Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Side 12

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Side 12
68 TÍMARIT VFÍ 1964 UM MOTKUIM R/VFEIIMDAREIKMA Eftir Odd Benediktsson, cand. phil. 1 greinarkorni þessu verður rætt lauslega um eftirfarandi atriði: Að hvaða leyti rafeindareikn- ar séu frábrugðnir venjulegum reiknivélum, hvernig vélin vinnur innbyrðis og forskriftir eru gerðar úr garði, og loks hvaða verkefni séu vel faliin til lausnar á reikninn. Reiknar eru einkum frábrugðnir venjulegum reiknivélum að þrennu leyti. 1 fyrsta lagi hafa þeir mikið minni, þ.e. vélin getur geymt innbyrð- is aragrúa af tölustöfum. 1 öðru lagi þarf vélin að geta tekið á móti og komið frá sér upplýs- ingum á hraðvirkan hátt, svo sem með gata- spjöldum eða segulbandi. Að lokum starfar vél- in samkvæmt forskrift (program), sem geymd er í minni vélarinnar. Þetta síðasta atriði er log- iskur grundvöllur þessarar tækni og skulum við ræða það nánar. Gerum ráð fyrir, að operasjónunum, sem reikn- irinn getur framkvæmt (svo sem +, + , •, :, at- huga hvert sé forteikn tölu, gata spjald o.s.frv.), séu gefin talnaheiti. Ennfremur eru minnishólf- in í reikninum tölusett. Listi yfir það hvað gera eigi við tölurnar, sem geymdar eru í vissum minn- ishólfum verður þá talnaruna, sem geyma má í minninu sem aðrar tölur. Þannig má gera ráð fyrir, að hin innritaða forskrift (stored program) sé í einum hluta minnisins og tölur þær, sem vinna á úr, í öðrum. Sé svo farið að framkvæma forskriftina, þegar allt hefur verið lesið í minnið, þá framkvæmist hún með leifturhraða rafeind- anna. Hluta forskriftarinnar eða hana alla má svo endurtaka að vild. Sérhver tegund reikna vinnur á ákveðinn hátt, hlýðir ákveðnu talnakerfi sem forskrift og geym- ir tölur á vissan máta. 1 heild köllum við það grundvallarskipunarkerfi, sem vélin hlýðir, véla- mál (machine language) hennar. Það er tíma- frekt nákvæmnisverk að skrifa forskriftir á véla- máli. Hins vegar má gera ráð fyrir, að notend- ur vélanna vilji læra að notfæra sér þær á sem skemmstum tíma og að geta sett verkefnin upp á auðveldan hátt. Úr þessu hefur verið bætt með því að sá, sem nota þarf reikninn, getur skrifað forskrift sína á máli, sem er fljótlært og auð- velt meðferðar, en vélin tekur svo þessa frum- forskrift (source program) og snýr henni yfir á vélamál. Forskrift þá, sem vélin notar til þess að breyta frummáli á vélamál, köllum við þýðanda Oddur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum i Reykjavík 1956. Fór hann þá til Bandarikjanna til verk- frœðináms og lauk Bachelor of Mechanical Engineering frá Rensselaer Polytechnic Institute, Troy, N.Y., 1960. Tók Master of Science í stœrðfrœði 1961 frá sama skóla. Vann hjá Bell Telephone Láboratories 1961—62. Var 1962—6if við framhaldsnám í stœrðfræði við R.P.I. Vinn- ur nú við Reiknistofnun Háskólans. (compiler, processor). Framleiðendur og notend- ur hinna ýmsu reikna hafa búið til og eru enn að vinna að margs konar frummálum og þýð- endum fyrir hinar mismunandi vélar og verk- efni. Meðal mála, sem sérlega eru ætluð til al- mennra vísinda- og verkfræðiútreikninga, má nefna Algol og Fortran. Algol hefur náð nokk- urri útbreiðslu í Vestur-Evrópu. Fortran er það mál, sem IBM-fyrirtækið hefur þróað, og notað er á flestum reiknum þess. Einnig hafa verið gerð enn sérhæfðari mál til lausnar á sér- stæðum verkefnum. Meðal þeirra má t.d. nefna COGO, sem er einungis ætlað til úrlausnar á plangeometriskum vandamálum í landmælingum. Nánari upplýsingar um COGO og Fortran má finna í öðrum greinum í riti þessu. Verkefni þau, sem liggja beinast við til lausn- ar á stórvirkum reiknum, má greina í tvo aðal- flokka: Fyrst má telja verkefni þau, sem krefj- ast síendurtekninga á vissum útreikningum til þess að útkoman náist. I þessum flokki eru lausn- ir á jöfnum og líkingarkerfum, númerisk inte- grasjon o.s.frv. í hinum flokknum eru svo verk- efni, þar sem slíkt magn af tölum er fyrir hendi, að illviðráðanlegt er að vinna úr þeim, nema stór- virk tæki séu tekin í notkun. Það hversu beint það liggur við að leysa verkefni í þessum flokk- um í reikni byggist á því, að þegar forskriftin hefur á annað borð verið innrituð í minni vélar- innar er hægðarleikur að endurtaka operasjóna- runur svo sem áður er getið. I lok þessarar greinar er listi yfir nokkur rit, sem gætu orðið gagnleg þeim, sem læra vilja notkun á IBM 1620 reikninum. Rit tölusett 1, 2 og 3 eru einungis um Fortran-málið. Bókin eftir McCracken er nothæf til sjálfskennslu. Bækurn- ar 4 og 5 kenna vélamál og flest það sem við- víkur forskriftum fyrir 1620 vélina. 1 þeim bók- um er þó rætt um nokkuð eldri gerð af 1620 en

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.