Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Page 45
DV Fókus
LAUGARDAGUR 24. APRlL 2004 45
a McDonalds
Eurovision-stjarnan verðandi
Jón Jósep Snæbjörnsson, betur
þekktur sem Jónsi, söngvari hljóm-
sveitarinnar í svörtum fötum, fagn-
ar því nú að smáskífan Heaven með
framlagi fslendinga í keppninni í ár
er komin út. Af þessu tilefni ætlar
Jónsi að skella sér á McDonalds við
Suðurlandsbraut í dag til þess að
árita gripinn fyrir áhugasama. Nú
styttist óðum í að keppnin í Tyrk-
landi fari fram og í byrjun næsta
mánaðar mun hópurinn halda út til
undirbúnings. Undanúrslitakeppn-
in fer fram þann 12. maí en íslend-
ingar taka ekki þátt í henni þar sem
Birgitta Haukdal tryggði okkur ör-
uggt sæti í úrslitum með góðri
frammistöðu í fyrra. Úrslitin fara
svo ffam þann 15. maí og að sjálf-
sögðu verður öllu sjónvarpað beint
á RÚV. Jónsi verður 17. keppandi á
svið, þar mun hann klæðast fötum
frá Gallerí 17 og dansa eftir upp-
skrift Selmu Björns.
Söngkonan
Beyonce Know-
les hefur það í
hyggju að
sleikja sólina í
sumar. Til þess
að verða ekki
trufluð af fjöl-
miðlum og
geta sprangað
um berbrjósta
hefur hún
ráðið til sín
lítinn her
sem sam-
anstendur af
15 kyn-
þokkafullum
tvíförum
hennar. Hún hefur verið elt af pap-
arazzi-ljósmyndurum þegar hún
hefur legið berbrjósta í gegnum U'ð-
ina og vill fá að vera í friði. Ef íjöl-
miðlar ætla að ná af henni myndum
verður þeim sjálfsagt starfið erfitt
þar sem hún og herinn munu dreifa
sér vítt og breytt um svæðið.
Undanfarin ár hafa stelpurnar verið að láta meira til sín taka
á hjólabrettum, snjóbrettum, brimbrettum og öðrum svokölluð-
um jaðaríþróttum. Linda Björk Sumarliðadóttir og vinkonur
hennar vilja samt að stelpurnar verði duglegri í því að keppa
og halda þess vegna hjólabrettanámskeið fyrir stelpur í dag.
„Við viljum að stelpur séu virkari
í þessum íþróttagreinum sem
flokkast undir jaðarsport og þess
vegna stofnuðum við sérstakt
brettafélag fyrir stelpur," segir
Linda Björk Sumarliðadóttir sem
ætlar að kenna þeim stelpum sem
áhuga hafa grundvallaratriðin á
hjólabretti í dag. „Það er fullt af
stelpum sem eru t.d. á brimbrett-
um, snjóbrettum, hjólabrettum og í
ísklifri en svo þegar það á að halda
mót þá er eins og þær þori ekki að
taka þátt. Það voru t.d. nokkrar
stelpur skráðar til leiks á íslands-
mótinu í snjóbrettum en svo þegar
kom að keppninni sjálfri voru sum-
ar sem létu ekki sjá sig. Þetta er eitt-
hvað sem við viljum að breytist,"
segir Linda. „Þetta hjólabrettanám-
skeið sem haldið verður í dag er lið-
ur í þessu. Stelpurnar eiga oft erfitt
með að byrja innan um strákana
sem eru í miklum meirihluta
brettafólks og þess vegna er tilvalið
að halda sérstakt námskeið fyrir
þær,“ segir Linda og
bætir því við að alltaf
séu fleiri og fleiri stelpur
að bætast í hópinn. „Við
vinkonurnar erum fimm
til sex sem stundum
þetta reglulega, svo veit
maður um einhverjar
fleiri og það er alltaf að
bætast í hópinn. Við vilj-
um bara að þær taki
meiri þátt og verði sjáan-
legri." Þegar hafa bretta-
stelpurnar haldið svo-
kallað skatesession þar
sem veitt voru verðlaun
fyrir bestu frammistöð-
Stelpurnar eiga oft
erfítt með að byrja
innan um strákana
sem eru í miklum
meirihluta bretta-
fólks og þess vegna
er tilvalið að halda
sérstakt námskeið
fyrirþær,
Lilja Rut KrljtJínidóttir Mun ásamt
Lindu Björk hatda hjólabrettanám-
skeiö fyrirstelpur ídag við Nikita-
rampinn i Ármúla.
una. Til stendur að halda
fleiri slíkar uppákomur og jafnvel
mót fyrir kvenkynsbrettafólk lands-
ins. Allar stelpur sem hafa áhuga á
hjólabrettum eru því hvattar til að
mæta á námskeiðið í dag en það
mun hefjast kl. 14 við Nildta-hjóla-
brettarampinn að Ármúla 17b, fyrir
neðan Júdófélag Reykjavíkur. Nám-
skeiðið mun standa í fjóra tíma og
þar verður farið í helstu undir-
stöðuatriði hjólabrettalistarinnar.
Það kostar ekld nema 1000 kall að
vera með og allar nánari upplýsing-
ar má nálgast á netinu á slóðinni
www.bigjump.is.
