Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Blaðsíða 14

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Blaðsíða 14
24 TlMARIT VFÍ 4970 urri átt í okkar litli þjóðfélagi að vera með tvo dýra skóla, sem út- skrifa menn með að miklu leyti hlið- stæða menntun, þ.e.a.s. tækniskóla eftir 3 ár og verkfræðideild Háskól- ans eftir 4 ár. Það virðist þvi sjálf- sagður hlutur að sameina þessa tvo skóla í einn skóla, sem útskrifi menn með verkfræðipróf. Á þessu stigi er varla rétt að taka afstöðu til þess, hvort slíkur skóli á að vera innan eða utan Háskóla Is- lands. Sé skólinn innan ramma há- skólans, mundi kennsluaðstaða ann- arra deilda nýtast. Hins vegar er framkvæmdastjórn innan háskólans tæpast til, og getur það orðið hættu- legt fyrir starfsemi skólans. Einnig má vera, að ýmis grundvallarsjónar- mið og hefðir innan háskólans gætu orðið það mikill fjötur um fót eðli- legum vexti og þroska slíkrar kennslu, að heppilegra sé að stofna nýjan og sjálfstæðan tækniháskóla, sem gæti byggt sína starfsemi upp frá grunni. Sjálfstæður tækniháskóli ætti líka að sumu leyti auðveldara með að notfæra sér aðstöðu sérskóla s. s. vélar Vélskóla Islands, svo nokkuð sé nefnt. Þetta og margt fleira eru atriði, sem þarf að kanna, áður en endanleg ákvörðun er tekin. Á þessu stigi telur nefndin nægilegt, að lagt sé til, að þessir tveir skólar sameinist í einn skóla, sem hér á eftir verður nefndur Tækniháskólinn. Eins og áður er sagt, hefur Tækniskóli Islands starfrækt undir- búningsdeildir, sem hafa opnað mönn- um með gagnfræðapróf eða sveins- próf leið inn í skólann. Nefndin telur, að margir mjög góðir menn geti komizt inn í stéttina með því að opna slíka leið og leggur því til, að undirbúningsdeildirnar starfi áfram og opni þannig braut inn í Tæknihá- skólann. 1 okkar þjóðfélagi er mikill skort- ur á mönnum með tæknimenntun, sem er talsvert meiri en hjá iðnaðar- mönnum, en hins vegar minni en hjá verkfræðingum. Nefndin leggur til að hafin verði slík kennsla, og væri hún hugsuð fyrir menn, sem fást við stjórnun á iðnlærðum mönnum, vandasama verkstjórn t. d. í verk- smiðjum og iðnaði, eftirlit, gæðamat og hliðstæð störf. Nefndin hefur kallað þetta iðnfræðinám og þá, sem þvi hafa lokið, iðnfræðinga. Það væri ekki óeðlileg krafa, að þeir, sem vilja verða meistarar í iðn- grein, hefðu lokið slíku iðnfræði- námi. Slíkt nám mundi fylla þá þörf, sem Tækniskóli Islands átti að fylla, en hefur ekki gert að okkar dómi. Nefndin telur mjög nauðsynlegt, að sem nánust og eðlilegust tengsl séu milli rannsóknarstofnana atvinnuveg- anna og Tækniháskólans. Bæði er það, að nemendur þurfa að læra að notfæra sér almennar rannsóknir í starfi og eiga kost á að vinna að sérstökum rannsóknarverkefnum, og svo þurfa kennarar að hafa að- stöðu til að stunda sjálfstæðar rannsóknir. Æskilegt væri að hafa á sem flestum sviðum rannsóknarstof- ur til kennslu í sjálfum skólanum, þannig að einungis þyrfti að sækja aðstöðu til rannsóknarstofnana at- vinnuveganna í sambandi við sérstök verkefni. Engu að síður þurfa að vera náin tengsl, og teljum við eðli- legast að þeim sé náð með því að leggja ákveðna kennsluskyldu á herðar hinna einstöku rannsóknar- stofnana. Verkfræðikennslan, markmið og leiðir. Eins og áður er sagt, leggur nefndin ríka áherzlu á, að námið sé sniðið eftir þörfum íslenzks atvinnu- lífs. Til að stuðla að því er lagt til