Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Page 43
DV Fókus
LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 43
Sr. Örn Bárður Jónsson Vill rvýti
safnaðarhelmilið i Neskirkju betur.
Á sunnudaginn eftir viku verður sr. Sigurður Árni Þórðarson settur í embætti
sóknarprests við Neskirkju í Reykjavík, við hlið sr. Arnar Bárðar Jónssonar. Þeir
félagar hyggjast bjóða upp á ýmis nýmæli í safnaðarstarfinu, m.a. að elda upp úr
sjálfri Biblíunni.
„Það er mikið talað um mat og
krydd í Biblíunni," segir sr. Sigurður
Árni, verðandi prestur í Neskirkju,
„og hugmyndin er að nýta sér nýja
safnaðarheimilið til matargerðar-
lestra úr Biblíunni, menningar- og
matreiðslunámskeiða. Við hyggj-
umst kalla til sérfræðinga og áhuga-
menn á þessum sviðum, fræðast af
þeim, ræða texta og innihald, elda
úr Biblíunni og snæða saman. í
stórmörkuðum og sérverslunum
má nú orðið fá flest sem nauðsyn-
legt telst til eldamennskunnar." Sr.
Sigurður Árni segist ekki efast um
áhuga safnaðarmeðlima í 101 og
107 á fornri matargerðarlistinni,
„enda hefur töluvert verið skrifað
um hana á undanförnum árum og
af nógu af taka. Okkar bíður eigin-
lega ærinn starfi."
Matreiðslan í Biblíunni
Ein þeirra sem lagt hafa sig eftir
matargerð eftir Biblíunni er ísraelsk
blaðakona, Ruth Keenan. Fyrir
nokkrum árum kom út í Frakklandi
bók hennar „La cuisine de la Bible“
um matargerðarlistina í hinni helgu
bók. Þar kynnir hún til sögunnar
ýmsa rétti sem hún hefur þefað
uppi, einkum úr gamla testament-
inu. Hún leitaði þó víðar fanga,
kynnti sér sögu akuryrkju og land-
búnaðar, inn- og útflutning fyrir
Miðjarðarhafsbotni fyrir margt
löngu, segist enda fremur
sækja sér innblástur í gamla
testamentið en uppskriftir.
Samson og Dalíla
ísraelsmenn áttu forð-
um í erjum við Fílistea
ættaða norðan úr Litlu-
Asíu en þeir höfðu sest
að á strandlengjunni
meðfram Miðjarðarhafs-
strönd í Kaanan á 13. öld
fyrir okkar tímatal. Ein
borga Fílistea var Askalon
og þar varð hetjan Samson
ástfanginn af stúlku.
Fílistear voru ekki hrifnir af
því sambandi, höfðu af hon-
um konuna og var Samson
illur út í þá síðan.
Ekki löngu
síðar féll
hann
fýrir Dalílu en hana fengu Fflistear
til að svíkja Samson fyrir silfursjóð;
komast að leyndarmálinu um styrk-
leika hans, sem bjó í hárinu. f Dóm-
arabók gamla testamentisins segir:
„En hún svæfði hann á skauti sínu
og kallaði á mann og lét skera hár-
lokkana sjö afhöfðihonum. Oghún
tók að þjá hann, en afi hans var frá
honum horfið. Þá sagði hún: „Filist-
ar yfir þig Samson!" Þá vaknaði
hann af svefninum og hugsaði: Ég
slepp í þetta sinn sem hin fyrri og
slít mig lausan! En hann vissi ekki,
að Drottinn var vikinn frá honum. “
Andabringur í hun-
angs- og vínsósu
Ruth Keenan telur tæl-
ingu Dalílu á Samsoni
ekki síst hafa falist í mat-
argerðarlist. Pakksaddur
og vær af víni hafi hann
hvílt í skauti hennar, þrátt
fyrir að hún hefði svikið
hann nokkrum sinnum
áður. Ruth Keenan telur
ekki útlokað að Dalfla hafi
fært Samsoni andabring-
ur í hunangs- og vínsósu
með grænu salati og
kapers-
berjum í
sinneps-
°g
ediksósu. Dalfla hefur staðið góða
stund yfir pottunum þann dag og
Ruth Keenan reiknar með að upp-
skrift hennar hafi verið eitthvað á
þessa leið:
3 andabringur (tæplega kg.)
salt og grófmalaður hvítur pipar
sósa:
250 ml. rauðvín
100 ml. kjúklingasoð
1 matskeið hveiti
1 matskeið hunang
1/2 teskeið sinnepskorn
salt og pipar eftir smekk
Dalfla hefur steikt andabring-
urnar á pönnu sinni við góðan hita í
um 10 mín., eða þangað til húðin
var næstum brennd. Þá hefur
hún snúið þeim við og steikt
þær á hinni hliðinni í 2 mín.
