Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Blaðsíða 21
TlMARIT VFl 1970
31
SU OUS OAT*
Þegar á þessu ári er gert ráð fyrir að hefja framkvæmdir við byggingu
fyrsta áfanga að nýju kennsluhúsnæði fyrir Verkfræðideild. Myndin sýnir
staðsetningu byggingarinnar.
holti, en fyrstu tvö ár námstímans
munu stúdentarnir hins vegar
stunda nám í undirstöðugreinum á
svæðinu við Suðurgötu.
Kennslubyggingar
Áður en langt um líður má gera
ráð fyrir, að verkfræðideild skiptist
í skorir eftir kennslugreinum. Miðað
við núverandi kennslu liggja fyrir
tillögur um skiptingu í stærðfræði-,
eðlisfræði-, verkfræði- og náttúru-
fræðiskor, en með aukinni kennslu
mun án efa verða frekari skipting,
t.d. þannig að verkfræðiskor skipt-
ist í byggingar-, véla-, rafmagns- og
efnaverkfræði og náttúrufræðiskor í
líffræði- og jarðfræðiskor. Við hönn-
un einstakra kennslubygginga þarf
að hafa þessa skiptingu í huga, og
meginstefnan hlýtur að verða sú, að
hver skor fái sína byggingu til um-
ráða.
1 sérhverri kennslubyggingu er því
rétt að gera ráð fyrir skrifstofu-
húsnæði með aðstöðu til fjölritunar
og annars þess háttar, bókasafni
vegna sérþarfa skorarinnar ásamt
tilheyrandi lesstofum og lítilli kaffi-
stofu með eldhúsi. 1 tillögum nefnd-
arinnar er gert ráð fyrir, að fyrir-
lestrarstofur verði aðallega þrenns
konar, þ.e. 4,5x7,5 ms með um 18
sætum, 6x7,5 m: með um 36 sætum
og 12x7,5 m- með um 72 sætum. Að
auki verður svo að reikna með ein-
stöku stærri stofum, sem rúmi um
144 manns í sæti. Æfingastofur eru
allar fyrirhugaðar 9x7,5 m- að flat-
armáli með um 18 sætum hver.
Skiptast þær í eðlisfræði-, efnafræði-
og teiknistofur, en i hinum síðast-
töldu er einnig gert ráð fyrir reikni-
æfingum og umræðufundum. Jafn-
framt myndu teiknistofur stúdenta,
sem lengra eru komnir í námi, verða
notaðar sem lesstofur þeirra. Yfir-
leitt er reiknað með að hverjum
tveimur kennslustofum fylgi herbergi
3x7,5 m2, þar sem geymd verða ýmis
kennslugögn. Jafnframt verða her-
bergi þessi notuð til undirbúnings að
verklegri kennslu og sem vinnuher-
bergi þeirra kennara, sem ekki eru
fastráðnir að viðkomandi skor.
Vinnuherbergi fastráðinna kennara
eru fyrirhuguð um 3x5,5 m- auk um
6 m2 anddyris, þar sem einnig verða
skjalageymslur.
Við fullnaðarhönnun kennslubygg-
inga telur nefndin að hafa beri m.a.
eftirfarandi í huga: Allar kennslu-
stofur skuli njóta dagsbirtu, en jafn-
framt verði hægt að myrkva þær.
1 stærstu stofum verði aðstaða til
kvikmyndasýninga og í öllum stof-
um verði gert ráð fyrir myndvörpum
og öðrum slíkum kennslutækjum. Séð
verði fyrir stórum töfluflötum, t.d. á
þann hátt, að hluta þeirra verði hægt
að skjóta til hliðar frá töflum, sem
bak við standa. Ekki er talin á-
stæða til að gera ráð fyrir sérstök-
um loftræstibúnaði í kennslubygg-
ingum nema í stofum til verklegra
æfinga í efnafræði og frá kaffistof-
um og eldhúsi.
Húsnæðisþörf 1970-1975
Miðað við fyrirhugaða kennslu á
háskólaárinu 1969-1970 má gera
ráð fyrir, að nauðsynlegt kennslu-
húsnæði á því ári verði 2 fyrirlestr-
arstofur með* um 18 sætum hvor, 2
með 36 sætum hvor og ein með 72
sætum. Ennfremur 5 teiknistofur
með 18 sætum hver og 2 stofur til
verklegra æfinga i efnafræði m»ð 18
sætum hvor. Hér er þá gert ráð fyr-
ir, að verkleg kennsla í eðlisfræði
verði áfram í gömlu loftskeytastöð-
inni við Suðurgötu og að verkleg
kennsla í náttúrufræðum verði í húsi
Atvinnudeildar Háskólans.
Á árabilinu frá 1970-1971 er gert
ráð fyrir að tekin verði upp kennsla
til fyrrihlutaprófa í eðlis- og efna-
verkfræði, aukin kennsla til kenn-
araprófa í stærðfræði, eðlisfræði og
náttúrufræðigreinum og kennsla í
síðarihlutagreinum verkfræði. Nefnd-
in hefur reynt að gera sér grein fyrir
húsnæðisþörfum deildarinnar við lok
þessa tímabils og eru niðurstöður
þeirra athugana í eftirfarandi skrá,
en jafnframt er gert ráð fyrir að
verkleg kennsla í náttúrufræðigrein-
um verði áfram í húsi Atvinnudeild-
ar. Þar verði ennfremur sköpuð
vinnuaðstaða fyrir kennara í þeim
greinum «g lesaðstaða fyrir stúdent-
ana, en á rannsóknaaðstöðu hefur
verið minnzt áður. Fjórir af sex
föstum kennurum verkfræðideildar
hafa nú vinnuherbergi í húsakynn-
um Raunvisindastofnunar, en gert
er ráð fyrir, að þeir verði átta við
lok umrædds tímabils.
1 áætlunum um húsnæðisþörf hef-
ur, eins og áður var minnzt á, eink-
um verið stuðzt við nefndarálit um
líklega „Þróun verkfræðideildar ára-
tugina 1970-1990“. Þar er gert ráð