Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Blaðsíða 19

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Blaðsíða 19
TIMARIT VFI 1970 29 Þá er hugsanlegt að taka upp kennslu í húsagerðarlist, en hún er t.d. liður í starfsemi verkfræðihá- skóla í Noregi, Svíþjóð og Þýzka- landi. Athugandi er, hvort ekki sé ástæða til að hefja kennslu til fyrrihlutaprófs fyrr en nú er, og þá væntanlega með sam- komulagi við háskóla í Noregi og Sviþjóð. Ennfremur er æskilegt, að aðstaða skapist til framhalds- náms (postgraduate-náms) í nokkr- um sérstökum greinum raunvísinda, jafnvel fyrr á áætlunartímabilinu. 8. Heiidaryfirlit. 1 eftirfarandi skrá IV er heildar- yfirlit yfir hugsanlega þróun verk- fræðideildar, að því er varðar kenn- ara og fjölda kennslustunda. Skráin nær yfir þau tímabil, sem sundur- liðaðar áætlanir hafa verið gerðar um. Um annað starfslið en kennara hefur ekki verið fjallað hér að fram- an, en í skránni er gerð lausleg áætl- un um fjölda slíkra starfsmanna. SKRÁ IV Starfslið og kennsla 1970-1980 1970 1975 1980 Starfsliö Fjöldi h/viku Fjöldi h/viku Fjöldi h/viku Þrófessorar 9 65 14 95 22 170 Dósentar 10 70 14 110 24 185 Lektorar 9 30 17 60 28 100 Stundakennarar (16) 60 (30) 115 (50) 190 Aðrir 4 - 6 - 9 - Samtals (48) 225 (81) 380 (133) 645 Fréttir Fréttir Fréttir Ráðstefnur. Dagana 20. 22. októbcr n.k. verður haldin ráðstefna í Edinborg um dreif- ingu raforku í Edinborg. Ráðstefnan verður haldin á vegum Institution of Electrical Engineers. Framfarir í notkun rafreikna hef- ur verið geysiör. Jafnframt þvi að tölvumar verða hraðvirkari og flókn- ari, verður í mörgum tilvikum æ ein- faldara að nota þær. Það er ekki lengur aðeins á færi þeirra, sem hafa notið langrar þjálfunar, að vinna með tölvur að lausn flókinna verk- efna. Verkfræðingar, læknar, félags- fræðingar og svipaðir hópar vinna nú í ört vaxandi mæli með tölvunr. Því hafa samskipti tölvanna og not- enda þeirra orðið sífellt mikilvæg- ari. Það sem fyrir örfáum árum hefði hljómað sem skáldskapur er nú stundum veruleiki. Þannig var ný- lega haldin ráðstefna í Bretlandi um efnið ,,Man-computer interaction“. Dagana 16.-21. nóvember n.k. verð- ur haldin í London ráðstefna um mannvirkjagerð á vegum opinberra aðila (public works and municipial services). Jafnhliða ráðstefnunni verður geysistór innanhússsýning á margvíslegum tælcjum, sem notuö eru við alla hugsanlega mannvirkja- gerð. Að sögn þeirra, sem fyrir ráð- stefnunni standa er þetta stærsta sýning sinnar tegundar í Evrópu og innanhússsýningarsvæðið yfir 40 þúsund fermetrar. Sem dæmi um þau tæki, sem verða sýnd á sýning- unni, má nefna: malbikunarvélar steypuvélar kranar tæki og áhöld fyrir teiknistofur jarðvinnuvélar hlífðarefni gegn tæringu dælur pípur vinnupallar dráttarvélar og ýtur gröfur. Frekari upplýsingar um ráðstefn- una og sýninguna má fá hjá Public Works and Municipal Services Exhi- bition, 3 Clement’s Inn, London WC 2. Leysisgeisli við mannvirkjagerð. Ein af merkustu uppfinningum síðasta áratugs hefur nú verið tekin I notkun við margvíslega mann- virkjagerð. Leysir er ljósgjafi sem sendir frá sér samfasa ljós og er því hægt að beina ljósinu í örgranna geisla, sem eru nærri fullkomlega samsíða, þannig að ljósið dreifist nær ekkert. Slíkur geisli er að sjálfsögðu kjörinn til að festa beina línu. Hin síðari ár hafa leysarnir jafnt og þétt orðið ódýrari í framleiðslu, og einfaldari að gerð og í notkun. Notkunarmöguleikarnir hafa jafnt og þétt aukizt. Elliott Automatic Radar Systems Ltd. í Englandi setti nýlega á markaðinn lítinn og hand- hægan leysi, sem ætlaður er til notk- unar við mannvirkjagerð. Eftir að leysirinn hefur verið settur upp og stefna hans stillt hefur fengizt þráð- bein lina, sem mjög fljótlegt er að hafa til miðunar. Slíkir leysar eru mjög hagkvæmir þar sem þarf að hafa t.d. jafnan halla, gera löng og bein göng, vegi og margt fleira. Stærð leysisins er 70x8x9 cm og hann vegur 7 kg. Tímarit VerkfræðiiiKafélags Islands kem- ur út sex sinnum á. ári. Ilitstjóri: Páll Theódórsson. llitncfml: Dr. Gunnar Sig- urðsson, Jakob Björnsson, Vilhjáimur Lúövíksson, Þorbjöm Karlsson og Birgir Frímannsson. Fram.kv.stj. rltnefndar: Gísli Ólafsson. STEINDÓRSPRENT H.F.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.