Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 24. APRtL 2004
Fréttir J3V
Tvö nýtilfelli
Heilbrigðisráðuneyti
Kína staðfesti í gær að tveir
hefðu greinst með
bráðalungnabólgu og grun-
ur léki á að tveir til viðbótar
hefðu smitast. Fimm
manns eru í einangrun í
landinu og grannt fylgst
með tugum manna.
Bráðalungnabólgunnar
hefur ekki orðið vart í
nokkurn tíma en á síðasta
ári létust 774 úr sjúkdómn-
um og ríflega átta þúsund
manns veiktust.
Þrír Palest-
ínumenn
myrtir
ísraelskar hersveitir
drápu í gær þrjá Palestínu-
menn á Vesturbakkanum.
Alls hafa 25 Palestínumenn
látið líflð í átökum síðan
leiðtogi Hamas, Rantisi, var
veginn í síðustu viku. Að
sögn ísraelshers voru þre-
menningarnir eftirlýstir
hryðjuverkamenn. Heim-
ildir hermdu jafnframt að
fjórði maðurinn hefði kom-
ist undan og þar hafi verið
á ferð foringi AI Aqsa píslar-
vottanna.
Tuair létust í
eldhafinu
Talið er að 54 hafi látist
ogríflegatólfhundruð ■
manns hafi slasast þegar
tvær eldsneytislestir rákust
saman í Norður-Kóreu í
fyrradag. í fyrstu var talið að
fjöldi látinna væri mun
meiri en lögregla á svæðinu
telur að fórnarlömbin kunni
að vera fleiri. Gríðarlegir
eldar kviknuðu við árekstur-
inn og misstu tæplega tvö
þúsund fjölskyldur heimiii
sín. Rúmiega sex þúsund
íbúðarhús eru mikið
skemmd eftir eldsvoðann.
Steypustöðin lokar sand- og malarnámu sinni á Kjalarnesi. Bifreiðaeigendur hafa
oft lent í stórtjóni vegna sand- og malarfoks á þessum slóðum. Hannes Sigurgeirs-
son hjá Steypustöðinni segir að gengið verði frá svæðinu í samræmi við umhverf-
isstefnu fyrirtækisins en bendir á að þarna séu fleiri opin svæði sem fokið geti af.
Sandnámur Steypustöðin hefur
ákveðið að loka sand- og malar-
námum smum á Kjalarnesi
Steypustöðin hefur ákveðið að loka sand- og malarnámum sín-
um á Kjalarnesi og er nú unnið á fullu við að ganga frá svæðinu.
Bifreiðaeigendur hafa oft lent í stórfelldu tjóni og dæmi um að
bílar hafi komið grjótbarðir undan verstu hviðunum þegar
stormurinn stendur niður Esjuna. Hannes Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Steypustöðvarinnar, segir að gengið verði frá at-
hafnasvæði fyrirtækisins í samræmi við umhverfisstefnu þess en
bendir jafnframt á að þarna séu fleiri opin svæði eftir aðra aðila
sem fokið geti af. Því sé vandamálið enn til staðar þótt Steypu-
stöðin hætti vinnslu sinni.
tryggingarfélögunum," segir Sum-
arliði. „Og fyrir einhverjum árum
reyndi einn bifreiðaeigandi mál-
sókn gegn Steypustöðinni en í dómi
var fyrirtækið sýknað af kröfu
hans.“
„Ég hef mikla samúð með þeim
bifreiðaeigendum sem lent hafa í
slæmum tjónum þegar vindhvið-
urnar eru sem verstar. Ég hef sjálfur
lent í tjóni vegna sandfoks á jök-
ulsöndunum á Suðausturlandi,"
ségir Hannes. „Og það er ekki hægt
að fá tryggingar gegn þessum tjón-
um eins og flestir vita."
