Akranes - 01.01.1949, Síða 16

Akranes - 01.01.1949, Síða 16
Þóra Ólafsdóttir, Litlateig. sem hann hafi komizt yfir. Þar á meðal þessi Konungshugvekj a. Setskvæði. V eróníkukvæði. Ekkjukvæði. Hann þakkar þeim hjónum fyrir sið- ustu samfundi í Reykjavík og segist senda þeim harðfisk. Jón hefur haft mætur á Bjarna og borið traust til hans. Biður hann oft í bréfum sínum að skila kveðju til hans. 1 bréfi til Guðmundar í Gröf, dagsett í Kaupmanna- höfn 8. mai 1863, segir Jón m. a.: „Ég bið kærlega að heilsa Bjarna á Kjaran- stöðum, og öllum góðum drengjum, sem af alvöru vilja gera nokkuð, en ekki hlaupa eins og svínin út í sjó eða skera nú sig og kindur sínar á háls, þótt þeir eigi að takast þann vanda á hendur að þrífa þær.“ I>að er undursamlega gaman að lesa bréf Jóns Sigurðssonar til hinna ýmsu samstarfsmanna hans í baráttunni fyrir frelsi og framförum landsins á öllum sviðum. Þar er ekkert honum óviðkomandi smátt eða stórt, sem á einhvem hátt getur stutt að þessu megin marki, sem allt líf hans var helgað. Hvernig hann leggur á ráðin um allt. Getur sinnt öllu og gert allt. Allt með kappi, en þó for- sjá hins vitra manns, þar, sem frá hans sjónarmiði ekkert mátti mistakast, heldur samverka að einu og sama marki. 15. april 1869 skrifar Jón Halldóri Kr. Friðrikssyni yfirkennara langt og merki- legt bréf um alþingiskosningar þær, sem þá fara í hönd. Halldór hafði þá verið konungkjörinn þingmaður frá 1865. I þessu bréfi brýnir hann fyrir Halldóri, að reiða sig ekki á endurkjör í þeim her- búðum, heldur vera sér úti um sýslu. 1 þessu bréfi segir Jón m. a.: Borgfirðingar gæti staðið sig við að kjósa þig í stað klerks síns, (hér er átt við sr. Arnljót Ólafsson, sem var þingmaður Borgfirðinga frá 1859- 1869) og ef þú hefðir Jónassen með þér 16 og Bjarna á Kjaranstöðum, værir þú lík- lega viss.“ Séra Arnljótur var ekki kosinn að þessu sinni fyrir Borgarfjarðarsýslu, heldur Hallgrímur Jónsson á Miðteig. Jón hefur fyrst talið Hallgrím vafasaman. Það er of linan í stórátökum. Þó telur hann Hall- grim flokksmann sinn, er hann skrifar þeim 31. maí 1870. Síðar verður minnst á Bjarna Brynjólfs- son í þessum þáttum. Börn þeirra Bjarna og Helgu eru þessi: 1. Brynjólfur, bóndi og skipasmiður í Engey. 2. Helga, kona Níelsar Magnússonar í Lambhúsum. 3. Ólina, kona Ásmundar IMrðarsonar á Háteig. 4. Ólafur, fyrri maður Katrínar Odds- dóttur á Litlateig. 5. Þórunn, kona Sigurðar Stefánssonar, prests og alþingismanns í Vigur. Helga mun eitthvað hafa dvalizt á Ytra-Hólmi, vegna náinnar frændsemi við hjónin. Hún var jafnskyld þeim báðum. Ólafur Stephensen, faðir Helgu og þau prófastshjónin voru öll bræðrabörn. Er sennilegt að þau kynnist þar. Helga mun hafa verið hin mesta mynd- arkona, hyggin stjórnsöm og vel vinnandi. Ekki veit ég, hvort hægt er að segja, að hún hafi verið stolt og stórlát. Hygg þó, að hún hafi íundið til ættar sinnar. Verið þung á bárunni, og þótt illt að láta hlut sinn, eða kom ekki sínu fram. Hún var fyrirmannleg og sópaði að henni. Átti góð föt og klæddi sig ávallt vel. Var ávallt prúðbúin (líka á rúmhelgum dögum) eftir að hún hætti sjálf að fást við búskap. Ólafur Bjarnason, fyrri maður Katrinar. Eftir að Helga missti mann sinn, var hún oftast í Engey á sumrin, en hér á Akranesi á vetrum. Lengst af í Lamb- húsum. Bjarni andaðist á Litlateig 31. júli 1873, en Helga í Engey, 31. des. árið 1900. Hinn 19. október 1877 kvæntist Ólafur Bjarnason, Katrínu Oddsdóttur, prófasts Sveinssonar að Rafnseyri, og konu lians Þóru Jónsdóttur, frá Kópsvatni, (en Þóra giftist siðar Kristjáni bónda Símonarsyni á Innra-Hólmi og Akri á Akranesi). Tóku þau Ólafur og Katrín þá við búi á Litla- teig. Ólafur var afburða duglegur sjó- maður og orðlagður stjórnari. Ólafur, eða skip hans og menn, var eitt af þrem skip- um héðan, sem lentu i hinu svokallaða Hoífmannsveðri í janúar 1884, og það eina, sem komst af — þó nauðulega nálægt Melum í Melasveit. Árið 1886 fluttust þau Olafur og Katrin að Melum i Melasveit, og hófu búskap þar. Mun Olafur hafa verið búinn að fá nóg af sjónum. En það átti ekki fyrir hon- um að liggja að fást lengi við búskapinn. Hann varð skyndilega veikur i útmánuð- um 1887. Var þegar fluttur út að Litla- teig, en andaðist þar 22. marz 1877, á 36. ári. Fæddur 15. nóvember 1851. Ólafur var vel greindur maður, ákaf- lyndur og ötull. tlonum mun hafa þótt illt að láta i „minni pokann.“ Þó naut hann almennra vinsælda, enda drengur hinn bezti. Hann drakk mikið um tíma eins og margii' á Skaga um það leyti. Ekki var hann vondur við vin, og mun hafa haft mikla löngun til að hætta drykkju. Var hann m. a. stofnandi bindindisfélags- ins, er það var stofnað. Hann var og i Æfingarfélaginu og góður liðsmaður þar. Björn Hannesson, seinni maður Katrínar. AKRANES

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.