Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Blaðsíða 8

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Blaðsíða 8
18 TIMARIT VFI 1970 Verkfræðimenntun á Islandi Verkfræðikennsla við Háskóla íslands Eftir Pál Theodórsson Skömmu eftir að heimsstyrjöld- in síðari skall á lokuðust verkfræði- háskólar meginlands Evrópu fyrir ís- lenzkum stúdentum. Islenzkir náms- menn, sem vildu leggja stund á verk- fræði, höfðu nær eingöngu sótt til þessara landa. Því var haustið 1940 brýn nauðsyn að opna nýjar leiðir fyrir þá nýstúdenta, sem vildu leggja stund á verkfræði. Til þess að leysa þennan brýna vanda var með stutt- um fyrirvara gripið til þess ráðs að hefja kennslu til fyrri hluta prófs í verkfræði við Háskóla íslands. Kennslan var í öllu sniðin eftir kröf- um verkfræðiháskóla Norðurlanda, einkum þó tækniháskóla Danmerk- ur, þvi vonast var til að leiðin til þessara landa mundi opnast að nýju í tæka tíð. Þegar fyrsti hópur stú- denta lauk fyrri hluta prófi vorið 1943 þótti séð, að styrjöldin mundi enn dragast nokkuð á langinn. Var því ákveðið að hefja einnig kennslu í síðari hluta byggingarverkfræði. Aðeins einn árgangur lauk þó fullu verkfræðiprófi frá Háskóla Islands. Þegar háskólar Norðurlanda opn- uðust að nýju að styrjöldinni lok- inni, var horfið að því ráði að hafa við háskólann einungis kennslu til fyrri hluta prófs í verkfræði. Senn eru liðin þrjátíu ár frá því kennsla hófst í verkfræði við Há- skóla Islands. Á þessum þremur ára- tugum hafa orðið fremur litlar breyt- ingar á verkfræðináminu við deild- ina. Um alllangt skeið hefur þó verið rætt töluvert um að hefja hér kennslu til lokaprófs í verkfræði. Nú eru þessar hugmyndir loks að verða að veruleika, því í haust hefur fyrsti stúdentahópurinn fjögurra ára verk- fræðinám, sem mun ljúka með BS- prófi. 1 tilefni þessara tímamóta í sögu verkfræðideildarinnar er þetta hefti og hið næsta helgað verkfræðimennt- un á Islandi. 1 þessari grein verða störf og þró- un verkfræðideildarinnar frá stofn- un hennar rakin stuttlega og enn- fremur aðdragandi þeirra breytinga á náminu, sem nú er verið að gera. I árbók Háskóla Islands 1940-41 er sagt frá upphafi verkfræðikennslu við skólann: „Háskólaráð leitaði sam- vinnu við stjórn Verkfræðingafélags Islands um að koma á kennslu í verkfræði, er fyrst um sinn skyldi miðuð við kröfur þær, sem gerðar eru til fyrri hluta prófs á Norður- löndum. Kennslumálaráðuneytið féllst á tillögur háskólaráðs og Verkfræð- ingafélagsins og heimilaði að verja 7000 kr. á þessum vetri til kennsl- unnar. Var kennsla þessi hafin í nóvembermánuði og voru 8 stúdent- ar skráðir til þessa nárns." Fyrsta veturinn sáu eftirtaldir menn um kennsluna: Bolli Thoroddsen Finnbogi R. Þorvaldsson Trausti Ólafsson Brynjólfur Stefánsson Steinþór Sigurðsson Sigurður S. Thoroddsen Sigurkarl Stefánsson. Leifur Ásgeirsson kom að háskól- anum haustið 1943 en Trausti Ein- arsson ári síðar. Ég vil rekja áfram þróun verk- fræðideildarinnar fyrstu árin með tilvitnunum í árbók Háskóla Islands. Á háskólahátíðinni haustið 1943 vék þáverandi rektor, prófessor Jón Hj. Sigurðsson, að verkfræðikennslunni í hátíðarræðu sinni: „1 þrjú ár hefur háskólinn veitt undirbúningskennslu í verkfræði og svarar þessi kennsla að öllu leyti til undirbúningskennslu í verkfræði á Norðurlöndum. Hefur Verkfræðingafélag Islands verið í ráðum og stutt þessa viðleitni há- skólans, og margir félagsmenn hafa lagt á sig kennslustörf fyrir lágt kaup. Nú í vor luku 6 nemendur prófi í þessum undirbúningsgreinum. Þeir þurfa að halda náminu áfram og óska eindregið að gera það hér á landi. Háskólaráð samþykkti því í sumar, að tekin væri upp kennsla tii fullnaðarprófs í byggingarverk- fræði. Ríkisstjómin féllst á þessa tillögu og samþykkti fjárveitingu í þessu skyni. Vér vonumst til þess, að hið háa alþingi samþykki þessa fjárveitingu og að hér sé fyrsti vísir- inn að reglulegri verkfræðideild i háskólanum, sem vafalaust á fyrir sér að þroskast." 1 hátíðarræðu sinni ári síðar vék háskólarektor, prófessor Jón Hj. Sigurðsson, aftur að málefnum verk- fræðikennslunnar: „Kennsla í byggingarverkfræði til fullnaðarprófs hófst haustið 1943. öll kennsla til verkfræði við Há- skóla Islands er ólögbundin, aðeins veitt fé til hennar á fjárlögum og fjáraukalögum. Háskólaráði virðist þetta fyrirkomulag ófært og fór því fram á það við stjórn og Alþingi að háskólalögum yrði breytt og stofn- uð ný deild, verkfræðideild, við há- skólann." Skjótt var brugðizt við þessum óskum háskólans, þvi með nýjum há- skólalögum frá 24. janúar 1945 var verkfræðideild loks lögfest. Samkv. hinum nýju lögum skyldu 3 próf- essorar starfa við deildina. Frá 1. júlí 1945 voru eftirtaldir kennarar við deildina skipaðir prófessorar: Finnbogi Rútur Þorvaldsson Leifur Ásgeirsson Trausti Einarsson. Með lögfestingu verkfræðideildar- innar og skipun hinna þriggja prófessora má segja að verkfræði- deildin hafi fengið þá skipan, sem hún hefur búið við allt fram á þenn- an dag. Á næstu tveimur áratugum var tveimur prófessorum bætt við kennaralið deildarinnar, en í bæði skiptin fremur til að fylla upp í hið eldra form, en að um nýjung væri að ræða varðandi kennslu deild- arinnar. Þorbjörn Sigurgeirsson eðl- isfræðingur var skipaður prófessor 29. ágúst 1957 og Magnús Magnús- son eðlisfræðingur hinn 15. sept. 1960. Hinu nýja prófessorati 1957 fylgdi mjög markverð nýjung. I há- skólalögunum frá 17. júní 1957 seg- ir: „Prófessorinn í eðlisfræði er

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.