Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 1S.MAÍ2004
Fókus DV
Frá Gleðibankanum til Jónsa Framlög fslands tró unphafi
1986 - Gíeðibankirm - 16.
sætí
Icy-hópurinn með Eirík
Hauksson, Pálma Gunnarsson og
Helgu Möller í fararbroddi flutti
Gleöibankann. Væntingar voru
miklar en vonbrigðin meiri þegar
úrslitin voru kunn.
1987 - Hmýt og hljótl -16.
ssetí
Valgeir Guðjónsson og
Halla Margrét Árnadóttir
fluttu Hægt oghljótt í
Belgíu. Aftur varð þjóðin
að sætta sig við 16. sætið.
1988 -Púoq þeir -16. sseti
Þegar alvaran var ekki að virka
var ákveðið að prófa grínið. Sverrir
Stormsker og Stefán
Hilmarsson fóru til
Dublin og fluttu lagið
Þú og þeir sem með
tímanum hefur orðið
þekktara sem Sókrates. ísland lenti í
16. sæti þriðja árið í röð.
1989 - Þaö sem enginn sér -
ne&stasætí
Fyrst grínið virkaði
ekki var alvaran reynd á
ný. Valgeir fór aftur út,
nú með Dam'el Ágústi.
Félagarnir fengu ekkert
stig og höfnuðu í neðsta
sæti.
1990 - Eitt lag enn - 4. sætí
Eftir dapurt gengi varð eitthvað
stórt að gerast og þess vegna var
Stjórnin kölluð til árið
1990. Grétar Örvars
og Sigga Beinteins
fluttu Eittlag enn og
náði 4. sæti og allir voru
glaðir.
1991 - Nfna -15, sæti
Væntingar voru miklar eftir gott
gengi árið á undan. Eyjólfur
Kristjánsson tók Stebba Hilmars
með sér og sungu þeir
Nínu sem með
tímanum hefur orðið
eitt vinsælasta
dægurlag íslands.
Stjörnumáltíð + CD
McDonald's Kringlunni, smöratorgi og Suðurlandsbraut
iiillÍlSiSIÍIÍfSS!
Eurovisionlagið
+
Kariokiútgáfa
--l.'
1
i mSSI þ&f&c
'p ÍVV - jjA-;:/'- ú .
: Wjjm
Evrópa var ekki sammála og 15.
sætið var staðreynd.
1992 - Nef eða já - 7. sæti
Sigríður Beinteinsdóttir og
Sigrún Eva Ármannsdóttir fluttu
lagið Nei eða já og höfnuðu í 7.
sæti. Þjóðin hafði spáð þeim sigri.
1993 - M veistu svarið -13.
sætí
Ingibjörg Stefánsdóttir var sögð
næsta stórstjarna íslands og send til
Dublin til að sigra keppnina. Ekkert
gekk og íslands endaði í 13. sæti
með lagið Þá veistu svarið.
1994- Nætur-12. sæti
„Það er bara ekkert gaman að
taka þátt í keppni sem er ekki
heiðarleg. Ég fer ekki aftur," sagði
Sigga Beinteins sem sagði
stigagjöfina hafa verið pólitíska og
þess vegna hafl henni gengið svona
illa. ísland endaði í 12. sæti.
1995 - Núna -15. sæti
Eftir að hafa gengið fram hjá Bó
Halldórssyni í tæpan áratug var
ákveðið að senda Elvis sjálfan á
svæðið. Hann flutti lag eftir sjálfan
sig, Núna. Það skilaði þó litlu og 15.
sætið var íslendinga.
1996-Sjúbfdú -
13. sati
„Ég er sátt og
glöð," sagði
barbídúkkan og góðvinur
Michael Jackson, Anna Mjöll, sem
söng lagið Sjúbídú eftir sig og föður
sinn Ólaf Gauk. Lagið hafnaði í 13.
sæti sem var fjórði besti árangur
íslands fram til þessa.
1997 - Minn hínsti dans - 20.
saetí
Páll Óskar var sendur
af stáð og margir
höfðu efasemdir.
Hann gerði hlutina
algerlega eftir sínu
höfði, sem er
virðingarvert út af fyrir sig,
en Evrópa var einfaldlega ekki
tilbúin. Lagið hafnaði í 20. sæti og
ísland fékk þess vegna ekki að vera
með að ári.
1999-All OutOfLuck-2.
sætí
Eftir hörmungar
Páls Óskars var Selma
Björnsdóttir send til
að syngja lag eftir
Þorvald Bjarna, All Out
OfLuck. Laginu gekk betur
en margir höfðu þorað að vona og
hafnaði að lokum í 2. sæti. Besú
árangur íslands og allir sáttir.
2000 - T«ll Me -12. s»tí
Einar Ágúst var það heitasta á
þessum tíma eftir allt
Skómóævintýrið og einhver gróf
Thelmu upp. Þau sungu lagið Tell
Me sem var sagt stolið og endaði
það í 12. sæti. Island var með að ári
og flestir þess vegna sáttir.
2001 - Angel - 23. sastl
Aftur var hóað í meðlim
Skítamórals og Einar Bárðar samdi
lagið. Þeir Gunnar Ólafsson og
Kristján Gíslason fluttu lagið Angel
eftir bestu getu sem var nóg til að
skila okkur þrem stigum og þar
með neðsta sætinu.
2003 - Open Your Heart - 9.
sæti
Eftir árs hlé var
Birgitta Haukdal send
til leiks með lagið
Open YourHeart.
Stelpan stóð sig bara
ágæúega og hafhaði í 9.
sæti. Það var síðasta sætið sem
tryggði þátttökurétt í úrslitum að ári
þannig að aflir voru sáttir.
2004 - Heaven - ???
Jónsi flytur Heaven. Veðbankar
spá okkur á topp 10.