Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Page 30
r
30 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004
Fókus DV
0
V
það sé einfaldlega tækni hjá Kára
Stefánssyni að gera sér upp skap-
vonsku? Það er kannski hvorki aðdá-
unarverð aðferð í mannlegum sam-
skiptum né æskileg. En það þarf ekki
að rista djúpt og þetta getur líka bara
verið aðferð til að prófa viðmæland-
ann. Hann sé bara að mæla einhver
viðbrögð hjáfólki."
En Páil flýtir sér að bæta við að
skapferli forstjórans hafi aldrei
pirrað sig þessi misseri hjá deCode,
enda sjaldan orðið fyrir hinni róm-
uðu skapvonsku.
Eftir fjölmiðlaharkið er önnur
vist daufleg
Eftir þessar lýsingar á farsælu
samstarfi þeirra Kára hlýt ég að
spyrja hvað hafi eiginlega orðið til
þess að Páll hætti hjá honum og fór
aftur á Stöð 2.
„Ja, mér var eiginlega bara boðin
draumastaðan," segir hann. „Mér
fannst ég enn eiga ýmislegt ógert í
sjónvarpi og útvarpi og bauðst þá
þetta starf sem sameinaði flest það
sem mig langaði til að gera. Svo ég
sló til. Hiuti af því er líklega sú stað-
reynd að þegar maður er búinn að
vera í þessu fjölmiölaharki nánast
alla starfsævina, þá ... ja, hvernig á
að orða það? Þá skemmist maður
svoh'tið, held ég. Manni finnst óneit-
anlega að flest annað virki sem held-
ur daufleg vist og grámuskuleg. öll
„venjuleg" vinna verður frekar lit-
laus í samanburðinum."
Svo bætir hann reyndar við - og
glottir - að sú vinna sem feli í sér dag-
leg samskipti við Kára Stefánsson
verði að vísu seint talin „venjuleg".
„En það er samt frekar ógnvæn-
„Hver veit nema það sé einfaldlega tækni hjá Kára Stefánssyni að gera sér upp skapvonsku?“
starfað í nokkur ár sem yfirmaður
upplýsingamála hjá íslenskri erfða-
greiningu. Páll var á dögunum ráð-
inn framkvæmdastjóri dagskrár-
sviðs Norðurljósa og Stöðvar 2-
menn gripu tækifærið til að láta
hann lesa fréttirnar líka. Og það er
fleirum en Páli sjálfum sem finnst að
þá sé allt orðið aftur eins og það á að
vera. Hann hefur í gegnum árin ver-
ið einn ástsælasti fréttaþulur lands-
ins og undirrituð getur vottað það
sjálf að hafa óstjórnlega tilhneigingu
til að trúa og treysta hverju orði sem
hann segir.
Hann brosir örlítið þegar ég játa
það fyrir honum.
„Ég vona að ég hafi hagað minni
fréttamennsku þannig á sínum tíma
að fólki hneigist frekar til að trúa
við Edda Andrésdóttir að lesa saman
fréttirnar hjá Ríkissjónvarpinu þegar
Ingvi Hrafn Jónsson var þar frétta-
stjóri. Svo samstarf okkar Eddu er
orðið langt og farsælt. Við vorum
aðalþulir RÚV um tíma en 1986 kom
svo Jón Óttar Ragnarsson til sög-
unnar með Stöð 2 og fékk mig til að
setja saman nýja fféttastofu. Og það
gerði ég og las fréttirnar sjálfur sjö
kvöld vikunnar meðan stöðin og
fréttastofan voru að koma undir sig
fótunum. Árið 1990 varð ég fram-
kvæmdastjóri framleiðslusviðs', sem
kallað var, og er reyndar svipað starf
og ég gegni í dag, en hélt áfram að
lesa frétdmar. Svo varð ég forstjóri
íslenska útvarpsfélagsins 1991 en
árið 1994 fór ég í sjálfskipaða údegð
frá fyrirtækinu. Þá varð mikið upp-
árið 1996. Og gamla fréttamanns-
hjartað tók aftur kipp og ég lét til
leiðast. Svo ég hef sem sagt verið hjá
Stöð 2 lungann úr minni starfsævi."
Það var árið 2000 sem Páll hætti
öðru sinni hjá Stöð 2 og réði sig til
íslenskrar erfðagreiningar þar sem
hann kallaðist framkvæmdastjóri
samskipta- og upplýsingasviðs og
sá um öll samskiptamál fyrirtækis-
ins bæði inn á við og út á við. Mér
leikur forvitni á að vita hvernig
honum lynti við Kára Stefánsson
forstjóra en það eru varla nein tíð-
indi að sögur ganga um að hann
eigi til að vera heldur erfiður í um-
gengni. Ég hef sjálf lent í Kára einu
sinni og hann hótaði að skvetta yfir
mig vatni af því ég þvældist eitt-
hvað fyrir honum.
ég hef ekki yfir neinu að kvarta í
samstarfinu við Kára. Það var bæði
heilt og heiðarlegt. Kári er auðvitað
ekki allra en það er ég ekki heldur,"
segir Páll yfirvegað.
Hann riíjar upp vísu sem faðir
Kára, Stefán Jónsson fréttamaður,
ord um fyrsta fréttastjóra Ríkissjón-
varpsins, séra Emil Björnsson:
Séra Emil giftir og grefur
glatt er íhimna ranninum.
Eru á ferli úlfur og refur
feinum ogsama manninum.
