Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Blaðsíða 15

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Blaðsíða 15
TÍMARIT VFl 1970 25 kaupum og öðrum kostnaði, sem op- inberar fjárveitingar fást ekki fyrir. Með slíku heimildarákvæði er skólan- um vorkunnarlaust að afla sér fjár til eðlileg:rar starfsemi. Þessi heim- ild yrði svipa, bæði á stjórnmála- mennina og stjórnendur skólans. Við nemendur er það að segja, að í fyrsta lagi er ódýrara að greiða skólagjöld hér, en að kosta sig til náms erlendis, og í öðru lagi er ekkert dýrara, bæði fyrir nemandann og þjóðfélagið í heild, en lélegur skóli. 1 okkar litla þjóðfélagi er það allt- af vandamál, hvernig hægt sé að halda uppi fyrsta flokks gæðum í starfsemi, sem háð er starfshæfni eins eða örfárra einstaklinga. Ef lé- legur maður fær veitingu fyrir embætti, þá getur hann setið þar í marga áratugi og staðið í vegi fyrir öllum eðlilegum framförum, og það er svo til útilokað að losna við hann. Ef það sama hendir með kennara við Tækniháskólann, getur það haft þær afleiðingar, að fjöldi árganga frá skólanum verði illa menntaður og jafnvel illa fær um að taka við þeim störfum, sem þjóðfélagið hlýtur að krefjast af honum. 1 stórum lönd- um eru oftast margir háskólar og því lítil hætta á að þeir verði allir slæm- ir, enda myndast eðlileg samkeppni milli þeirra, sem stuðlar að auknum gæðum kennslunnar. Það er því geysimikil nauðsyn fyrir okkur að finna sem bezta leið til að tryggja varanleg gæði kennslunnar. I þessu sambandi vill nefndin leggja til, að kennarar séu aðeins ráðnir til 5 ára í senn. Ári áður en ráðningartíminn er liðinn skal ráðning þeirra endur- skoðuð. Við endurskoðun skal tekið tillit til álits stúdenta á kennaraeig- inleikum kennarans og þekkingu hans á námsefninu. Einnig skal það metið, hvort hann hafi unnið að rannsóknum og aukið þannig við þekkingu á sínu sérsviði, og hvort hann hafi skrifað vísindagreinar um það efni, og birt þær í viðurkennd- um timaritum. Einnig skal tekið til- lit til þess, að hve miklu leyti við- komandi kennari hafi kynnt sina sér- grein fyrir íslenzkum atvinnuvegum og almenningi og aukið henni álit. Með þessu er lagt til, að kennarar gangi undir próf á 5 ára fresti bæði hjá nemendum og öðrum hlutlægum aðila, helzt stjórn skólans, ef hún er til. Þetta getur reynzt slæmt fyrir einstaka kennara, en séu þeir kenn- arar látnir halda áfram störfum yrði afleiðingin ennþá alvarlegri fyrir stéttina og þjóðfélagið í heild. Alltaf má gera ráð fyrir misbeitingu á slíku valdi, en til lengdar er það hættu- minna en léleg menntastofnun með stöðnuðum hugsanagangi. Auk kennslunnar þarf að vinna markvisst að því að skapa sem bezta aðstöðu til kennslu, tilrauna og rann- sókna við skólann. Koma þarf upp góðu tæknilegu bókasafni og nauð- synlegt er að kenna stúdentum að notfæra sér það. Laun kennara þarf að hækka það mikið, að þeir geti helgað sig kennslu og grundvallar- rannsóknum á sínu sérsviði, enda eru í þessu nefndaráliti gerðar kröfur um að þeir geri það, og þeim ákvæðum þarf að fylgja eftir, eins og rætt var um hér að framan. Eftirlit. Það er ekki nóg að skapa góðan skóla, það þarf að hafa gott eftirlit með því, að gæðin haldist. Slíkt eft- irlit þarf bæði að vera frá hendi skól- ans sjálfs og frá utanaðkomandi að- ila. Samkvæmt lögum um rétt manna til að kalla sig verkfræðinga, húsa- meistara eða tæknifræðinga, nr. 44 frá 1963, má engum veita leyfi til að kalla sig verkfræðing...... „nema hann hafi lokið fullnaðarprófi í verkfræði við fjöllistaskóla eða tekniskan háskóla, sem stéttarfélag verkfræðinga hér á landi viðurkenn- ir, sem fullgildan skóla í þeirri grein".... Hér er skýlaus kvöð sett á herðar VFl um að fylgjast með menntun verkfræðingastéttarinnar í landinu. Til að sinna þessu verkefni leggur nefndin til, að VFl skipi launaðar nefndir, eina fyrir hverja grein verk- fræðinnar, sem kennd er hér við Tækniháskólann. Þessar eftirlits- nefndir skili stjórn VFl skriflegri skýrslu árlega um störf sín. Eftirlitsnefndirnar verða að kynna sér námsefni, kennslu og kennsluað- stöðu við erlenda háskóla og bera það saman við námsefni, kennslu og kennsluaðstöðu hér. Með kennslu og kennsluaðstöðu er hér átt við viðhorf stúdenta og kennara til skólans og námsins, menntun, laun og vinnuað- stöðu kennara, aðstöðu til tilrauna og rannsókna, gæði bókasafns skólans o. s. frv. Jafnframt verða eftirlits- nefndirnar að prófa árlega nokkra nýútskrifaða verkfræðinga til að kynnast af eigin raun þekkingu þeirra, og meta gæði skólans á þann hátt eftir gæðum framleiðslunnar. Þetta er að sumu leyti hliðstæð starfsemi og framkvæmd er af bandarísku verkfræðingafélögunum, en þau fylgjast með gæðum sinna skóla. Væri mjög æskilegt að fá eftirlitsmenn þeirra hingað, t. d. á 5 ára fresti, til að athuga gæði íslenzka skólans og ræða við nefnd VFl og skólastjórnina. Bezt væri ef slíkt mat gæti orðið grundvöllur fyr- ir viðurkenningu bandarísku verk- fræðingafélaganna, og þá um leiö við- urkenningu bandarískra háskóla fyr- ir prófum frá Tækniháskólanum. Yrði þá auðveldari eftirleikurinn um að fá viðurkenningu stéttarfélaga og háskóla annarra landa. Framkvæmdahraði. Eins og áður er greint er nefndin þannig skipuð, að einn maður er úr hverri aðalgrein verkfræðinnar. Nefndinni finnst því ekki eðlilegt, að hún láti í ljós neitt álit á þvl, hve- nær hefja eigi kennslu til lokaprófs í einstökum greinum verkfræðinnar. Nefndin telur nauðsynlegt að undir- búa það mál mjög rækilega, m. a. með því að gefa námsbrautanefndum og eftirlitsnefndum færi á að starfa og koma jafnframt á nauðsynlegum skipulagsbreytingum. Tryggja verð- ur, áður en kennsla er hafin, að þeir, sem útskrifast, öðlist réttindi til að kalla sig verkfræðinga, bæði hér heima og erlendis. Að öðru leyti er eðlilegt, að Tækniháskólinn ákveði sjálfur, hvenær þörf sé á að taka upp kennslu til lokaprófs í hverri grein.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.