Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004
Fréttir DV
Leikari gegn
snjóflóða-
vörnum
Pálmi Gestsson, leikari
og Bolvfldngur, gagnrýndi
fyrirhugaðar snjóflóðavarnir
í ræðu á 30 ára afmælishátíð
Bolungavíkurkaupstaðar
fyrir nokkru síðan: „Látum
það ekki spyrjast að við
eyðileggjum heilu fjöllin
okkar í þeim misskilda til-
gangi að vernda nokkur hús.
Gefum heldur fólkinu okkar
raunverulegan kost: að
byggja aftur eða flytja húsin
á öruggan stað í bænum, því
af þeim eigum við nóg, eða
flytja á brott með reisn,"
sagði leikarinn góðkunni.
Ræða hans er birt á vef-
miðlinum vikari.is.
Benz-stríð
Ræsir missti um daginn
samning sinn við Daimler
Chrysler - umboðsaðila
Mercedes Benz bifreiða. í
kjölfarið kviknuðu raddir
um að mercedes.is myndi
næla sér í samninginn.
Hjörtur Jónsson, einn
eiganda Mercedes.is, segir
viðræður standa yfir við
Daimler Chrysler en ekkert
sé staðfest í augnablikinu.
Eignarhald á
fjölmiðlum?
Runólfur Agústsson Rektor
Viðskiptaháskólans á Bifröst.
„Ég er á móti óþarfa afskipt-
um ríkisvaldsirts afatvinnulífi
eða fjölmiölum! Löggjafanum
er hins vegar rétt og skylt að
setja almennan ramma um
starfsemi á markaði til að
tryggja eðlilega og heilbrigða
samkeppni. Besta skrefið í
þeim efnum á fjölmiðlamark-
aðnum væri að frelsa rlkisút-
varpið undan pólitlsku valdi,
t.d. þannig að því yrði breytt I
óháða sjálfseignarstofnun þar
sem saman færu fjárhagsleg
ábyrgð og faglegt sjálfstæði. “
Hann segir / Hún segir
„Sllkar reglur eru til mjög víða,
meðal annars I Evrópu og
Bandaríkjunum og eru geröar
til að tryggja frelsi fjölmiðla.
Ég tel að setja eigi slíkar reglur
hér á landi til að tryggja frelsi
fjölmiðla og til að upplýsinga-
miðlun til almennings sé
óháð. Þróunin slðustu misser-
in bentir til þess að þörfsé á
sllkum reglum hér á landi."
Asta Möller Varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Umdeilt gjaldfellingarákvæði í skuldabréfum bílalána torveldar fólki að skipta um
tryggingarfélag. Steingrímur Stefnisson leitaði álits lögfræðings sem sagði að það
væri ekki fótur fyrir slíku samningsákvæði.
Eg hélt að það væri
frjáls samkeppni á
mm
Stelngrímur Stefnlsson Maður verður
að vekja atygli á svona löguðu.
Sagði upp tryggingu -
var refsað með uppsögn láns
„Ég ákvað að skipta um tryggingarfélag þegar mér voru gerð til-
boð sem lækkuðu útgjöld mín um allt að fjörutíu prósent. En þar
sem ég er með bílalán hjá Vátryggingafélagi íslands (VÍS) verð ég
að gera það upp áður en ég flyt mig milli félaga," segir Stein-
grímur Stefnisson, veitingamaður í samtali við DV.
Hann segist hafa haldið að það
væri frjáls samkeppni á trygginga-
markaðnum. „En til að geta skipt
um tryggingarfélag verð ég sam-
kvæmt þessu að taka lánið af bfln-
um eða borga fjörutíu prósent
hærri tryggingar."
Innanhússreglur
Hann hefur undanfarin tíu ár
verið með tryggingar sínar hjá VÍS
en hugðist skipta um félag til að
lækka útgjöld sín. „Það stendur
ekkert um þetta í samningnum og
þegar ég leitaði álits hjá lögfræðingi
sagði hann að það væri enginn fót-
ur fyrir þessu, lögum samkvæmt
væri þetta ekki hægt nema maður
væri í vanskilum við félagið. Þegar
ég benti þeim hjá VÍS á þetta var
sagt að þetta væru innanhússregl-
ur. Lögfræðingurinn ráðlagði mér
að fara með tryggingarnar annað en
færa ekki lánið. Það er ekki eins og
þeir séu að gefa okkur lánin, ég hef
staðið í skilum, borgað af mínu
láni, vexti og verðbætur. Maður
verður að vekja athygli á svona lög-
uðu,“ segir Steingrímur. Þessa dag-
ana er hann að skoða tilboð frá öðr-
um tryggingarfélögum en það
tryggingarfélag sem Steingrímur
hugðist flytja sig til er ekki með
neina lánastarfsemi.