Svo hefur Dalfla tekið bring-
urnar af pönnunni, stráð á
þær salti og pipar og haldið
þeim heitum í ofni meðan
hún sneri sér að sósunni.
Hún hefur byrjað á að
henda andafitunni sem eftir
varð á pönnunni en skellt
pönnunni svo á eldinn, hellt
víninu út á og ef eitthvað af
kjöti hefur fest við pönnuna
hefur hún skrapað það laust
með hnífi. Dalfla hefur
sennilega látið vínið sjóða
niður um þriðjung og þá
bætt í það 50 ml. af
kjúklingasoði.
Hveitið hef-
ur hún
Sr. Sigurður Árni Þórðarson
„Mikið afmatog kryddi i Bibiíunni." I
svo sett út í afganginn af soðinu og
hrært kekklaust og steypt því út á
pönnuna og hrært mikinn. Síðast
hefur hún sett sinnepskornin og
hunangið og bragðbætt með pipar
og salti. Dalfla hefur soðið þetta við
vægan hita í um mínútu, þá tekið
fram andabringurnar, skorið þær í
þunnar sneiðar, raðað þeim á fat og
hellt sósunni yfir. Með þessu hefur
hún borið fram salat, nokkrar teg-
undir grænar, saman. Hent á þær 50
gr. af kapersberjum og öðru eins af
t.d. ristuðum furuhnetum. Salatolíu
hefur Dalfla lagað úr því sem sam-
svarar matskeið af sinn-
epi, 100 ml. af ólífuolíu,
teskeið af hunangi og
salti eftir smekk. Út í hef-
ur hún sett 20 gr. af smátt
söxuðum kapersberjum
og eitt kramið hvítlauks-
rif. Hrært vel og dreift yfir
salatið. Og þetta stóðst
Samson ekki, át og drakk
yfir sig, sofnaði, missti
máttinn svo Fflistear
fengu unnið á honum. Af
því má draga þá ályktun
að þennan rétt má laga ef
mikið stendur til.
rgj@dv.is
Ör þróun í
fornleifa-
fræðinni
„f framtíðinni hverfum við
sennilega frá sögustöðum til
flóknari rannsóknarspurn-
inga,“ segir Adolf Friðriksson
fornleifafræðingur, „hættum
að leita að landnámsárinu en
hugum að framvindu land-
námsins, hvemig fólkinu
reiddi af.“ Adolf er meðal
frummælenda á málþingi um
fornleifafræði sem hefst í dag
ld. 13:30 í öskju - náttúm-
fræðahúsi HÍ. „Þróunin í ís-
lenskri fornleifafræði hefur
verið ákaflega ör síðustu ár,
mikið hefur verið grafið og
kortlagt. Úr því þarf að vinna.
Þar að auki þurfa fornleifa-
fr æðingar hreinlega að ná átt-
um, hefja naflaskoðun og átta
sig á árangri fornleifarann-
sókna hér á landi ffá upphafi
fram á okkar daga.“ Adolf segir ^
og að á síðustu ámm hafi mikil
áhersla verið lögð á að innleiða
hér nýja tækni við fornleifa-
rannsóknir og að bæta að-
ferðafræðina. „Almenningur
og stjórnvöld hafa sýnt störf-
um okkar mikinn áhuga enda
mikið verið grafið og sérhæf-
ingin alltaf að aukast. Nýnem-
ar í fornleifafræði við HI geta
nú valið um sérsvið; tileinkað
sér fommeinafr æði í beina-
rannsóknum, forngripafræði
og fornvistfræði svo nokkuð sé
nefnt.“ Ritið - tímarit Hugvís- *
indastofnunar gengst fyrir
málþinginu og þingstjórar
verða Jón Ólafsson og Svan-
hildur Óskarsdóttir.
Biblíuleg matreiðsli handa
lífsnautnafólki í Neskirkju
r