Sumarliði Guðbjörnsson, deild-
arstjóri hjá
bifreiðatjónadeild Sjóvá, segir að
þeim berist að jafnaði á annan tug
fyrirspurna á ári hverju frá bifreiða-
eigendum sem lent hafa í tjónum
vegna sand- eða malarfoks á þess-
um vegkafla á Kjalarnesinu. „Fok á
lausum jarðefnum er undanskilið
frá kaskótryggingu þannig að þessi
tjón eru ekki bætt af
Vecjurinn færður
I máli Sumarliða kemur einnig
fram að á síðasta áratug var aðal-
vegurinn um svæðið færður frá því
að liggja fyrir ofan athafnasvæði
Steypustöðvarinnar og liggur nú
fyrir neðan svæðið. Það hafi gert
þetta vandamál verra. Dæmi séu
um að tjón bifreiðaeigenda geti
hlaupið á hundruðum þúsunda
króna, það er að í sumum tilvika
hefur þurft að sprauta viðkom-
andi bíl upp
á nýtt og skipta um rúður í honum.
Hannes Sigurgeirsson segir að
Steypustöðin muni kaupa sitt efni
annarsstaðar frá nú eftir að námun-
um hefur verið lokað. Hann útilok-
ar þó ekki að þær verði teknar í
notkun aftur í framtíðinni, sérstak-
lega ef stór vegagerðárverkefni
koma upp á höfuðborgarsvæðinu.
„Á meðan munum við ganga frá
svæðinu eins vel og unnt er. En það
er alveg sama hve vel við göngum
frá eftir okkur, vandamálið hverfur
ekki fyrr en öllum þessum opnu
sárum í hlíðinni hefur verið
lokað," segir Hann-
es.
Gömul skjöl úr Víetnamstríðinu um forsetaframbjóðanda demókrata grafin upp
Öskrað inn
um bréflúgu
í morgunsárið á sumar-
daginn fyrsta var kvartað
undan ölvuðum manni
sem var að kalla inn um
bréfalúgu íbúðarhúss á
Suðurnesjum. Lögregl-
an í Keflavík fjarlægði
manninn og kom hon-
um til síns heima. í hádeg-
inu var maðurinn síðan
kominn aftur á ferðina og
lét dólgslega í verslun
nokkurri og urðu lögreglu-
menn þá að taka hann aft-
ur úr umferð og fékk hann
að sofa úr sér áfengis-
vímuna í fangaklefa á lög-
reglustöðinni í Keflavík.
John Kerry drap 20 íVíetnam
um mönnum að fara í land og ganga
frá óvininum. Sjálfur hljóp hann einn
þeirra uppi og drap.
Þetta er aðeins ein af mörgum
hetjusögum um John Kerry úr
Víetnamstríðinu en í umræddum
skjölum eru honum eignuð 20 dráp á
óvinahermönnum. John Kerry særð-
ist þrisvar þegar hann var í Víetnam
og var sendur heim eftir síðustu
meiðslin. Honum voru veittar nokkr-
ar orður fyrir störf sín í hemum
þ.á.m. svokallaða Silfiirstjörnu,
Bronsstjömu auk þriggja Purple
Heart-viðurkenninga. Þegar hann
sneri svo aftur til Bandaríkjanna tók
hann virkan þátt í mótmælum gegn
stríðsrekstr-
inum og var
einn helstu
andstæðinga
stríðsins í
Víetnam.
JoJm Kerry, forsetaframbjóðandi
Demókrataflokksins í Bandaríkjun-
um fyrir komandi forsetakosningar,
drap 20 óvinahermenn þegar hann
gegndi herþjónustu í Víetnam. Þetta
ér meðal þess sem ffam kemur í
skjölum úr Víetnamsm'ðinu sem nú
hafa verið grafin upp. í skjölunum
kemur fram að þótt hann hafi ekki
gegnt herþjónustu lengi hafi hann á
þessum stutta tfma sannað að hann
hafði allt sem góður yfirmaður þarf
að hafa og rúmlega það.
Kerry var í fimm mánuði árið 1969
yfirmaður á litlu herskipi í Víemam
sem varð oft fyrir árásum óvina. í eitt
skiptið var gerð árás á Kerry og félaga
Kerry ásamt undirmönnum John Kerryer
sagður hafa drepið 20 manns í Vietnam.
frá árbalcka eins fljótsins í Víetnam og
lenti handsprengja ekki nema þrjá
metra ffá Kerry. Hann skipaði þá sín-