Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Qupperneq 9

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Qupperneq 9
TÍMARIT VERKFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS 5.—6. hefti 1964 49. árg. REIKNISTOFNUN HÁSKÓLANS Nýlega kom til landsins fyrsti rafeindareikn- irinn, sem getur leyst flókin tæknileg og vís- indaleg verkefni. Með komu þessa rafeinda- reiknis er brotið blað í atvinnu- og tæknisögu landsins. Verk, sem fram að þessu hefur aðeins verið hægt að leysa að takmörkuðu leyti, verður nú hægt að vinna með þeirri nákvæmni sem verkið krefst. Mun fyllri niðurstöður verður hægt að fá úr margskonar upplýsingum, sem safnað er. Verk, sem áður hefur verið óleysanlegt, verður nú auðleyst. Allt þetta byggist á einu mesta furðutæki okkar aldar, rafeindareikninum. Háskóli Islands hefur eignazt fullkominn raf- eindareikni og fteiknistofnun Háskólans hefur verið sett á laggirnar til að annast rekstur þessa tækis. í dag munu vera fjögur eða fimm ár liðin frá því að nokkrir íslenzkir verkfræðingar og vísindamenn stofnuðu óformlega nefnd til að reyna að örva þróun þessara mála hér á landi. M. a. var dr. Beck frá Regnecentralen í Kaup- mannahöfn fenginn hingað til lands til að kynna þessa tækni. Verulegur skriður komst þó fyrst á gang þessara mála haustið 1963 fyrir framsýni og áræði Ottós Michelsens, umboðsmanns IBM á íslandi, er hann fékk hingað til lands um þriggja vikna skeið rafreikni af sömu gerð og nú er kominn hingað. Smiðshöggið var þó fyrst rek- ið, er Framkvæmdabanki íslands gaf Háskólan- um í tilefni 10 ára starfsafmælis síns 2,8 millj. kr., sem samsvaraði kaupverði reiknisins. Varla getur nokkur vafi leikið á því að þetta tæki á eftir að verða íslenzku atvinnulífi og ís- lenzkum vísindarannsóknum mikil lyftistöng. Til að svo verði þarf þó að tryggja að reiknir- inn verði nýttur vel. Við íslendingar höfum mörg dæmi þess að hafið sé starf á sviði vísinda eða tækni, þar sem mönnum hefur ekki samtímis verið sköpuð nógu góð vinnuskilyrði til að hægt væri að leysa verkefnin sem skyldi. Slíkt má ekki ske með Reiknistofnun Háskólans. Varast verð- ur að gera hana eingöngu að þjónustufyrirtæki, sem engin tök hefur að sinna sjálfstæðum rann- sóknum, sem sérfræðingar hennar telja að þessi nýja tækni geti leyst. Tímarit Verkfræðingafélags Islands birtir í þessu hefti nokkrar greinar um hinn nýja raf- eindareikni. Með þessu vill ritstjórnin beina at- hygli íslenzkra verkfræðinga að þessari mikil- virku tækni. Við óskum Háskóla íslands til hamingju með hið nýja tæki og vonum að þetta verði fyrsta skrefið að þeirri eflingu Háskólans, sem Ármann Snævarr rektor ræddi í hinni athyglisverðu ræðu sinni 1. des. s.l. Framhaldsmenntun íslenzkra verkfrœðinga Flestir íslenzkir læknar sem leggja stund á einhverja sérgrein munu leita til annarra landa á nokkurra ára fresti til að kynna sér nýjungar í sérgrein sinni og fá tækifæri til að hitta erlenda kollega sína. Flestir þeirra eru sennilega áskrif- endur að og lesa jafnaðarlega eitt eða fleiri fag- tímarit. En hvernig er þessu farið með íslenzka verk- fræðinga? Sennilega verður að telja það frekar til undantekninga að þeir lesi reglulega fagtíma- rit eða fari í námsferðir til útlanda. Er þetta e.t.v. vegna þess að framfarir í hinum ýmsu greinum verkfræðinnar séu svo hægar að próf- lærdómurinn og reynslan af starfinu endist allt lífið? Varla. Orsakir þessa er fyrst og fremst að finna í launalegum og faglegum aðbúnaði íslenzkra verkfræðinga og flestra háskólamenntaðra manna síðasta áratuginn vegna skammsýni stjórnarvaldanna. Þessir erfiðleikar mega þó ekki standa í vegi fyrir viðleitni okkar til að vinna gegn þessu ástandi að svo miklu leyti sem það er á okkar valdi.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.