Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 Síðast en ekki síst DV Rétta myndin Hundar á palli. Miðinná1200 krónur Ha? Aðgöngumiðaverð í Bláa lónið vekur furðu sumra sem þangað koma. Heilar 1200 krónur fyrir einn miða og er verðið farið að slaga upp í miðaverð á sæmilegum tónleikum í Laugardalshöll. Ráðist hefur verið í miklar endurbætur og framkvæmdir í Bláa lón- inu sem á móti kölluðu á hækkað aðgöngumiðaverð. Gestir Bláa lónsins í fyrra voru 320 þúsund talsins og er staðurinn því orðinn einn mest sótti ferðamannastaður landsins og gefur Gullfoss og Geysi ekkert eftir. Utlendingar eru 70 pró- sent gesta en íslendingar 30 pró- sent. Sé aðgöngumiðaverð margfald- að með gestafjölda síðasta árs hefur Bláa lónið velt 384 milljónum króna á síðasta ári. Forráðamenn lónsins taka þó fram að margskonar tilboð séu í gangi og börn greiði ekki nema tæplega helming af verði fullorð- inna. Aðstaðan í Bláa lóninu er nú allt önnur og betri en áður þó legg- ja mætti meira upp úr þrifum og til- tekt í búningsklefum. Þar mundu tvö stöðugildi skipta sköpum. Bláa Lóniö Erað sláGullfoss og Geysi út. • Sjálfstæðismenn hafa verið dug- legir við að finna sínum mönnum vinnu. Nú heyrist um það talað að til standi að sá fallni þingmaður Vil- hjálmur Egilsson, ráðuneytisstjóri sj ávarútvegsráðu- neytisins, verði ^Jærður um set og gerður að ráðu- neytisstjóra fjármála í stað Baldurs Guðlaugssonar sem yrði færður til Alþingis. Friðrik Ólafsson skrif- stofustjóri er að komast á eftir- launaaldur og hugmyndin er sögð sú að Baldur setjist í stól hans... Síðast en ekki síst • Ríkisstjórnin á nokkuð erfitt upp- dráttar í umræðunni. Stuðnings- menn hennar hafa áhyggjur af því aðherferð Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra gegn JóniÁsgeiri Jó- hannessyni virðist vera hans eina pólitíska markmið. Innan Fram- sóknarflokksins er hrollur í mönn- um vegna þessa en fæstir þora að æmta þar sem nú styttist óðfluga í að HalldórÁsgríms- son nái því mark- miði lífs síns að verða forsætisráð- herra. Þetta vita Sjálfstæðismenn og valta yfir fram- sóknarmenn í hverju málinu af öðru vitandi að stjórnarslit hugnast mörgum Sjallanum betur en sjá for- ingjann niðurlægðan sem fagráð- herra.... • Trú Vestfirðinga á ríkisstjórnina fer minnkandi þótt stuðningsmenn hennar hafi haft hljótt um sig. Á valdatíma Davíðs Oddssonar hefiir Vestfirðingum fækkað gríðarlega svo nú blasir við með sama fram- haldi að þorp legg- istaf. Guðnajó- hannessyni, leið- toga Framsóknar- ^flokks í meirihluta bæjarstjórnar, virðist nóg boðið því hann hefur nú lýst opinberlega eftir aðgerðum stjórnarinnar og segir Davíð og fé- laga hvorki hlusta á Vestfirðinga né vinna fyrir þá.. HANN ER FYRRVERANÖIFAN6I 06 ÞAÖ VITA ALLIR AO FANSAR KUNNA At> 6RAFA 6ÖN6 - ÞAB FYLSIR NAFNBÓTINNI Ástþóp á Thorvaldsen Neitaöi að borga reikninginn og lenti í löggunni Arnar Gfslason rekstrarstjóri Hringdi i lögregluna þegarÁstþór neitaði að þorga. „Þetta sýnir bara að ég læt ekki ganga yfir mig - maður ber fólk ekki sjálfur heldur hringir í lögregluna," segir Ástþór Magnússon forseta- frambjóðandi. Að kvöldi sumar- dagsins fyrsta sat Ástþór að drykkju með Natalíu Wium, eigi'nkonu sinni, og systur hennar á Thorvaldsen bar. Þegar reikningurinn kom neitaði Ástþór að borga og á endanum varð að kalla á lögregluna. „Ég bað sjálfur um að lögreglan yrði kölluð til því reikningurinn var svimandi hár,“ segirÁstþór. „Eftir að löggan mætti á svæðið kom leiðrétt- ur reikningur og að sjálfsögðu greiddi ég hann.