Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Side 32
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090
SKAFTAHUÐ24 105 REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMISSOSOOO
X
»
~JL
>
»'
• Þórarinn Tyrfmgsson, yfir-
læknir á Vogi, blæs á orðróm
þess efnis að hann
sé að hætta af-
skiptum af áfengis-
vanda þjóðarinnar.
Eftir 29 ára starf
hjá SÁÁ stendur
hann enn keikur í
brúnni á Vogi og
ætlar að halda
áfram: „Það er enn
nóg að gera og ég hef ekkert hug-
leitt að breyta til,“ segir hann ...
• I framhaldi af þessu má geta
þess að á Austurlandi hefur
áfengisvandinn tekið á sig nýja
og áður óþekkta
mynd með tilkomu
erlendra verkamanna
á Kárahnjúkasvæð-
inu. Kaupa þeir upp
allar fáanlegar birgð-
ir af pilsner í verslun-
arferðum sínum til
Egilsstaða. Kemur
þar tvennt til. Pilsnerinn er ódýr-
ari en bjórinn í Ríkinu og hitt að
sjálfum þykir þeim íslenski bjór-
inn of sterkur. í heimalöndum
þeirra flestra er drukkinn alvöru
bjór sem bruggaður er eftir alda-
gömlum hefðum. Er hann ekki
hafður nema 4,25 prósent á með-
an sá íslenski er minnst 5 pró-
sent. Það þykir of sterkt undir
Kárahnjúkum ...
f
■ | m | a*
til lorseta
„Ég er maður syndarinnar,“ segir
Snorri Ásmundsson, myndlistarmað-
ur og forsetaframbjóðandi. Ekki er
langt síðan Snorri lýsti því yfir í íjöl-
miðlum að hann ætlaði að bjóða sig
fram til embættis forseta íslands.
Flestir kannast við Snorra af mynd-
listarsviðinu, þar sem hann hefur náð
langt, en færri vita að hann á að baki
dökka fortíð sem að margra mati gæti
haft áhrif á möguleika hans í kom-
andi kosningum.
,Ætli þetta sé ekki hefðbundin for-
tíð hjá drykkfelldum unglingi," segir
Snorri. „Ég leiddist út í neyslu og er
óvirkur alkóhólisti nú í dag - kominn
í lið með guði eftir afar erfiða upp-
risu.“
Snorri fæddist 13. nóvember 1966
og fékk sinn fyrsta dóm fyrir ölvun-
arakstur 17 ára. Á tíu ára tímabili, frá
1984 til 1994, gekkst Snorri sjö sinn-
um undir dómssátt vegna umferðar-
lagabrota og fimm sinnum vegna
áfengislagabrota. Ferill hans sem
ökumanns endaði svo þann 17. júní
1995 þegar hann ók dauðadrukkinn
um miðbæ Akureyrar - var sviptur
ökuleyfi ævilangt og dæmdur í 35
daga fangelsisvist.
Ári seinna, þann 7. mars 1996, fékk
Snorri sex mánaða fangelsisdóm fyrir
sölu og neyslu á amfetamíni. Hann
var jafnframt dæmdur fyrir að hafa
falsað tékka úú um alla borg en tveir
félagar hans fengu vægari dóma.
„Þetta var skóli sem ég þurfti að
ganga í gegnum og hugsa að ég sé rík-
ari fyrir vikið,“ segir Snorri, sem vinn-
ur nú hörðum höndum við að skipu-
leggja komandi forsetaframboð. „Ég
er löngu búinn að fyrirgefa sjáifúm
mér gamlar syndir og vona að þjóðin
sé tilbúin að taka mig í sátt líka.“
Snorri Ásmundsson forsetaframbjóðandi Maður syndorinnar, aö eiginsögn.
Snorri hefur að undanförnu verið
duglegur við að hjálpa náunganum
og hans helsta fjáröflunarleið er í
formi syndaaflausnarbréfa sem hann
selur fólki.
„Ég er sponsoreraður af guði,“
segir hann. „Hef ekkert að fela og
get staðið fyrir öllu því sem ég hef
gert um ævina." Snorri segir að tími
sé kominn til að þjóðin vakni. „For-
setinn þarf ekki að vera einhver
hvítflibbi sem ekkert hefur gert um
ævina. Hann er maður eins og ég og
þú."
úbbnum
við Gullinbrú
Bjöðumeinniguppá:
■Beinarútsendingar
■ Dansleiki
■Hádegis-og kvöldmatseðíl
■ Poolborð
■ Lifandi tónlist
■Karaoke
KLÚBBURINN
Einnstærstiogflottastiskemmtistadurlandsins
HÍr
ji^s
íSÆl- m
ax 567 3150 - klubburinn@klubburinn.is -www.klubburinn.is