Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Qupperneq 47
I3V Síðast en ekki síst LAUGARDAGUR 15.MAÍ2004 47 Showdown? „Ljóst er að veröldin er að taka stakkaskiptum þegar þannig er í pottinn búið að besti rapparinn er hvítur, besti golfarinn svartur og Þýskaland neitar sér um að taka þátt í stríði." Viðlíka umbreytingar gerast nú á íslandi Afstaða manna til fjölmiðlafrum- arpins hefur kollvarpað flestu því sem haft hefur verið fyrir satt í ís- lenskum stjórnmálum til. þessa. Sjálfstæðismenn virðast vera orðnir kratar og kratar virðast orðnir hægri menn. Formaður flokks frjálshyggju og peningaaflanna stendur blóðug- ur upp að öxlum í stríði við einka- framtakið sem jafnaðarmenn hafa slegið skjaldborg um. Þessi viðsnún- ingur hefur greinilega keðjuverk- andi áhrif til umskipta: Fyrrum krat- inn og núverandi sjálfstæðismaður- inn Ólafur Hannibalsson hefur tekið lokaskrefið frá vinstri til hægri og ver nú markaðsráðandi fyrirtæki gegn formanni sínum. íhaldslögfræðing- urinn Sigurður Líndal skorar á sósí- alistaforsetann að láta sverfa til stáls gegn íhaldinu. Davíð Oddsson er óvinsælasti stjórnmálamaður þjóð- arinnar, Samfylkingin stærsti flokk- ur þjóðarinnar, Hannes Hólmsteinn þegir, Hreinn Loftsson er genginn úr Flokknum, blaðamenn verja auð- mannaelítuna osfrv., osfrv. Sveita- komminn Steingrímur J. er meira segja hægra megin við íhaldið. Umskiptingar Stórkostlegasta umbyltingin hlýtur þó að kristallast í því að olig- arkarnir binda nú ráð sitt við refsi- hala fyrrum formanns Alþýðu- bandalagsins, sósíalistann og núver- andi forseta lýðveldisins. Bjargir frjálshyggjunnar liggja í höndum mannsins sem holdgervingur kapitalsins Björgólfur lagði fæð á og keypti heilu síðurnar í Mogganum til að fella í forsetakjöri. „Bjargvættur- inn“ íhugar nú að beita málskots- réttinum í fyrsta sinn í sögu lýðveld- isins til að fella hugmyndir sem hann barðist fyrir, gegn Sjálfstæðis- flokknum, fyrir níu árum. Þegar Ólafur Ragnar Grímsson er orðinn eina von fjármagnsins í bar- áttu þess gegn formanni fhaldsins hefur mikið vatn fallið til Dýrafjarð- ar. Sumt er þó það sem aldrei breyt- ist þótt stríð geysi og aska falli: Öss- ur Skarphéðinsson nýtur enn ekki trausts, Halldór Ásgrímsson er enn- þá var um sig og það sem meira er um vert: Forsetinn og forsætisráð- herrann geta ekki fremur en endranær leynt gagnkvæmri forakt. Eftir lognmolluna Eftir níu ára lognmollu í íslensk- um stjórnmálum virðist nú loks vera að draga til tíðinda. Það stefnir í showdown milli forsetans og forsæt- isráðherrans. Eða hvað á forsetinn annars við þegar hann óvænt kemur heim og segir að forsetinn hafl auð- vitað ýmsum skyldum að gegna? Iiann sniðgengur ekki dönsku kon- ungsfjölskylduna til að planta niður trjám eða syngja ættjarðarsöngva - er það? Ætli hann sér að fara að frýj- unarorðum Líndals, þá fyrst er Þegar Ólafur Ragnar Grímsson er orðinn eina von fjármagnsins í baráttu þess gegn formanni íhaldsins hefur mikið vatn fallið til Dýrafjarðar. Alþingi og stríðsglæpir í Írak össur Skarphéðinsson, formað- ur SamfyUdngarínnar, skrifar: Nú er upplýst að hermenn sem sendir voru til írak til að verja íraska borgara hafa gerst sekir um skipu- lagðar misþyrmingar á íröskum stríðsföngum. Varnarmálaráð- herra Bandaríkj- anna, Donald Rumsfeld, viður- kenndi í yflr- heyrslum í Bandaríkjaþingi 7. maí sl. að bandarískir her- menn hefðu staðið fyrir beinum pyntingum einsog raflosti í kynfæri og tungu, niðurlægingu einsog að þröngva föngum til kynferðislegra athafna og