Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 24. APRlL 2004 Fókus 0V Það hefur verið frekar hljótt um vinsælasta rappara heims, Eminem, undanfarna mánuði. Síðustu daga hefur sú þögn verið rofin með nýja D12-laginu, My Band, en í því gera þeir félagar grín að þeirri stöðu sem myndast þegar einn meðlimur hljómsveitar er miklu frægari en hinir... Trausti Júlíusson hlustaði á nýju D12-plötuna, D12 World, sem er væntanleg í verslanir út um allan heim eftir helgina. Emmemniætiur aftu d) Kr3 (§ 1] r...."i D-12 stendur fyrir Dirty Dozen. Þao 6 meðlimir í bandinu sem hver og é er með sitt aukasiálfó + 6- 12... Þe eru \: * momsffin * Bizarre (Rufus Johnson). Hann þyl einn afþeim klikkaðri þegar hann karakter að rappa, en er víst alveg ói lega prúður og rólegur efþú hittir hann þar fyrir utan. Hann er lika meölimui Outsidaz. Bizarre gafút sina fyrstu sólóplötu, EP-plötuna Attack OfThe . Weirdos árið 1997. Hann hefur lika ver- ið þekktur undir nöfnunum Bizarre Kid, Idiotic Bizarre og The Fabulous Bizzarn- ey Rubble. * Kon Artis (Deníne Porter). Hann er pródúserinn i D12. Hann lærði fagið hjá mönnum eins og JayDee úr Slum Villa- ge og Dr. Dre. Hann er að verða einn af heitustu pródúserunum i hip-hop heiminum eftir að hann gerði P.I.M.P. fyrir 50 Cent og Stunt 101 með G-Unit. Hann er að vinna lög fyrir næstu plötur Dr. Dre, Snoop Dogg, Method Man og Bilal. Áðuren þeir byrjuðu að rappa saman unnu Kon Artis og Eminem saman á pizzastaðnum Gilbert's Loun- ge. Kon Artis var efnilegur i körfubolta, en hætti eftir að hann fékk skot í fótinn. * Proof (DeShaun Holton). Hann ólst upp nátægt Eminem, en gekk i annan skóla. Þegar þeir voru unglingar laum- aði Proof Eminem inn i sinn skóla til þess að hann gæti battlað við skólafé- lagana hans. Proofer snillingur i spunaflæði (freestyle). Hann vann freestyle-keppni tímaritsins The Source árið 1999. Það var Proofsem fékk hug- myndina að D12 nafninu árið eftir. Proofsat nýlega inni fyrir óspektir og drykkjulæti á fatafellustað i úthverfi Detroit. Hann ernúá skilorði og var dæmdur til að sækja AA-fundi... * Kuniva (Von Carlisle). Hann varásamt Kon Artis i hljómsveitinni Da Brigade. Kuniva er herramaðurinn i bandinu. Hann ersérstaklega vinsæll hjá kven- þjóðinni. Hann er eini meðlimur D12 sem á ekki barn. *Swift (Ondre Moore). Hann var siðast- ur til að ganga ÍD12, tók við afBugz eftir að sá siðarnefndi dó afskotsárum sem hann fékk í garðveislu árið 1998. Hann var áður i hljómsveitinni Rabeez sem var á samningi við BMG. * Eminem (Slim Shady) ersvo sjötti maðurinn. Hann þarfekki að kynna. Eminem ferá kostum I My Band-mynd- bandinu. Það vekur athygli að í þvi kemur hann enn eina ferðina fram í kvenmannsfötum. Áður var hann m.a. búinn að klæða sig upp sem Britney Spears og sem mamma hans, en nú er hann I hlutverki leikkonunnar Jessicu Alba og afar kynþokkafullrar súludans- meyjar... D-12 Viðbrögðin við nýja laginu, My Band, hafa verið gríðarleg. Lagið setti sölumet á Hot Digital Tracks-iistanum serr\ mælir mest seldu lögin á netinu. Yfir 20 þúsund manns keyptu lagiö fyrstu vikuna. „Hann hjálpar okkur að koma hlutunum frá okkur,“ segir Kon Artis, einn af meðlimum hljómsveitarinnar D12 um langfrægasta meðlim sveitar- innar, Eminem, „Hann er þannig ná- ungi að það er sama hvað kemur fyrir, þetta snýst alltaf fyrst og fremst um sanna vináttu." Eins og kunnugt er brást Eminem ekki gömlu félögunum í hljómsveit- inni D12 þegar hann sló í gegn. Hann gerði plötuna Devil’s Night með þeim og gaf út hjá plötufyrirtækinu sínu Shady Records árið 2001. Sú plata seldist í fjórum milljónum eintaka og innihélt smellina Shit on You og Purple Pills. Önnur plata sveitarinnar, D12 World, kemur út á mánudaginn. Æskufélagar frá Detroit D12 er skipuð Eminem, Bizarre, Kon Artis, Swift, Kuniva og Proof. Þeir eru ailir frá Detroit og kynntust í æsku. Þeir byrjuðu að rappa saman og battla þegar þeir voru unglingar. Þeg- ar þeir fóru að taka þátt í rímnaflæði- keppnum í Hip-Hop Shop-klúbbnum þá tóku þeir eftir því að flestir rappar- arnir voru meðlimir í einhverju krúi og ákváðu þá að stofna sitt eigið krú. Upphaflega var Bugz sjötti maðurinn í hljómsveitinni, en eftir að hann var skotinn í garðveislu og dó af sárum sínum var Swift tekinn inn í bandið í hans stað. Eftirlifandi meðlimir D12 hafa samt alls ekki gleymt Bugz. Þeir eru allir með nafnið hans tattóverað