Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1958, Page 38
100
TlMARIT VFl 1958
Föst efni
cellulosa
hemicollulosa
lignin (tréefni)
pek'tin og dálitið
af proteini, fitu
og sterkju,
sem allt er fóður fyrir
jórturdýr og smágróður
(bakteríur og gerla).
Hér tapast því ekkert, allt nýtist. Þótt proteinið náist
ekki allt í safann, þá kemur það að fullum notum með
föstu efnunum.
Hér virðist því vera möguleiki til þess að afla marg-
falt meiri matar, en nú er gert. Eins og nú er, nota
menn aðeins um 100 jurtategundir til matarframleiðslu,
en efnafræðin getur notað mörg hundruð þúsunda, og
hvar sem þær eru í heiminum, og mat þennan er hægt
að framreiða sem brauð, grauta, pillur eða á hvern þann
hátt, sem neytandinn óskar.
Heimildir: Að mestu eftir ..Journal of the Royal Society of
Arts“.
FRÉTTIR
kronor/mónad
Launa'kjör verkfræðinga í Svíþjóð
Meðfylgjandi línurit er tekið úr
launaskýrslu Svenska Mekanisters
Riksförbund fyrir árið 1958 og sýn-
ir meðal mánaðarlaun verkfræðinga
í Svíþjóð eftir starfsaldri í þjónustu
ríkis og einkafyrirtækja. Línuritið
er byggt á upplýsingum 1581 verk-
fræðings um launakjör sín. Eigin
lífeyrissjóðsgjöld verkfræðinga eru
ekki innifalin í línuritinu.
Láta mun nærri, að samsvarandi
laun á Islandi finnist með því að
margfalda sænsku krónurnar með 7.
H. G.
XIII. Alþjóðaráðstefna um atvinnusjúkdóma
og heilsuvemd á vinnustöðum.
Þrettánda alþjóðaráðstefnan um atvinnusjúkdóma,
sem tilkynnt var um hér í blaðinu, 3. tölublaði ’58, verð-
ur haldin í New York, í Waldorf Astoria hótelinu, 25.—
29. júlí 1960.
Framkvæmdanefnd mótsins gefur þeim, er sækja vilja
ráðstefnuna, kost á að leggja fram ritgerðir eða erindi
til birtingar á henni. Dagskráin verður einkum helguð
umræðum um eftirfarandi atriði, sem snerta atvinnu-
sjúkdóma:
1. Tilhögun og stjóm framkvæmda.
2. Lyflækningar.
3. Handlækningar.
4. Fræðsla og þjálfun.
5. Félagsleg og lagaleg sjónarmið.
6. Aðbúnaður og hollustuhættir í umhverfinu.
7. Áhrif umhverfis á heilsuna.
8. Vinnan, lífeðlisfræðilega og sálfræðilega séð.
9. Sérstakar iðngreinar.
10. Almennt.
Þeir, sem óska að birta ritgerðir eða erindi um ofan-
greind atriði, snúi sér til Jóns Sigurðssonar, borgarlækn-
is, Reykjavík, sem gefur allar nánari upplýsingar.
TlMARIT VERKFRÆÐINGAFÉLAGS ISLANDS kemur út elgl sjaldnar en sex sinnum á ári og flytur greinar um verkfræOlle*
efni. Árgangurinn er alls um 100 siOur og kostar 100 krónur, en einstök hefti 20 kr. — Ritstjóri: Hinrlk GuOmundsson. Rlt-
nefnd: Baldur Llndal, Guömundur Bj’Srnsson, Helgi H. Árnason og Magnús Reynir Jónsson. — Útgefandl: VerkfræOingafélag
Islands. — AfgreiOsla tímaritsins er i skrifstofu félagsins á SkólavörOustíg 3 A, Reykjavik. Sími 19717. Pósthólf 646.
STEINDÓRSPRENT H.F.