þvagláti hermanna yfir fólk í fjötrum. Ráðherrann sagði við yfirheyrslurnar að því miður ættu eftir að koma í ljós mun verri dæmi nm ifla meðferð á íröskum föngum. Það reyndist rétt. í RÚV var skömmu síðar haft eftir bandarísk- um ijölmiðlum að bandarískir her- menn væru sekir um nauðganir á konum og unglingsbörnum. I' ljós kom einnig af hálfu hátt- settra herforingja, að leyniþjónusta Bandaríkjanna hefur beinlínis lagt fyrir hermenn að sýna föngum hrottaskap og brjóta þá niður and- lega til þess að auðveldara sé að yfirheyra þá. Þá hefur verið fullyrt í bandarískum fjölmiðlum að að- ferðir sem þróaðar hafi verið í yfir- heyrslum fanga frá Afganistan, sem haldið er utan laga og réttar í Gu- antanama búðunum á Kúbu, hafi verið yfirfærðar til írak með vitund og vilja bandarísku herstjórnarinn- ar. Staðhæft er að sömu menn og stýrðu yfirheyrslum í Guantanamo búðunum séu meðal þeirra sem stýrðu illri meðferð á íröskum stríðsföngum. íslenska þjóðin, sem með ólög- mætum hætti var þröngvað til stuðnings við innrásina í írak, er höggdofa andspænis þessum upp- lýsingum. Engum dylst ábyrgð okk- ar á innrásinni í írak. Vissulega sendum við ekki þangað vopnum vædda stríðsmenn. Þeir buðu hins vegar fram aðstoð og ijármagn til að byggja upp í írak eftir niðurrifið og hörmungarnar sem jafnan fylgja stríði. Fyrir hönd íslensku þjóðar- innar lögðu þeir blessun hennar yfir innrásina, án leyfls hennar eða fulltrúa hennar á Alþingi. Við ís- lendingar erum því siðferðilega samábyrgð gagnvart írösku þjóð- inni engu síður en þegnar þjóðanna sem tilheyra þeim dapra hópi sem kallaður er öfugnefninu hinar 30 viljugu og staðföstu. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra hefur sagt að voðaverkin í írak megi á engan hátt verja, né þá sem standa fyrir slíku. „Það er skylda yfirstjórnar herliðsins í írak að láta þegar í stað fara fram opin- bera rannsókn á þeum alvarlegu ásökunum sem fram hafa komið og hinum seku verður að refsa," sagði ráðherrann. Margar glæparann- sóknir eru þegar hafnar í Bandaríkj- unum vegna þessa máls og margar kærur hafa verið lagðar fram. Eigi að síður er brýnt að utanríkisráð- herrann, sem batt okkur til stuðn- ings við innrásina, komi með form- legum hætti fram með þá kröfu gagnvart hlutaðeigandi ríkisstjórn- um að rannsókn og hæfilegar refs- ingar gagnvart hinum seku verði út reiddar. Það er hins vegar ekki nóg. Al- þingi er æðsta stofnun okkar. Það er óhjákvæmilegt að Alþingi lýsi skoð- un sinni á glæpaverkum hermanna innrásarliðsins í írak. Sjálfsagt er að ályktun af háifu Alþingi fordæmi ekki síður hefndaraðgerðir íraskra illvirkja sem til dæmis hálshjuggu bandarískan gísl og dreifðu ódæð- inu á myndbandi. Þessvegna þarf Alþingi sjálft að ræða og samþykkja ályktun um pyntingarnar í írak og brotin á Genfarsáttmálanum áður en þingið lýkur störfum. Takist ekki að ná samstöðu allra flokka mun Samfylkingin leggja slíka ályktun fyrir Álþingi í næstu viku. fjandinn laus í íslensku samfélagi - You aint seen nothing yet! Forsetinn hefur skyldum að gegna - hann hef- ur harms að hefna og stefnu að efna. Síðast þegar hann missti af ríkis- ráðsfundi var hann á skíðum. Þau mistök verða ekki endurtekin. For- setinn hefur boðað aukna þátttöku í dægurmálum og þar með opnað fyrir beitingu málskotsréttarins fræga. Allt lagt undir? Sumarið gæti orðið eftirminni- legra en ætla mátti. Það stefnir nefnilega í showdown á milli hinna fornu fjenda - loksins. Beiti forsetinn málskotsréttinum, það er neiti hann að skrifa undir ný lög