„Kári er náttúrlega maður ekki
einhamur," bætir Páll síðan við. „Og
það er alkunna að fólk kemur sér
upp ákveðinni framhlið í mannleg-
um samskiptum. Hver veit nema
Það hefur ekki farið framhjá neinum að
Páll Magnússon er siiúinn aftur á Stöð 2
og les fréttirnar af meira öryggi en
nokkru sinni fyrr. í viðtali við DV talar
hann um endurkomuna, lífið með Kára
Stefánssyni, drykkjuskapinn og sextugs-
aldurinn sem nálgast óðfluga.
„Ég held það hafi verið þriðja eða
fjórða daginn eftir að ég fór aftur að
lesa fréttirnar núna síðast. Þá var ég
sestur við hliðina á Eddu rétt iyrir
útsendingu og ég fann að ég var eitt-
hvað annars hugar. Svo varð mér lit-
ið á hana, hún svona fín eins og
alltaf, nema þá þyrmir allt í einu yfir
mig einhvern veginn. Og þeirri
hugsun laust niður í höfuðið á mér
hvort ég hefði kannski aldrei farið
neitt. Er ég búinn að vera hér allan
tímann? Var mig bara að dreyma
þetta deCode-mál? Að ég hefði
gengið þarna út fyrir þremur árum
og farið að vinna hjá Kára Stefáns-
syni? Þetta var afar sérkennileg til-
finning, og furðu sterk. Það var allt
eins og þegar ég fór síðast frá fýrir-
tækinu: sama settíð, sama tækni-
fólkið, sömu upptökustrákarnir, og
Edda sú sama. Og ég, ég var líka sá
sami. Allt í einu fannst mér eins og
þessi þrjú ár sem ég hafði verið í
burtu væru alls ekki raunveruleg,
þau gufuðu upp og ég hafði alltaf
verið þarna. Þetta var einhvers kon-
ar deja vu, og dálítið óþægilegt með-
an á því stóð. En svo hrökk ég út úr
þessu, Edda brosti til mín og ég fann
að þetta var allt í lagi. Ég hafði verið
í burtu en nú var ég kominn aftur. Á
heimaslóðir, ef maður vill taka svo
til orða. Og fféttastefið byrjaði og
það var aftur allt eins og það átti að
vera."
Þannig lýsir Páll Magnússon
endurkomu sinni í fréttalesturinn á
Stöð 2 en þar er hann aftur sestur við
hlið Eddu Andrésdóttur eftir að hafa
mér heldur en rengja mig,“ segir
hann. „Ég held annars að fólk geti
borið með sér ákveðinn trúverðug-
leika án þess að hægt sé að mæla
það eða útskýra. Trúverðugleikinn
er bara þarna og enginn veit eigin-
lega af hverju. Vonandi finnst fólki
að ég beri með mér þennan trúverð-
ugleika og það segir þá kannski ein-
hverja sögu ef mér hefur ekki tekist
að grafa neitt að ráði undan hon-
um.“
Sjálfskipuð útlegð frá Stöð 2
Þetta segir hann kankvís. En um
leið svo traustvekjandi á svip. Það er
reyndar engin tilviljun að fólk trúir
fremur þeim sem eldri eru. Stóru
stöðvarnar útí í heimi hanga eins og
hundar á roði á þeim eldri frétta-
mönnum og fréttaþulum sem þær
hafa góða reynslu af. Páll samsinnir
því og nefnir Dan Rather hjá CBS
sem er langt genginn á áttræðisald-
urinn en stýrir enn fréttaþættinum
60 mínútum samhliða því að hafa
lesið fréttirnar áratugum saman.
„Væntanlega til að gefa þeim
þætti þann trúverðugleika sem
hann hefúr sem fréttaþulur," segir
Páll.
Stelpu eins og mér finnst hún
hafa alist upp með Páli Magnússyni;
hann hefur verið í sjónvarpinu frá
því ég man eftír mér. Ég bið hann að
rekja stuttlega feril sinn og það kem-
ur í ljós að hann byrjaði í blaða-
mennsku árið 1979.
„Svo byrjaði ég í sjónvarpi 1982
og þremur árum seinna byrjuðum
nárn innan fyrirtækisins, og deilur
og djöfulskapur innan eigendahóps-
• „ u
tns.
Eigendur Stöðvar 2 eins og
hundar og kettir
Páll hristir höfuðið þegar hann
rifjar upp þessa tíma.
„Það var einfaldlega óþolandi
staða að reyna að vera forstjóri í fyr-
irtæki þar sem eigendurnir slógust
eins og hundar og kettir og maður
vissi aldrei á hverju var von ffá ann-
að hvort meirihlutanum eða minni-
hlutanum í stjórninni. Ég fór þá aft-
ur í blaðamennsku um tíma en ári
seinna var ég beðinn að koma aftur
og setjá sjónvarpsstöðina Sýn á lagg-
irnar. Ég gerði það og svo var ég beð-
inn að taka aftur við fréttastofunni
Samstarfið við Kára
Stefánsson
Það er ekki laust við að smá bros
kvikni hjá Páli þegar ég spyr hvort
Kári sé sá skaphundur sem hann er
orðlagður fyrir að vera.
„Við áttum mjög gott samstarf,
við Kári," segir hann. „Ég hef náttúr-
lega unnið með alls konar karakter-
um gegnum tíðina svo ég er ýmsu
vanur. Galdurinn í mannlegum
samskiptum er að finna réttu sam-
skiptaleiðirnar, sérstaklega milli yf-
irmanns og undirmanns. Það þarf
að finna landamærin milli manna
og síðan þurfa báðir að þekkja þau
og .virða. Ég og Kári fundum þessi
landamæri fljótlega. Auðvitað geta
verið heilmikil átök í byrjun, þegar
menn eru að læra hver á annan, en
Fréttaþulur fslands Páll Magnússon
snýr aftur, betri en nokkru sinni fyrr:
éH