Akranes - 01.11.1950, Side 21
ANNÁLL AKPANESS
Gjafir og greiðslur til blaðsins,
sem það þakkar innilega.
Frá Jóni Þorvarðarsyni prófasti í Vík 150 V.r.
Valtý Þorsteinssyni útgerarm. Akureyri f. 194.0
og ’go, 100 kr. Ágúst Jósefssyni fyrrv. heilbrigð-
isfulltrúa Rvik, f. 1950, 50 kr.
Til Bjargar Gísladóttur.
Frá frú Ástu Hallsdóttur, áheit 100 kr.
Frá S. H. B. 2000.00 kr.
Hinn nýi barnaskóli
var vigður með mikilli viðhöfn hinn 19. nóv.
síðastl. Frá þvi verður nánar sagt í næsta blaði
Forsíðumynd
á siðasta blaði, er af nýlegu listaverki Einars
Jónssonar, er hann nefnir „Þorkell Máni“. Einar
yrkir enn í leirinn hinar dásamlegustu myndir nf
hugmyndaauðlegð sinni og miklu speki. En hve-
nær Verður þessum listaverkum hans „bjargað'
i varanlegt efni?
Maður stór-slasast
Ágúst Sigurðsson frá Nýlendu varð fyrir al
varlegu slysi við uppskipun um borð í Bjaruu
Ölafssyni hinn 9. nóvember, er blökk bilaði og
datt ofan á Ágúst, með þeim afleiðingum, að höf-
uðkúpan brotnaði og dalaðist á fleiri stöðum. 4
rif brotnuðu og auk þess hruflaðist hann mikið á
baki. Þetta ógurlega áfall varð þess valdandi að
hann lamaðist í fótum.
Það er undravert að maðurinn skyldi ekki láta
lífið þegar i stað. Ágúst var þegar fluttur til
Reykjavikur á spitala. Honum liður ótrúlega vel
eftir atvikum. Hann mun um 15 desember geta
aðeins farið að klæðast. Hugsanlegt er að hann
verði eitthvað vinnfær, þótt það eigi nokkuð langt
í land.
Ágúst er hraustmenni, meira en í meðallagi, að
þola slikt sem hér hefur verið lýst. Það er sjálf
sagt mjög óvanalegt.
Aflaskýrsla
til og méS 8. des 1950.
Aðalbjörg ............................ 167595
Bjarni Jóhannesson ................... 234895
Ásbjöm ............................... 308900
Ásmundur ............................. 221865
Böðvar ............................... 277945
Farsæll ............................. 243660
Fram ................................. 149315
Fylkir ................................ 85525
Haraldur .............................. 19745
Hrefna ............................... 270160
Keilir ............................... 345700
Sigrún ............................... 148300
Sigurfari ............................ 217550
Sveinn Guðmundsson ................... 349435
Svanur ............................... 326730
Valur ................................. 3792o
Guðmundur Þorlákur.................... 230220
Ólafur Magnússon ......,............. 156075
Fanney ................................ 12340
Gotta ................................. 23730
Samtals 3827605
Kaupendur aflans:
H. B. & Co. Frystihúsið ............ 237490
sami Niðursuðan ............... 81845
sami Saltað ................. 1716600
Heimaskigi h.f...................... 130425
Fiskiver h.f. F.A................... 162960
sami Saltað .................. 694430
Ásmundur h.f. Saltað ............... 472035
S. F. A............................. 331820
Samtals 3827605
Gamall siður orðinn nýr.
Þau merku tiðindi hafa gerst hér, að Gagn-
fræðaskóli Akraness hefur nú nýlega tekið upp
þann gamla góða sið að lesa bæn og syngja sálm
— til að byrja með — á hverjum mánudagsmorgni.
Þetta hefur þegar verið gert nokkrum sinnum,
og virðist þegar gefa góða raun og fara vel og
virðulega fram. Slikar helgistundir munu gera
hverjum skóla mikið gagn, og er ef til vill það
sem marga skóla vantar, til þess að geta talist
uppeldisstofnanir, i þeirri merkingu sem leggja
á í það orð.
Einhvem annan dag vikunnar er svo hugsað
að byrja með því að helga ættjörðinni sérstaklega,
og syngja þá ættjarðarljóð.
Eftir áramótin mun þessi ágæti siður að likind-
um verða tekinn upp i bamaskólanum hér lika.
Afli og afrakstur.
Hér hefur verið liflegt og mikil vinna eftir
að togaraverkfalls-vitleysunni létti. Allur karfi af
Bjama Ólafssyni hefur verið flakaður, en Karls-
efni og Oranus hafa lagt sinn afla upp í bræðslu
í verksmiðjuna hér. En auk þessa, hafa bátamir
fiskað og lagt hér upp mikla sild, til söltunar,
frystingar og til útflutnings isvarða.
Gagnvart afrakstrinum skiptir það miklu máli,
hvort fiskurinn er fullunninn til útflutnings eða
hann er seldur úr landi sem hálfgert hráefni, það
sést bezt hér á þessu hausti, því fremur sem t. d.
karfinn er seldur fyrir mikið verð og eftirsóttasta
gjaldeyri. Er augljóst mál hvert axarskaft það
hefur verið og ábyrgðarleysi, að stöðva togarann
frá þessum veiðum í allt sumar. Héðan af þýðir
ekki að sakast um það, en það ætti að get orðið
holl leiðbeining í framtíðinni, að láta ekki henda
slíka heimsku og þursahátt.