á sig og lagið Good Die Young á nýju plötunni fjallar um hann. D12 gerðu 10 laga EP-plötu árið 1997 sem aldrei var gefin út, en eins og áður segir kom fyrsta platan þeirra, Devil’s Night út vorið 2001. Síðan hafa þeir ferðast töluvert og haldið tónleika og svo ver- ið að vinna í sitthvoru lagi... Óþolandi söngstjarna í stráka- bandi Fyrsta smáskífulagið afD12World, My Band, er þegar komið í mikla spil- un, bæði á útvarpsstöðvum og á tón- listarsjónvarpsstöðvunum. í laginu er Eminem í hlutverki óþolandi aðal- söngvara í strákahljómsveit. Hann er aðalmaðurinn sem fær alla athyglina (og grúppíurnar) og er mjög ánægður með þá stöðu, en hinir meðlimirnir vita ekki almennilega hvort þeir eigi að vera brjálaðir og kála honum eða að reyna hanga sem mest utan í hon- um tÚ þess að fá smávegis af sviðsljós- inu. Eminem er auðvitað langfrægasti meðhmurinn í D12 og sumt í My Band minnir á stöðuna í D12, en í staðinn fyrir að vera í klessu yflr þessu þá taka þeir þetta bara á húmornum. Viðbrögðin við My Band hafa verið gríðarleg. Lagið setti sölumet á Hot Digital Tracks-listanum sem mælir mest seldu lögin á netinu. Yfir 20 þús- und manns keyptu lagið fyrstu vik- una. Það sló þar með út fýrra metið sem var 16 þúsund eintök, en það átti Hey Ya! með OutKast... Kominn tími til að gera eitt- hvað brjálað! Það eru fáir gestarapparar á D12 World, enda varla þörf á því þegar þú ert með sex rappara í hljóm- sveitinni. Obie Trice kemur samt við sögu í laginu Loyalty og sjálfur B-Real úr Cypress Hill kemur ffam í laginu American Psycho II sem Dr. Dre pródúserar. Bæði eru á meðal bestu laga plötunnar. Það er 21 lag á D12 World. Þar á meðal má nefna Get My Gun sem fjallar um náunga sem grípa til byssunnar af minnstu ástæðu, titil- lagið D12 World sem heitasta hip-hop stjarna ársins 2004, Kanye West, pródúserar, I’ll Be Damned sem Kon Artis pródúserar, en það lag er að hans sögn gert í anda gömlu Detroit fönk-meistaranna George Clinton og Larry Graham og Just Like U sem er eitt af skemmtilegri lögunum á plöt- unni, en þar er Bizarre í hlutverki föð- ur sem er að reyna að útskýra fyrir syni sínum að það sé kannski ekkert sniðugt að hann feti í fótspor pabba (sem er auðvitað slæpingi, dópisti og tugthúslimur). Auk Eminem, Kon Art- is, Dr. Dre og Kanye West pródúsera Hi-Tek, Trackboyz, Night & Day, Red Spyda og Sick Notes lög á plötunni. Þeim gagnrýnendum, sem hafa þegar skrifað um plötuna, ber saman um að D12 World sé töluvert fjöl- breyttari og skemmtilegri plata en Devil’s Night. Kunivaer sammála því: „Fyrsta platan var bara upphitun, á nýju plötunni var kominn tími til að gera eitthvað brjálað!” Siðustu vikur hafa allir helstu hip- hop-fjölmiðlar vestanhafs verið fullir af umræðum um gamlar upptökur með Eminem sem komu upp á yfir- borðið nýlega og sem hatursmenn hans segja að sanni aðhann sé fullur af kynþáttafordómum og kvenfyrir- litningu. Timaritið The Source, sem er frægasta hip-hop tímarit sögunnar, er fremst í flokki þeirra sem ráðast að honum. Marsbiað þess er að miklu leiti helgað málinu og einn afstofn- endum og eigendum biaðsins, rapp- arinn Benzino, héit nýiega blaða- mannafund þarsem hann spilaði tóndæmi til að sanna málið. Og hvað er'svo málið? Jú, einhvers staðar á þessum upptök- um sem eru frá 1989 rappar Eminem um „niggaratikur" (Nigga Bitches). Þetta brot á að sýna að Eminem sé rasisti og ýmis þekkt nöfn úr hip-hop- heiminum hafa lýstyfir vanþóknun sinni, t.d. Suge Knight, Irv Gotti og Mack 10 úr Westside Connection. I The Source er líka takað um að Eminem sé i raun eins og Elvis, hann hafi stolið menningu svartra. Questlove trommari The Roots tekur málið fyrir á heimasiðunni sinni. Hann segist taka þessa umræðu álika alvarlega og „jólasveininn eða páskakanínuna". Hann minnir á að lce Cube rappaði einu sinni„kick that bitch in the tummy" (sparkaðu i mall- ann á tlkinni) og þá sagði enginn rappari neitt. Questlove segir að þetta sé sennilega frekar örvæntingarfull tilraun til að selja blöð heldur en að þetta komi hip-hop menningunni nokkuð við. Og hann bætir við:„EfThe Source hefði áhuga á að bjarga hip- hop-menningunni þá mundu þeir setja eitthvað almennilegt eins og DeadPrez og Talib Kweli á forsið- una"... Kannski rétt hjá honum. Nú i vikunni bárust þær fréttir að The Source ætti i mjög alvarlegum fjárhagsörðugleik-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.