um eignarhald á fjölmiðlum skal leggja málið fyrir þjóðina í allsherjaratkvæðagreiðslu. Forsætisráðherrann mun aldrei láta koma til þess heldur láta krók koma á móti bragði og rjúfa þing og efna til kosninga. Þá upphefst Sturlungaöld hin síðari á íslandi. I hönd færi kosn- ingabarátta sem að nafninu til sner- ist um fjölmiðlafrumvarpið en í raun væri einvígi tveggja manna: Davíðs Oddssonar og Ólafs Ragnars Gríms- sonar. í þeim hildarleik mætti hvor- ugur við tapi. Gjaldi Davíð og Sjálf- stæðisflokkurinn afhroð í þeim slag markar það háðugleg og niðurlægj- andi endalok stjórnmálamanns sem borið hefur ægishjálm yfir aðra í ára- tug. Sigur forsetans yrði þeim mun sætari. Þar með hefði hann ekki ein- ungis auðmýkt helsta andstæðing sinn heldur brotið blað í sögunni og breytt eðli forsetaembættisins. Ólaf- ur Ragnar yrði í raun valdamesti maður landsins. Ótti Framsóknar Fæm kosningarnar hins vegar þannig að fjármagnið og oligarkarn- ir skiluðu sér aftur til Valhallar og tryggðu áframhaldandi valdasetu Davíðs hampaði hann sínum stærsta sigri og stórbrotnum endalokum á glæstum ferli. Hann festi sig í sessi sem hinn eini sanni Bubbi kóngur. Háðung forsetans yrði alger og af- sögn óumflýjanleg. Ólafur Ragnar sykki þar með í sæ ásamt forseta- embættinu. Ástæðan fyrir ótta framsóknar- manna, sem farinn er að gera vart við sig í þingsölum, er að þeir skilja þá vá sem heimkoma forsetans boð- ar. Þeir vita sem er að ffamsókn tap- ar hvernig sem uppgjörinu lyktar. Málskot og þingrof þýða að samn- ingurinn um forsætisráðuneyti handa Halldóri í september yrði einskis virði og orðin tóm. Framsókn mun því allt gera til að koma í veg fyrir showdown sem úr þessu verður erfitt að afstýra nema einhver gangi sár af velli. Færsla Hringbrautar Þóróifur Ámason borgarstjóri skrifar: í leiðara DV flmmtudaginn 15. maí sl. fjallar Illugi Jökulsson um þá ákvörðun Reykjavíkurborgar að verða eldd við óskÁtakshóps Höf- uðborgarsamtakanna-Samtaka um „_IMU,->5ai betri byggð um að kosið verði um M |-<] færslu Hringbrautar W 8H igÉH samhliða forseta- M kosningum í sumarr> /\ —jH Eitt vil ég gera at- gk ’ hugasemd við, en það er sá útgangs- punktur ritstjórans að ástæða þess að erindinu var hafnað ltafi verið sú að undirritaður hafi talið „að málið sé of flókið fyrir borgarbúa að kjósa um.“ f svari við erindi Átakshópsins dags. 4. maí sl. rakti ég ítarlega til- drög þeirrar ákvörðunar, sem tekin var fyrir ári, að færa Hringbrautina til suðurs. Unnið hefur verið í sam- ræmi við þá ákvörðun síðan og meðal annars gerðir bindandi samningar við Landspítala - há- skólasj úkrahús, Knattspyrnufélagið Val og verktakafyrirtældð Háfell. í sldpulagsvinnu og við mat á um- hverfisáhrifum færslunnar hafði mikill fjöldi borgarbúa áhrif á niður- stöðu málsins með athugasemdum sínum í virku íbúalýðræði. Það er hinsvegar mitt mat að ekki sé rétt að kjósa um það hvort Reykjavíkurborg eigi að standa við gerða samninga, byggða á réttmætum, lýðræðislega teknum ákvörðunum. Ih ú áHji fÍÉ| a» LAGERSDLUNNI 4 AÐ AKRALIND 4, KÓPAVDGI LÝKUR U M HELGINA N Ú ERU SÍÐUSTU DAGAR LAGERSÖ LU N N AR AÐ AKRALIND 4, KÓPAVDGI. SÝNISHORN, LJTLITSGALLAÐAR VÖRUR OG MARGT ANNAÐ SPENNANDl Á HLÆGILEGU VERÐI. ALLT Á AÐ SELJAST. KDMIÐ □ G PRÚTTIÐ! □ PIÐ Á LAUGARDAG J □ -16 □ G SUNNUDAG 13-16 awweMqi HMMM ■hnmmmmmmmmmmhI ■mmmmmmmmmm mmi;: 1 f p ^, -r „ , I TEKK ICDMPANY BÆJARLIND 14-16 | 201 KÓPAVOEI | SÍMI 564 4400 | FAX 564 4435 | TEKK@TEKK.IS | WWW.TE1KK.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.