Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 15. MAÍ2004
Fréttir 0V
Danir kærðu
pyntingar
Danskir herlæknar segjast
hafa séð tvo íraska fanga sem
höfðu sætt miklum líkams-
meiðingum; svo miklum að
annar þeirra lést. Um var að
ræða fanga sem höfðu verið í
gæslu breskra hermanna og
var tilvikið, sem átti sér stað í
Basra, tilkynnt hermálayfir-
völdum í september á síð-
asta ári. Danskir hermenn
vinna undir breskri stjórn í
Irak.
Þúsund nýir
bílar daglega
Meira en eitt þúsund
nýir bílar koma á götuna
í höfuðborg Kína,
Péking, á degi hverjum,
ográða vegirnir illa við
þennan mikla Qölda.
Rúmlega 100 þúsund
manns létust í umferðar-
slysum í Kína á siðasta
ári en Kínverjar eru um
1,3 milljarðar. Nú eru
bflarnir í Peking komnir
yfir tvær milljónir og ef
fer fram sem horfir verða
3,5 milljónir bfla í borg-
inni árið 2008.
Banna ekta
hárkollur
Strangtrúaðir gyðingar í
Jerúsalem hafa lagt blátt
bann við þvi að
konur noti ind-
verskar hárkollur
sem unnar eru úr
ekta hári. Telja gyð-
ingarnir að hárkoll-
urnar kunni að vera
búnar til úr hári
sem konur hafa lát-
ið skera við trúarathafnir
hindúa. Algengt mun með-
al strangtrúaðra kvenna að
ganga jafnan með hárkollu
og leyfa einvörðungu eigin-
manninum að sjá hár sitt.
Brynjólfur Þ. Brynjólfsson
útibússtjóri Landsbankans á Isafirði
„Það er að sjálfsögðu
ártægjulegt að starfa hér við
bankann á þessum
tímamótum. Ég hefunnið fyrir
Landsbankann I um 36 ár og
verið víða. En það er frábært
að vera staðsettur hér á
Isafirði. Vestfirðingar eru mjög
Landsíminrt
ekki
spillir einstök náttúran hér
heldur fyrir. Við hér í
bankanum gerum okkur aö
sjálfsögðu dagamun í tilefni
af 100 ára afmælinu. Eins og
fram hefur komið mun
bankinn bjóða öllum
bæjarbúum í kaffí og kökur á
afmælisdaginn og okkur sem
störfum fyrir bankann er
boöiö í hátlðarkvöldverð
ásamt öðrum gestum í
Hafnarhúsið I kvöld."
Björn Bjarnason, þáverandi menntamálaráðherra, hringdi í forstöðumann
Kvikmyndasjóðs þegar umsókn vegna Opinberunar Hannesar var til umfjöllunar.
Ráðherrann vildi vekja athygli á bágindum Hrafns Gunnlaugssonar
kvikmyndaframleiðanda. Björn Bjarnason segist ekki muna eftir símtalinu.
Björn Bjarnason Hafði
samband við Þorfinn Ómars-
:Z-°f6uSÖ?ntilaðl*°<»yggj
um afheilsufari Hrafns W
Ntejpiósdóttir Hafnaði
Opinberun Hannesa
ÞorfinnurÓmarsso
Gerði nefndarmonnurn
arein fyrir simtalinu fra
Zenntamálaráðherra.
þrátt fyrir veikmdi
framleiðandans.
Þorfinnur Ómarsson, forstöðumaður Kvikmyndasjóðs, gerði út-
hlutunarnefnd sjóðsins grein fyrir því árið 2001 að Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra hefði hringt í sig til að segja sér af
veikindum Hrafns Gunnlaugssonar, framleiðanda kvikmyndar-
innar Opinberunar Hannesar, sem þá hafði sótt um 64 milljónir
króna vegna myndarinnar. Þetta var fyrsta og eina símtal
menntamálaráðherra til forstöðumannsins.
„Ég veit ekki nákvæmlega hvað
Björn sagði við Þorfinn en hann
sagði okkur í nefndinni frá símtal-
inu,“ segir Anna G. Magnúsdótdr
kvikmyndaframleiðandi, sem átti
sæti í úthlutunarnefnd Kvik-
myndasjóðs árið 2001 þegar til
umfjöllunar var styrkur vegna
kvikmyndar Hrafns Gunnlaugs-
sonar, Opinberunar Hannesar.
Kvikmyndin var byggð á sögu Dav-
íðs Oddssonar forsætisráðherra og
var handritið sem fylgdi upphaf-
legri umsókn merkt Davíð sem
handritshöfundi.
Anna segir að um þetta leyti
hafi nefndin fjallað um umsóknir
vegna 80 kvikmynda og einungis
geta styrkt brot af þeim fjölda. í
þriggja manna úthlutunarnefnd-
inni var Christoff Wehmeier auk
hennar og Þorfinns. Þrátt fyrir sím-
tal Björns menntamálaráðherra
hafnaði nefndin því að styrkja
myndina.
„Við vorum með 80 verkefni en
gátum aðeins styrkt fimm þeirra.