“ Ástþór segir eigendur Thorvald- sen Bar mega skammast sín fyrir að málin þurfi að ganga svona langt. Reikningurinn hafi augljóslega verið rangur og enginn svindli á Ástþóri Magnússyni. Arnar Þór Gíslason, rekstrarstjóri Thorvaldsen Bar, hefur aðeins aðra sögu að segja. „Sannleikurinn er sá að Ástþór hélt því fram að reikning- urinn væri rangur," segir Arnar. „Eg fór sjálfur yfir reikninginn og komst að því að Ástþór hafði rétt fyrir sér - það vantaði þrjú glös upp á!“ Arnar segir að í framhaldi af því hafi eiginkona Ástþórs skammast sín svo mikið að hún hafl boðist til að borga reikninginn sem hljóðaði upp á 11.150. Það hafi þó ekki verið næg heimild á kortinu nema fyrir 6000 krónum. „Ástþór sat hins vegar fastur við sinn keip og neitaði að borga 5000 krónurnar," segir Arnar. „Hann sagði mér annaðhvort að henda sér út eða hringja á lögregluna - sem ég og gerði." Eftir stutt stopp lögreglunnar borgaði Ástþór reikninginn. Þá höfðu tveir fastakúnnar þegar boðist Ástþór Magnússon „Maður þer fólk ekki sjálfur heldur hringir á lögregluna." til að borga brúsann til að málinu lyki farsællega. Vitni segja að Ástþór hafi neitað því en staðið upp og bók- að mótmæli við illri meðferð þeirra hjóna á barnum. Arnar segir að þrátt fyrir allan hamaganginn hafi þetta gengið nokkuð hljóðlega fyrir sig og gestir staðarins haft nokkuð gaman af. „Við bjóðum baraÁstþór velkominn aftur og erum tUbúin að láta hann persónulega vita af öllum tUboðum á barnum," segir Arnar sem stóð í ströngu með forsetaframbjóðand- anum á sumardeginum fyrsta. simon@dv.is FLOTT eins og fyrri daginn hjá Tómasi A. Tómassyni þegar hann opnaði Hamborgarabúlluna við Geirsgötu. Eldhús eins og á fimm stjörnu hóteli og loftræsting eftirþvi í einhverju minnsta veitingahúsi í Evrópu. Það er V sama hvar Tómas stingur niður fæti - alltafer það gert með stæl. • Frétt í DV um drykkjuveislu hátt í hundrað unglinga undir lögaldri í húsakynnum Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum hefur vakið verð- skuldaða athygli þar í bænum, enda hafa yfirvöld bæjarins unnið hörðum hönd- um að því að minn- ka vímuefnaneyslu unglinga. Birtar voru myndir af drykkj- unni sem vefsíðan Birta.net sýnir á netinu. Á vefsíðunni má sjá að þetta var ekki fýrsta unglingafylleríið I Vest- mannaeyjum, en vaninn virðist vera að þau fari fram í heimahús- um. DeÚt er um hvort eigendur húsnæðisins beri ábyrgð á því sem fer fram þar eða ungu mennirnir úr ísknattleiksfélaginu Jökunum. Við- brögð Selmu Ragnarsdóttur, kenn- ara og formanns Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Eyjum, eru þau að hún heldur því fram í grein sem skrifuð er á vefsíðuna Eyjar.net að málið sé áf pólitísku tagi þar sem verið sé að reyna að upphefja sjálfan sig og koma óorði á hina. Sig- uröur E. VUhelms- son, annar kennari í Eyjum, telur engan upphafinn af ung- lingafylleríi og ritar grein um viðbrögð Selmu formanns undir yfirskriftinni „Það læra börnin sem fyrir þeim er haft“. Hann bendir á að staðfest sé að ungar stúlkur, nýskriðnar af fermingaraldri, hafi áður hlotið áfengi í félagsheimili Selmu og sjálf- stæðismanna og óskar þess að hún einbeiti sér að vandamálinu en smíði ekki pólitískar samsæriskenn- ingar... Veðrið **<o NokkuM vindur +10 jL<4<| Nokkur T * 1 vindur +14 Gola *• o +9^Í Strekkingur ola +5 Allhvasst 4 * 4,C Strekkingur '. +>10* * ö t1& vindur X Nokkur vindur +84 * Allhvasst V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.