Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Qupperneq 43
DV-mynd Hari DV Fókus LAUGARDAGUR 15. MAÍ2004 Í3 Einn merkasti núlifandi myndlistarmaöur heims er kominn til íslands til þess að vera við öpnun Lista- hátíðar. Jeff Koons er meðal þeirra sem eiga verk á sýningu á bandarískri samtímalist sem hefur verið opnuð í Listasafni íslands. Koons er þekktur fyrir samband sitt við klámmyndaleikkonuna Cicciolinu, sem sumir segja hafa verið gjörning, og frægt verk sitt af Michael Jackson og apanum Bubbles. Það verk er einmitt á sýningunni hér. .100 ■ 4Mfg „Þegar ég kom á hótelherbergið á fimmtudaginn var þetta ótrúlega málverk á veggnum og mig langaði helst að kaupa það á staðnum," segir Jeff Koons sem er án efa einn fremsti núlifandi myndlistarmaður heims. Jeff fékk svo Ólaf Kvaran, forstöðu- mann Ustasafns íslands, tfi þess að skoða verkið, „Já, þetta er eftir pabba," sagði Ólafur. Jeff er greini- lega mjög heiliaður af þessu lida samfélagi. Allt mögulegt ef ég fjár- magnaði sjálfur Jeff kom tU íslands tU þess að vera við opnun á sýningu um bandaríska samtímalist sem opnar í dag í Iistasafni fslands. Jeff kemur fyrir sjónir sem frekar rólegur ná- ungi, yfirvegaður, troðfullur af heimsspekilegum vangaveltum um lífið og listina. Hann lítur frekar út fyrir að vera bankastjóri og það er í raun erfitt að ímynda hann sér að þetta sé sami maðurinn sem lá allsnakinn í skautinu á klámmynda- drottningunni Cicciolinu fyrir ekki svo mörgum árum. Þessi fríði mað- ur, í fallegu Armani-jakkafötunum, sínum lítur ekki út fyrir að vera einn djarfasti myndlistarmaður sögunar. Tilfinningin er sú að þetta sé maður sem aldrei tekur neina áhættu. Svona getur nú fólk komið manni á óvart og það gerir hann þessi ein- lægi, yndislegi maður. Maður þarf að hitta manninn til þess að skilja hugmyndina um heimspeki Koons um hið fagra í lífinu. Þannig öðlast verkið nýjan skilning og verður auð- veldlega hafið yfir það sem það kanna að líta út fyrir að vera í fyrstu. „Ég fékk frábært uppeldi. For- eldrar mínir voru mér mikil hvatn- ing, ég var eins og litla rakettan þeirra sem þau notuðu í hvert skipti i <r til þess að skjóta mér upp á stjörnu- himininn. Faðir minn var innanhús- hönnuður og rak litla verslun þar sem hann bjó til allskyns herbergi. Frá því að ég var 9 ára fékk ég að hengja málverk eftir mig upp í þess- um herbergjum og svo seldi pabbi þau með húsgögnunum. Það má því segja að hann hafi verið fyrsti um- boðsmaður minn. Hann var mikill mannvinur og kenndi mér mikil- vægi þess að vera jákvæður og elska fólk. Ég var alinn upp við það að sjá um mig sjálfur og var ábyrgur fyrir sjálfum mér mjög ungur. Ég gekk í hús og seldi gjafapappír, konfekt og ýmislegt annað. Eg lærði þannig að ég gæti gert hvað sem ég vildi, ég þyrfti hins vegar að fjármagna það með einhverjum hætti sem mér hef- ur alltaf tekist síðan," segir Koons. Athyglisverður arkitektúr á fslandi „Þegar ég flutti til New York og gerðist myndlistarmaður nýtti ég mér þessa reynslu. Ég var ákveðinn í því að ég myndi ekki gera neinar málamiðlanir og fór því að vinna sem verðbréfasali á Wail Street þar sem ég gat hæglega íjármagnað listina með þeim hætti að hún væri fjárhagslega framkvæmanleg. Ég gat þannig framkvæmt hugmyndirnar mínar nákvæmlega eins og ég ædaði mér. Verkin kostuðu kannski 20.000.000 dollara í framleiðslu en ég seldi þau fyrir 3000 dollara. Þannig náði ég að byggja upp feril minn sem myndlist- armaður. Það sem vakd mesta athygli mína við komuna Iiingað eru öll smáatrið- in í umhverfinu, gróðurinn, textíllinn og litirnir. Þetta eru allt atriði sem skipta mig svo miklu máli. Svo er ar- kitektúrinn mjög athyglisverður, allt þetta bárujárn og mælikvarðinn á húsunum er eitthvað svo réttur. Þetta er mjög spennandi og ég hlakka til þess að sjá meira. Ég tók íjölskyiduna með mér, konuna mína og tvö yngstu syni mína. Þau voru öll mjög spennt að koma hingað. Ég reyni að taka þau með á öll ferðalög, annars ferðast ég mjög lítið. Ég eyði þriðjungi af mín-. um tíma við sköpunina en legg samt mikla áherslu á að eyða tíma með lidu drengjunum mínu. Já, ég er