Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Síða 20

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Síða 20
76 TlMARIT VFl 1964 I byrjun viku nr. i er vatnsmagn í Þingvalla- vatni Vi. Rennsli í vatnið yfir vikuna er r;, og það er óþekkt stærð í byrjun vikunnar, en hefur líkindadreifingu, sem er háð árstíð og rennsli síðustu viku. Rafmagnsnotkun vikunnar er e,, sem er annaðhvort reiknuð þekkt í byrjun vik- unnar eða með þekkta líkindadrcifingu. Stýri- stærðin dj, sem ákvörðun skal tekin um, felur í sér möguleika á notkun varastöðva (pósitíf) og möguleika á sölu ódýrrar umframorku t.d. til Áburðarverksmiðjunnar (negatíf). Tímatengingin fæst svo með því skilyrði, að vatnsmagn í byrjun viku i + 1 só Vi+i, = Vi + ri — ei + di Sé þessi stærð stærri en geymisrými Þingvalla- vatns, rennur vatn framhjá og tapast, en sé hún negatíf verður orkuskortur. Fyrir u.þ.b. 25 árum byrjaði franskur verk- fræðingur, Pierre Massé að nafni, að fást við slíkt verkefni í sambandi við rekstur franska raf- kerfisins. Hann vann mikið brautryðjandastarf á þessu sviði og setti upp stærðfræðilegar jöfn- ur til lausnar þessu. Hinsvegar var takmarkað gildi af því á þeim tíma vegna þess að þá voru ekki til rafeindareiknivélar til þeirrar gífurlegu vinnu, sem slíkir útreikningar krefjast. Fyrir u.þ.b. 10 árum fór bandarískur stærð- fræðingur, Richard Bellman, að fást við vanda- mál af þessu tagi, svokallaða „multistage decision processes“, í því skyni að finna upp reiknitækni, sem nota mætti til þess að láta rafeindareikni- vélar reikna út „töluleg svör við tölulegum spurningum“ af þessu tagi. Aðferð sína kallaði Bellman „Dynamic Programming“. Aðferðin er í því fólgin að reikna fyrst út væntanleg útgjöld fyrir síðasta tímabil og finna síðan beztu ákvörðun, sem geri þau minnst. Þetta er gert fyrir allar þær aðstæður, sem geta komið fyrir. Síðan er reiknuð summan af væntanlegum útgjöldum fyrir næstsíðasta tímabil og síðasta tímabil og þá gengið út frá, að bezta ákvörðun sé tekin fyrir síðasta tímabil. Sú ákvörðun fyrir næstsíðasta tímabil, sem gerir þessa summu minnsta, er þá bezta ákvörðunin. Þannig er hald- ið áfram koll af kolli afturábak í tímanum. Þetta verða stöðugt sömu reikningarnir, bara með nýj- um tölum, og eru þessvegna afar hentugir fyrir rafeindareiknivélar. Ef búið er að reikna þannig út ákvörðunar- funktionir fyrir heilt ár, hafa samtímis fengizt væntanleg útgjöld fyrir þetta ár. Þessi stærð •i> hefur mikla þýðingu í sambandi við hugsanlegar breytingar á kerfinu. Setjum svo að ákveðið hafi verið að stækka varastöð eða vatnsorkuver og við viljum vita, hvort hagkvæmt muni vera, að þessu sé lokið á ákveðnu ári. Þá er hægt að reikna út ákvarðanir fyrir næsta ár eftir stækkunina bæði með stækkuninni og án hennar. Mismunurinn á væntanlegum útgjöldum við bezta rekstur verð- ur þá að vera stærri en ársvextir af stofnkostn- aði stækkunarinnar til þess að það borgi sig að hún sé tilbúin þetta ár frekar en ári seinna. Að lokum má nefna, að þótt hér hafi verið rætt um raforkukerfi má nota hliðstæð líkön og lausnaraðferðir í fleiri tilfellum. Það sem hér hef- ur verið kallað vatnið í Þingvallavatni (Vi) gæti alveg eins verið handbært rekstrarfé fyrirtækis og ri þá inngreitt fé en e; útgreitt. Stýristærðin di táknaði þá möguleika á að leggja fé í fjár- festingu eða taka rekstrarlán. Einnig gæti Vi táknað vörulager eða jafnvel manneskjur í bið- röð. Við biðraðarvandamál væri stýristærðin d; möguleikar á að fjölga eða fækka afgreiðslufólki. H e i m i 1 d i r : 1. Pierre Massé: Les réserves et la regulation de l’avenir dans la vie économique (1946). 2. Pierre Massé: Optimal Investment Decisions, Rules for Action and Criteria for Choice (1962). 3. Richard Bellman: Dynamic Programming (1947). 4. Richard Bellman, Stuart Dreyfus: Applied Dynamic Programming (1962). 5. K. J. Arrow, S. Karlín, H. Scarf: Studies in the Mathematical Theory of Inventory and Production (1958). 6. Helgi Sigvaldason: Beslutningsproblemer ved et hydrotermisk elforsyningssystem (licentiatritgerð við D.T.H. 1964). *

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.