Nashymingur
nauðgar bíl
Safaríferð nokkurra Breta tók óvænta stefnu
þegar nashymingur réðst að bQnum sem fólkið
var í og reyndi að hafa mök við hann. Atburður-
inn átti sér stað í Safarigarði á Bretlandi. Fólkið
hafði gert sér glaðan dag í dýragarðinum og
stöðvaði bifreið sína við tvo nashyminga til þess
að taka af þeim myndir. Nashymingarnir,
Sharka og Trixie, vom í mökunarhugleiðingum
þegar fólkið bar að garði en þegar Sharka sá bfl-
inn missti hann skyndilega áhugann á Trixie og
sneri sér að bflnum. Hinn tólf ára gamli nas-
hymingur skellti sér á bflinn
og hóf mökunarhreyfingar á
meðan fólkið reyndi að átta
sig á því hvað væri að gerast.
„Þetta er ekkert smá dýr og
okkur brá talsvert þegar hann
lagðist utan í bílinn. Ég kom
bílnum þó aftur í gang fljót-
lega og bmnaði burt,“ segir
Dave AJsop bflstjóri „fórnarlambsins". Sam-
kvæmt upplýsingum frá dýragarðinum mun
Sharka vera sérlega vinsæll meðal kvennashyrn-
inganna og er hann meðal annars faðir tveggja
kálfa sem fæðst hafa í garðinum á síðustu fimm
árum.
Stjörnuspá
Eva María Jónsdóttir sjónvarpskona er
33 ára í dag. „Hún er fær
um að komast í snert-
ingu við hið eilífa andar-
tak ef hún veitir andar-
drætti sínum nánari eftir-
tekt og tekur meðvitað
eftir því hvernig hann
flæðir. Hún býr yfir öfl-
ugum mætti sem hún
er fær um að nota til
að þjóna mannkyn-
inu," segir í stjörnu-
spá hennar.
Eva María Jónsdóttir
M
VY Vatnsberinn (20.jan.-i8. febr.)
\f\j
Þú átt það til að vera óút-
reiknanleg/ur og oftar en ekki einu
skrefi á undan öllum. Frelsi og sjálf-
stæði á vel við þig en þú kýst hér að
vera frjáls eins og loftið eða vindurinn.
Hér kemur að sama skapi fram að þú
kýst ekki að vera bundin/n af ábyrgð
eða skyldum.
(19.febr.-20.mm)
Ljúktu við verkefni sem þú
hefur látið sitja á hakanum allt of lengi.
Atburðir sem virðast hafa átt sér stað í
fortíð þinni virðast há þér í dag.
CV5 Hrúturinn (21.mars-19.aprii)
Sköpunargáfa þín kemur að
góðu gagni en þú átt það til að reyna
að breyta fólkinu í kringum þig eftir
þínu höfði og ættir að huga frekar að
sjálfinu í stað þess að einblína á náung-
ann. Hér er þér að sama skapi ráðlagt
að yfirvinna sem fyrst eigingirni þína,
kæri hrútur.
Ö
Nautið (20. apríl-20. mai)
Gættu þess vel að hafa gott
jafnvægi í kringum þig sem skapar
harmónískt umhverfi. Hvorki flýta þér
né leita stöðugt að fljótustu leiðinni við
það sem þú aðhefst hverju sinni.
Þú ert fær um að njóta ávaxtanna af erf-
iði þinu ef þú hægir á þér.
I Tvíburamir ;?i. mai-21.júni)
: ‘ Þú ættirað að undirbúa þig
fyrir fegurð framtíðar sem birtist hér á
sama tíma og hlutverk þitt breytist af
einhverjum ástæðum.Veraldlega völd
segja eingöngu til um falskt öryggi,
hafðu það hugfast i framtíðinni.
Krabbinngi .júní-22.júli)
Hér kemur fram að þú átt ekki
í vandræðum með að mynda góð sam-
bönd og kannt einnig að rækta þau.
Jl
Ljóniðþj./ií//-27.íjiw
Lærðu að meta þig að verð-
leikum en það virðist þurfa að minna
þig á það endrum og eins.
Tl$
Meyjan (23. ágúst-22. septj
Stígðu skref fram á við, í stað
aftur til baka. Þú ættir að læra af fyrri
reynslu og byggja sjálfið upp. Dagarnir
framundan verða ánægjulegir svo
sannarlega ef þú ætlar þér það.
o (23.sept.-23.okt.)
Næsta vika sýnir mikla gleði
þar sem nýjar fréttir berast stjörnu vog-
ar. Hér kemurfram að þú ættir að vera
fær um að greina betur á milli stærri og
minni ákvarðana sem þú virðist standa
frammi fyrir um þessar mundir.
ni
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0vj
Þú býrð sannarlega yfir ein-
stæðum hæfileikum sem þú getur not-
að eins og þér sýnist. Þér er ráðlagt að
leita að hærra sjálfinu sem býr innra
með þér ef þú aðeins hlustar og hug-
leiðir.
/
Bogmaðurinno2n<íi'.-2j.<fe.j
Stjarna bogmanns einkennist
hér af göfugleika. Einhver spenna býr
jafnvel í brjósti þér þessa dagana og þú
ættir að nýta þér hana til góða.
z
Steingeitinp2.fc-/9.janj
Frá upphafi hefur þú haft
stjórn á því hvert þú ætlar þér og hverja
þú kýst að umgangast. Þú ættir að
halda mjög fast í sjálfstraustið og trúna
á getu þína næstu sjö daga af einhverj-
um ástæðum.
SPÁMAÐUR.IS^
4