Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Síða 40

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Síða 40
96 TlMARIT VFl 1964 ast þá var hraðinn 215 km á klst. Ekki varð fundið fyrir neinum titringi eða skakstri í lest- inni, þótt hraðinn væri þetta mikill. Einu óþæg- indin, sem ég gat merkt voru þau, að höggið var svo mikið þegar ekið var inn í jarðgöng, að farþegar fengu hellur fyrir eyrun. TJr þessu verð- ur bætt með því að hafa vagnana loftþétta og halda jöfnum þrýstingi í klefunum. Rannsóknir og tilraunir vegna þessarar nýju brautar, sem nefnist New Tokaido Line á jap- anskri ensku, hafa farið fram á rannsóknarstöð járnbrautanna, Railway Technical Research Institute. Þar starfa 650 vísindamenn og verk- fræðingar. Tækjakostur þessarar stofmmar var ævintýralega mikill, enda leggja Japanir áherzlu á, að brautin verði sem allra fullkomnust. Þar með hafa þeir líka óvéfengjanlega skipað sér í fremstu röð, hvað snertir jámbrautargerð. Nýir félagsmenn Óttar Pétur Halldórsson (V. 1962), f. 19. júlí 1937 á Isafirði. For. Halldór bankaútibússtj. þar, f. 27. nóv. 1900, d. 5. des. 1949, Halldórsson bankagjald- kera í Rvík Jónssonar og k.h. Lív, f. 5. jan. 1910, dóttir Othars Ellingsens kaupm. í Rvík. Stúdent Rvík 1956, B. S. próf í byggingaverkfræði frá University of Wiscon- sin 1962. Er við fram- haldsnám þar. K.h. 29. júlí 1961, Nina Kristín, f. 17. júní 1936 í Rvík, Gísladóttir forstj. þar Sig- urbjörnssonar og k.h. Helgu Björnsdóttur stórkaupm. Arnórssonar. B.þ. Gísli Sigurbjörn, 1963 í Madison, Wis- consin, Bandar. Óttar er systursonur Erlings Ellingsens, bygginga- verkfr. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 9. okt. 1962. H. G. Örn Baldvinsson (V. 1962), f. 19. maí 1935 á Dalvík, Eyjaf. For. Bald- vin Guðlaugur útibússtj. ■CíKE þar, f. 23. sept. 1906, Jóhannsson útibússtj. Ú. K.E. s.st. Jóhannssonar og k.h. Stefanía Sóley, f. 5. apr. 1912, Jónsdóttir for- manns á Dalvík Halldórs- sonar Lingstaðs. Stúdent Akureyri 1954, próf í vélaverkfræði frá K.T.H. í Stokkhólmi 1960. Verkfr. hjá Institutionen för Verktugsmaskiner við K.T.H. 1960—62, hjá teiknistofu Sambands ísl. samvinnu- félaga 1962—63; hjá Fjarhitun sef., Rvík 1963, rak þá einnig eigin verkfræðistarfsemi hjá Iðnaðarmálastofnun Islands frá 1964. K.h. 1. sept. 1956, Kolbrún, f. 10. nóv. 1934 í Rvík, Björnsdóttir verzlunarm. þar Jónssonar og k.h. Ingileifar Káradóttur sjóm. í Vestmannaeyjum Sigurðssonar. B.þ. 1) Inga Jakobína, f. 7. des. 1957 í Rvík, 2) Stefanía Birna, f. 5. apr. 1960 í Stokkhólmi. Veitt innganga í VFl á stjórnarfundi 9. okt. 1962. H. G. Jón Kristinn Björnsson (V. 1962), f. 26. jan. 1931 að Borg á Mýrum, Borg. For. Björn prof. theol. í Rvík, f. 17. mai 1904, Magnússon prófasts að Prestsbakka, Síðu, V,- Skaft., Bjarnarsonar og k. h. Charlotta Kristjana, f. 6. júní 1905, Jónsdóttir verzlunarm. í Stykkis- hólmi Björnssonar. Stúdent Rvík 1952, f.hl. próf í verkfræði við T.H. Miinehen 1957, próf í vélaverkfræði frá T. H. Darmstadt 1962. Verkfr. í teiknistofu Sambands ísl. sam- vinnufélaga 1962—’63 og hjá Einarsson & Pálsson h.f. frá 1963. Veitt innganga í VFl á stjórnarfundi 2 nóv. 1962. H. G. Stefán Ingvi Her- mannsson (V. 1963), f. 28. des. 1935 á Akureyri. For. Hermann menntaskóla- kennari þar, f. 17. jan. 1904, Stefánsson útvegs- bónda í Miðgörðum, Greni- vík, S.-Þing., Stefánsson- ar og k.h. Þórhildur, f. 31. marz 1908, Steingríms- dóttir frá Vöglum, Hálshr., S.-Þing., Þorsteinssonar. Stúdent Akureyri 1955, f.hl. próf í verkfræði frá H.I. 1958, próf i bygginga- verkfræði frá D.T.H. í Khöfn 1961. Verkfr. hjá ráðunautunum Chr. Ostenfeld & W. Jönson í Khöfn frá 1961, hjá varnarliðinu á Keflavikurflugvelli 1963—’64 og hjá borgarverkfræðingi í Rvik frá 1964.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.