Sildveiðin hér sunnanlands hefur mikið bætt
úr hallærinu fyrir norðan í sumar, og um það
sem hér hefur áunnist er ekkert í óvissu, því allt
er það selt fyrir erlendan gjaldeyri eða vörur
sem hingað jiarf að kaupa.
Eg hef reynt að gera mér grein fyrir afrakstri
aflafanga fyrir bæjarfélagið í heild, en það er
í stórum dráttum sem hér segir:
Síldaraflinn er nú kominn yfir 40 þúsund tunn-
ur, og mun fersk-verð hans því nema um 3,2
millj. kr., jiar af fellur til skipverja um 1,6 millj.
Af þessari síld hefur verið saltað til útflutnings,
rúml. 20 jiúsund tunnur. Mun láta nærri að sölt-
unarlaun og allur annar kostnaður við hverja
tunnu, nemi sem næst 50 kr., eða samtals ca.
1 millj. kr. Að auki er svo öll vinna við frystingu
beitusíldar og við ísun í skip til útflutnings, en
til Þýzkalands var liéðan sendur 1 skipsfarmur
af ferskri síld, á vegurn Haraldar Böðvarss. & Co.
Otflutningsverðmæti saltsíldarinnar hér frá
Akranesi mun nema rúmum 6 millj. króna.
Karfinn.
B.v. Bjarni Ólafsson hefur stundað karfaveiðar
frá 24. okt. og hafði fiskað til 8. des. s.l. um
1380 tonn, en megin hluti aflans var frystur til
sölu á bandariskan markað. Fyrir þennan afla
fær skipið sem næst kr. 672.300.00. Þótt þessar
veiðar séu frekar á veiðarfæri og ýmsan kostnað,
eru þær sjálfsagt mun tryggari nú heldur en
hinar vafasömu siglingar með isfisk á erlendan
markað.
Það er þá heldur enginn smávegis auka gróði
sem meta má bæjarbúum til viðbótar, meðan afl-
inn er unninn á jiennan hátt. Allar afurðir karf-
ans eru nú í háu verði, flökin, lýsið og mjölið.
Þannig mun nú hægt að selja mjöltonnið fyrir
47 sterlingsp. f.o.b. og karfalýsi fyrir 110 sterl-
ingsp. f.o.b.
Vinnulaun í sambandi við karfavinnsluna hefur
fram til 8. desember verið sem hér segir:
Haraldur Böðvarss. & Co., rúmar . . 200.000.00
Heimaskagi h.f. rúml........... 100.000.00
Fiskiver h.f........................... 94.000.00
Sildarverksmiðjan um .................. 79.000.00
Eða samtals kr. 473.000.00
Hér hafa svo að segja allir bæjarbúar verið
uppteknir við, karlar og konur. Ekki aðeins lausa-
konur eins og sagt var í gamla daga, heldur ung-
ar stúlkur, nýgiftar konur og eldri húsmæður.
Þessi mikla vinna hefur ekki farið framhjá nein-
um, nema þá helzt blessuðum bílstjórunum.
Hjónabönd;
4. nóv. Jón Sigurðsson Jónsson, netagerðarmað-
ur, Vesturgötu 37, og Guðrún Karitas Alberts-
dóttir, ungfrú, Kirkjubraut 21.
25. nóv. Bjami Halldór Egilsson, trtésmiður,
Skólabraut 23, og Petrina Salóme Gisladótti’r, ung-
frú, s. st.
25. nóv. Óskar Ásmundur Jónsson, bilstjóri
Skagabraut 7, og Helga Jóna Sveinsdóttir, ung-
frú s. st.
Sr. Jón M. Guðjónsson gaf saman.
Dánardægur:
2. okt. Jón BrancLsson, bóndi í Vík i Innra-
Akraneshreppi. Hafði búið þar í 2 ár. Var lengi
í Hafnarfirði og stundaði sjó.
25. okt. Gunnar Bjarnason, Vesturgötu. Fædd-
um 13 júní 1895 á Sandhólaferju í Ásahreppi.
Kvæntur Helgu Sigurðardóttur frá Þaravöllum.
Átti um mörg ár við ólæknandi sjúkdóm að striða.
11. nóv. Þorsteinn HafliSason, sjóm., Skóla-
braut 8. Fæddur 25. maí 1906 í Bergsholstskoti
Staðarsveit. Ókvæntur. Dó á sjúkrahúsi i Rvik.
17. nóv. Áslaug Sigvaldína Egilsdóttir, Jaðar
braut g. Fædd 31. marz 1891 í Mýrarkoti á Bæjar-
klettum í Hofshreppi í A.-Húnavatnssýslu. Ekkja,
bjó lengi með manni sinum á Sauðárkróki. Flutt-
ist til Akraness 1945.
Kolaleysi
er nú mikið í bænum, þar sem skipi því sem
koma átti hingað með kol hefur seinkað mjög
mikið. Ekki lækkar kolaverðið við að sækja þau
til annarra staða.
Hvað var fallegt við hana?
Konan: —- skelfing glápir þú á mig núna, mað-
ur. Þú ert þó ekki vanur að gefa mér hýrt auga
í seinni tið.
MaSurinn: — Ég er að brjóta heilann um það,
hvað það eiginlega hafi verið, sem mér þótti fal-
legt við þig, þegar ég bað þín.
141
AKRANES