Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Síða 10
66
TlMAKIT VFl 1964
ÖLD RAFEIIMDAREIKIMAIMNA
Eftir Magnús Magnússon, prófessor.
Tuttugu ár eru nú liðin frá upphafi rafeinda-
reiknialdarinnar (computer age), sem svo hefur
verið kölluð. Fyrsti rafeindareiknirinn, smíðaður
af IBM fyrir Harvard háskóla í Bandaríkjunum,
var tekinn í notkun í ágúst 1944. Fimm árum
síðar tók fyrsti rafeindareiknirinn i Evrópu,
EDSAC í Cambridge í Englandi, til starfa.
Fyrstu tíu árin voru rafeindareiknar fáir, en upp
úr 1955 fór þeim að fjölga mjög, en einkum þó
síðustu fimm árin. Eftirfarandi tafla, sem sýnir
fjölda rafeindareikna í ýmsum löndum á hverja
milljón starfandi fólks (að fólki í landbúnaði og
við fiskveiðar undanskildu), gefur góða hugmynd
um þróunina. 1.jan. 1962 1. jan. 1964
Danmörk 6 44
Noregur 9 49
Austurríki 10 24
Italía 13 38
Bretland 15 28
Frakkland 17 56
Vestur-Þýzkaland 18 46
Belgía 20 43
Holland 20 45
Svíþjóð 28 59
Sviss 35 80
Bandaríkin — 240
1 Bandarikjunum voru á síðasta ári um 17.000
rafeindareiknar í notkun eða pöntun, að verð-
mæti um 250.000 milljónir króna. Áætlað er, að
eftir tuttugu ár verði teknir í notkun í Banda-
ríkjunum rafeindareiknar að verðmæti um
400.000 milljónir króna á hverju ári. Til saman-
burðar mætti minna á, að niðurstöður fjárlaga
íslenzka ríkisins fyrir árið 1965 eru um 3500
milljónir króna.
Fyrstu rafeindareiknarnir, eins og t.d. EDSAC,
sem er þeim, er þetta ritar, vel kunnur, þar sem
hann vann við hann á árunum 1950—1953, voru
fyrirferðarmiklir og heldur óöruggir í rekstri.
Gerbylting varð er transistorar komu í stað út-
varpslampa. EDSAC fyllti eitt herbergi, en jafn-
afkastamiklum reikni væri nú hægt að koma í
ferðatösku, og arftaki hans eftir tíu ár getur
orðið á stærð við meðalstóra bók. Rekstraröryggi
hefur einnig aukizt mjög.
Notkun rafeindareikna er mun auðveldari nú
en áður var. Þar til fyrir um fimm árum þurfti
að gera allar forskriftir (prógrömm) á svoköll-
uðu vélamáli, sem er ekki auðvelt í notkun. Nú
eru hins vegar komin fram ýmis mál, sem liggja
mjög nærri venjulegu stærðfræðimáli, eins og
t.d. FORTRAN (FORmula TRANslation) og
ALGOL. Sérstakar forskriftir þýða svo það, sem
skrifað er t.d. í Fortran, á vélamál viðkomandi
reiknis. Fortran málið er ekki bundið við ein-
staka tegund reikna eins og vélamálið, og for-
skriftir á því má nota á allar þær gerðir véla,
sem Fortran þýðingarforskrift er til fyrir. For-
tranmálið er hægt að læra á 10—15 tíma nám-
skeiði nægilega til að undirbúa verkefni fyrir
rafeindareikna. Nú eru komin enn auðveldari
mál, sem miðast við ákveðnar tegundir verkefna,
eins og t.d. COGO, sem skýrt er frá á öðrum stað
í þessu tímariti. Annað mál af sama tagi er
STRESS, (STRuctural Engineering System
Solver), sem gert er fyrir byggingaverkfræðilega
útreikninga, eins og nafnið bendir til.
Samfara þeirri þróun að auðvelda undirbúning
verkefna fyrir rafeindareikna, er unnið að því
að auðvelda aðgang að þeim á þann hátt að setja
mörg innlestrar- og útskriftartæki við einn reikni,
sum í annarri byggingu og sum jafnvel í öðr-
um borgum en hann sjálfur er. Þannig kerfi er
nú við MIT í Boston í Bandaríkjunum, og fleiri
háskólar þar í landi munu hafa slík kerfi innan
skamms. Hver, sem hefur slíkt tæki, getur sett
verkefni inn í reikninn og fær þá svarið því sem
næst á svipstundu.
Fjölmörg dæmi mætti taka um notkun reikna
á öllum sviðum verkfræði, en hér verða aðeins
örfá nefnd. Vegna þess hve fljótvirkir rafeinda-
reiknar eru, er nú hægt við ýmsar framkvæmdir,
t.d. vegalagnir, stíflugerðir og fleira, að reikna
út marga möguleika og á þann hátt finna þann,
sem hagkvæmastur er. Á þennan hátt má spara
stórfé. Skipulagning umferðaræða og strætis-
vagnaleiða er nú víða framkvæmd með aðstoð
rafeindareikna. Stöðugleika skipa má nú reikna
út miklu auðveldar en áður. T.d. nota skipasmíða-
stöðvar í Vestur-Þýzkalandi reikna af sömu gerð
og Háskólinn hefur fengið, til slíkra útreikn-
inga. I símaverkfræði eru reiknar notaðir til að
leysa biðraðarverkefni, og svona mætti lengi telja.
Yfirleitt má segja, að þróunin sé í þá átt að leysa
beint reikningslega verkefni, sem áður voru leyst
empirískt (með aðferðum byggðum á fenginni