mik- ill íjölskyldumaður. Ég legg milda áherslu á að gefa börnunum mínum mikinn tíma til þess að örva huga þeirra og forvitnina fyrir umhverfinu og lífinu," segir Koons og er sérstak- lega einlægur og ákveðinn í því að víkka sjóndeildarhring barna sinna. „Ég á fjögur böm og hef verið með konunni minni Justine í 9 ár, næstum á hverjum degi síðan við hittumst fyrst. Við eigum saman tvo lida syni sem hlökkuðu mikið til ferðarinnar hingað. Við höfum séð íslenska hest- inn á sýningum heima og okkur lang- ar að skoða hann í sínu náttúrulega umhverfi. Þetta er svo fallegt dýr með heillandi hreyfingar. Strákarnir mínir Sean, 3 ára, og Kurt, 10 ára, em mjög spenndr yfir þessu, þá langar mikið að sjá hvali, ég vona að við getum það. Við erum alltaf á alls kyns sýningum með strákana, fömm líka með þá í lestarferðir og á rodeo. Mér finnst svo mikilvægt að örva þá á þennan hátt. Svo á ég 12 ára son á Ítalíu en ég hef staðið í margra ára forræðisdeilu yfir syni mínum Ludwig, sem ég á með fyrri eiginkonu minni Ciccio- linu. ftölsk yfirvöld hafa brotið alla milliríkjasáttmála í þessari forræðis- deilu en mér var dæmt forræðið fyrir mörgum árum. Honum er hins vegar haldið á ítah'u og ég get ekki verið í neinu sambandi við hann, ekki einu sinni í gegnum síma eða e- mail. Þetta hefur verið skelfileg Kfsreynsla og mikil dramatík búin að vera í kringum þetta mál síðustu 10 ár. Móðir hans gefur ekkert efdr og vill ekki einu sinni leyfa mér að hitta hann. Það er ótrúlegt hvernig kerfið hefur virkað í þessu máli. Það er eins og engir sáttmálar séu virtir," segir Koons og lítur leiður í kjöltu sér. Bömin hans eru greinilega lykilatriði í lífi hans. „Svo á ég 29 ára dóttur, ég gæti því orðið afi hvenær sem er, það verður frábært." Magnað verk í vinnslu í New York Hittir þú einhvemú'ma Michael Jackson eftir að þú vannst verkið fræga? „Hann var alltaf á leiðinni og þegar hann hafði fastsett tíma, mætd hann ekki. Ég hittí hins vegar Bubbles, apann hans, nokkmm sinnum, komst reyndar að því að þeir vom fleiri en einn apamir sem bám nafn Bubbles. Þeir em reyndar allir látnir núna, éggfa ekki ástæðu til þess að fylgja þeim til grafar," segir Jeffbrosandi. Verkið umtalaða er einmitt eitt af þeim verkum sem er að finna á sýn- ingunni f Listasafni fslands. Það er eitt af 10 dýrustu verkum samtímalista- manna, fór á tæpar 400 milljónir króna þegar það var selt árið 2001. „Ferðalag mitt sem listamaður heldur áfram, ég er ekki kominn á leið- arenda, langt í frá, ég æda að fara miklu lengra. Núna er ég að vinna risa- stórt verk í New York. Ég nota stóran krana til þess að hífa upp gamla gufu- lest. Svo setjum við hariSc gang, lóðrétta í lausu lofti. Ég er að vinna með verk- fræðingum núna í undir- búnmgsvinnunni. Þetta á eftir að verða mjög magn- að og er enn í vinnslu. Ég er alltaf mest hrifinn af því sem ég er að gera á hverjum tíma, ég er mjög embeittur í því að kom- ast lengra með list mína, ég veit að ég get gengið mun lengra og ætla mér að komast á leiðSr- Jeff Koons og Cicciolina Giftist klámmyndastjörnu. enda," segir Koon augljóslega fullur eftírvæntíngar að klára verkið. „Sýningin hér í Listasafni íslands er alveg frábær, vel uppsett og endur- speglar vel bandaríska samtímalist," segir Jeff að lokum um leið og hann teiknar litla mynd í skissubók blaða- manns og kveður svo innilega. Frá- bært að eiga áritaða skissu eftír meist- arann sjálfan, ems gott að passa upp a litíu bókina mína og geyma hana á góðum stað. freyr@dv.is Jeff Koons Einn frægasti myndlistarmaður samtim- ans staddur hér á iandi. „Núna er ég að vinna risa- stórt verk i New York. Ég nota stóran krana tilþess að hifa upp gamla gufu- lest. Svo setjum við hana i gang, ióðrétta í lausu lofti." Metsölumafiur ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★"* ★ Rafmagnsgítar magnari poki, ól- snúra -stillir og auka ★ ★★ Söngkerfi Trommusett frá frá 59.900,- 49.900,- stgr Gítarinn ehf. Stórhöfða 27, sími 552-2125 www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★1t Klassískir gítarar frá 9.900,- stgr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.