkling og grænmeti Kr.1000á mann, Kr. 2160 fyrfr 2 1 líter af Pepsi fylgir frítt með. Eingöngu afgreitt fyrir 2 eða fleiri Bæjarfind Opið alla virka daga frá kl. 11:00 til kl. 21:00, lau. 12:00 til 21:00 og sun. frá Id. 17:00 tH kl. 21:00 Sóltún Opið alla virka daga frá kl. 11:00 til kl. 21:00, lokað lau. og sun. Sóitúni 3 105 Reykjavík sími: 562 9060 - Bæjarlind 14-16 200Kópavogi sími: 564 6111 www.mekong.is 8 * Aff 1 ’ : i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.