Ég vil ekki úttala mig um þessa
umsókn," segir Anna, sem sat í eitt
ár í úthlutunarnefndinni.
„Það er rétt að Björn hringdi í
mig í þetta eina sinn,“ var það eina
sem Þorfinnur vildi segja um sím-
talið.
Um þetta leyti hafði Þorfinnur
verið forstöðumaður Kvikmynda-
sjóðs í sjö ár en aldrei fengið símtal
frá menntamálaráðherra, sem
sjóðurinn heyrði undir. Heimildir
DV herma að Björn hafi í símtalinu
viljað ræða afleiðingar bflslyss sem
Hrafn hafði lent í. Ráðherrann
„Ég man nú ekki eftir
þessu símtali..."
hafði nokkur orð um að líklega
væri þetta seinasta verkefni Hrafns
og skilningur Þorfinns á þeim tíma
hafi verið sá að ráðherrann væri að
reyna að kveikja samúð. Sjálfur
harðneitar Þorfinnur að tjá sig um
efni símtalsins. Á seinustu dögum
sínum í embætti ákvað Þorfinnur
að styrkja myndina um þriðjung
þeirrar upphæðar sem sótt var um,
eða rúmar 20 milljónir króna.
Sjónvarpið keypti síðan Opinber-
un Hannesar og sýndi um síðustu
jól. Myndin hlaut slæma dóma.
Aðspurður um það hvernig
honum hefði svo þótt myndin var
Þorfinnur snöggur til svars: „Ég vil
ekkert tjá mig um það enda málinu
óviðkomandi".
„Ég man nú ekki eftir þessu
símtali, en hitt þykir mér skrýtið, ef
því er haldið fram, að ég hafi að-
eins einu sinni rætt við Þorfinn all-
an þann tíma, sem ég var mennta-
málaráðherra. Hann kom á minn
fund auk þess sem við hittumst
alloft á mannamótum og tókum tal
saman. Til að glöggva mig á því um
hvað málið snýst, þarf ég frekari
lýsingar á atvikum þess," segir
Björn Bjarnason, fyrrverandi
menntamálaráðherra, aðspurður
um málið.
Forstöðumaðurinn lenti í rann-
sókn Ríkisendurskoðunar og
missti starf sitt skömmu eftir að
Hrafn fékk styrkinn.
rt@dv.is
Björn vildi kveikja
samúð með Hraíni
Niðurskurður farinn að bitna harkalega á bráðadeildinni
Of naumt skammtað
í DV í fyrradag kemur fram að Jón
Baldursson, yfirlæknir slysa- og
bráðadeildar Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss, þarf sjálfur að sinna út-
köllum vegna manneklu á deildinni:
Hann segir þetta afleiðingar niður-
skurðar sem sé farinn að bitna
harkalega á deildinni. Jón hefur
skrifað Brynjólfi Mogensen, sviðs-
stjóra slysa- og bráðasviðs, bréf þar
sem fram kemur óánægja lækna
með ástandið.
„Það er einfaldlega þannig að
læknamönnun á slysa- og bráða-
deild er mjög naumi,“segir Brynjólf-
ur. „Slysa- og bráðasvið er til þess að
gera ungt innan spítalans og frá upp-
hafi hefur fé verið naumt skammtað.
Ef byggja á upp nýja starfsemi þarf
að koma til fjármagn, annað hvort í
gegnum fjárveitingar Alþingis eða
önnur svið láti fjármagn til sviðsins,"
segir Brynjólfur. „Við höfum lítinn
mannskap til að sinna verkefnum og
þegar einhver dettur úr skaftinu, til
dæmis vegna veikinda, þá er erfitt að
fá afleysara, það eru svo fáir læknar
og flestir vinna mikið. Skertar fjár-
veitingar á síðustu árum hafa gert
okkur enn erfiðara fyrir. Við byrjuð-
um með of lítið fé fyrir öll verkefnin
og lítið er orðið minna," segir
Brynjólfur. Stjórn spítalans er ekki
búin að taka neinar ákvarðanir um
hvernig eða hvar eigi að skera niður
núna en stjórnvöld hafa boðað að
skera þurfi niður um einn milljarð
króna. En það er alveg á tandur-
hreinu," segir Brynjólfur „að einhver
þjónusta sem nú er á spítalanum
verður minnkuð eða henni hætt,
menn þurfa að velja og hafna."
Landspítalinn Þar var byrjað með ofiitið
fé til verkefna ognúer litið orðið minna.
Fimm
handteknir
Fjórir Alsírbúar og einn Spán-
verji voru handteknir á Spáni í
gær grunaðir um að vera viðriðn-
ir íslömsk öfgasamtök. Mennimir
rnunu hafa haft það hlutverk að
safna einstaklingum til þess að
senda í þjálfunarbúðir á vegum <
al-Kaída. Mennirnir voru allir
handteknir f Bilbao í baska-
héröðunum norðarlega á Spáni.
Ekki er talið að þeir hafi tengst
hryðjuverkaárásunum í Madríd-
arborg í mars með beinum hætti.