að VFl skipi nefndir, eina fyrir hverja af þeim aðalgreinum verk- fræðinnar, sem kenndar verða við Tækniháskólann. Nefndirnar hafi það verkefni að vera skólanum til ráðuneytis um val á námsefni og kennslubókum fyrir viðkomandi verkfræðigrein, og stuðli þannig að því, að námsefnið hæfi sem bezt ís- lenzku atvinnulífi. Að öðru leyti þarf námið að upp- fylla þær kröfur, sem erlendir há- skólar og rannsóknarstofnanir gera til almenns verkfræðináms, áður en farið er í sérnám, og námið þarf að vera þannig, að hægt sé að fá við- urkenningu erlendra verkfræðifélaga á því, og á þann hátt full starfsrétt- indi erlendis fyrir þá sem útskrifast úr skólanum. Námið þarf að fullnægja þeim námskröfum, sem nú eru gerðar bæði til verkfræðinga og tæknifræðinga. Námið verður að vera á breiðum fræðilegum grundvelli innan aðalsér- greina verkfræðinnar (þ.e.a.s. bygg- inga-, véla-, efna-, þar með talin mat- vælaefnafærði, og rafmagns-verk- fræði.) tJtskrifaðir verkfræðingar verða að geta starfað jöfnum hönd- um á þeim þremur aðalsviðum, þar sem flestir verkfræðingar starfa nú, þ. e. a. s., að (1) rannsóknum og kennslu; (2) hönnun og (3) rekstri, þar með talin viðskipti og stjórnun. Þó má gera ráð fyrir, að sú krafa verði gerð til allra þeirra, sem leggja stund á rannsóknir eða verkfræði- kennslu, að þeir afli sér framhalds- menntunar erlendis. Nefndin telur það mjög mikilvægt, að námið sé byggt á breiðum grundvelli, þannig að menn geti farið hvort heldur sem er í rannsóknir, hönnun, rekstur eða stjórnun á hvaða sviði sem er innan aðalgreina verkfræðinn- ar (þ.e.a.s. jafnt i húsbyggingar, hafnargerð eða vegagerð fyrir bygg- ingaverkfræðinga o. s. frv.) Sér- hæfing kemur fyrst i framhaldsnámi. Auk hinnar fræðilegu kennslu þarf Tækniháskólinn að leggja rika áherzlu á að kenna nemendum sínum fagleg vinnubrögð við lausn verkefna. Með faglegum vinnubrögðum er hér átt við, að verkefnin séu leyst með skipulegri og markvissri vinnu, sem ef til vill mætti flokka þannig: (1) gagnasöfnun, (2) flokkun og úr- vinnsla gagna, (3) skilgreining verkefnis, (4) skoðanamyndun eða hönnun, (5) sannreynsla hönnunar eða skoðunar, (6) framsetning. Nefndin vill benda á, að margar mismunandi leiðir eru til að leysa verkefni hvers stigs, og má þar nefna fræðilegar leiðir, alls kyns athuganir, mælingar og tilraunir, verkfræðilega dómgreind og síðast en ekki sízt að kunna að afla sér reynslu og þekkingar og notfæra sér síðan bæði reynslu og þekkingu sína og annarra. Við lausn verkfræðilegra viðfangsefna verður alltaf að nota margar leiðir og láta niðurstöðurnar styðja hverja aðra. 1 sambandi við framsetningu hönnunar eða skoðun- ar er ekki síður mikilvægt að kenna notkun talaðs og ritaðs máls, en teiknun. Oft er því borið við, þegar rætt er um einhverja starfsemi hér á landi, að fjárskortur hamli eðlilegri starf- semi, og eru þá einhverjir vondir menn í ráðuneytum eða ríkisstjórn, sem skera niður allt, sem um er beðið. Ekki er að efa, að þetta er oft alveg rétt, en þó má vera, að stundum sé þetta fyrirsláttur og þægileg afsökun þeirra, sem ekki hafa gefið sér tíma til að kynna sitt mál nægilega vel fyrir ráðamönnum. Til að höggva á þennan Gordions- hnút leggur nefndin til, að skólinn öðlist heimild til að taka skólagjöld af nemendum slnum til þess að standa straum af bóka- og tækja- ]

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.