Skriflegur samningur
„Það er gjaldfellingarákvæði í
skuldabréfi bflaláns sem er skrifleg-
ur samningur," segir Helgi M. Bald-
vinsson, deildarstjóri lánadeildar
VÍS. „Það er kvöð í skuldabréfi sem
kemur fram í texta þess, ef viðkom-
andi er ekki með bflinn ábyrgðar- og
kaskótryggðan hjá okkur, má gjald-
fella skuldabréfið. Þetta stenst alveg
samkvæmt lögum. Þú mátt í sjálfu
sér setja hvaða skilyrði sem er inn í
skuldabréf eða samning sem þú
býrð til. Það er svo undir hverjum og
einum, hvort hann gengur að þeim
skilyrðum sem þar eru.
Guðmundur Sigurðsson hjá
Samkeppnisstofnun vildi ekki tjá sig
um þetta einstaka tilfelli að órann-
sökuðu máli.
En aldrei er of oft kveðið: Lestu
allt vel og vandlega áður en þú skrif-
ar undir, þó það taki þig árið!
Gáleysisleg ummæli Jónasar
Valda skjálfta í Hæstarétti
Rannsókn lokið á dauða Vaidasar
Líkfundarmál til
ríkissaksóknara
Samkvæmt heimildum DV hefur
lögreglan í Reykjavík formlega lokið
rannsókn líkfundarmálsins og sent
niðurstöður sínar til Rfldssaksókn-
ara. Það embætti hefur nú fáeinar
vikur til að ákvarða framhald máls-
ins.
Fastlega má búast við ákærum á
hendur Grétari Sigurðarsyni, Jónasi
Inga Ragnarssyni og Tómasi Mala-
kauskas vegna andláts Vaidas
Jucevicius og meðferðarinnar á líki
hans, en óvíst verður að teljast hvort
og þá hverjir verða ákærðir vegna
fíkniefnanna í maga hins látna. Bú-
ast má við þingfestingu málsins í
héraðsdómi í lok maí og að mál-
flutningur hefjist næsta haust.
„Þetta er byggt á misskilningi. Ég
lét þessi orð falia í samtali við blaða-
mann DV en til umræðu var hversu
lítið fsland er þegar allt kemur til alls.
Meira að segja hefði einn dómarinn í
málinu setið í stjórn Listasafns ís-
lands. Ekki var eina mínútu efast um
hæfrú Garðars til að dæma í málinu,
enda hefði það þá verið sett fram ef
svo hefði verið,“ segir Jónas Freydal.
Jónas segir að ef sá misskilngur sé
viðvarandi muni hann með glöðu
geði biðjast afsökunar á þessum um-
mælum sínum.
Hæstiréttur sendi frá sér yfirlýs-
ingu vegna umfjöllunar DV um mál
ákæruvalds á hendur þeim Pétri Þór
Gunnarssyni og Jónasi í því sem
nefht hefur verið Stóra málverkaföls-
unarmálið. í myndatexta segir að
Jónas haldi því ffam að einn dómar-
anna, Garðar Gíslason, hafi verið í
stjórn Listasafhs íslands þegar þrjú af
verkunum sem í málinu eru vom
keypt.
„Af þessu tilefni vill Hæstiréttur ís-
lands taka fram að af hálfu ákærða var
hvorki í munnlegum málflutningi né
á annan hátt haldið ff am að umrædd-
ur dómari væri vanhæfur til meðferð-
Jónas Freydal Segir ummæli sin gáleysis-
leg. Garðar hafi verið formaður safnráðs
Listasafns íslands til ársins 1992 en elsta
verkið sem Listasafn Islands áogerl málinu
er hins vegar frá árinu 1994.
ar málsins. Það skal sérstaklega tekið
ffam að Hæstiréttur telur að dómar-
inn hafi ekki þau tengsl við atvik
málsins að til vanhæfis geti leitt.“
Jónas segir að samkvæmt upplýs-
ingum sinum hafi Garðar verið for-
maður safhráðs Listasafns íslands til
ársins 1992. Elsta verkið sem Lista-
safn íslands á og er í málinu er hins
vegar ffá árinu 1994. „Þetta hljóta því
að teljast gáleysisleg ummæli hjá
mér,“ segir Jónas Freydal sem nú bíð-
ur dóms Hæstaréttar-.