Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Blaðsíða 17

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Blaðsíða 17
TlMARIT VFl 1970 27 Stokkhólmi (K.T.H.) og Lundi (L.T.H.). Eitt af meginvandamálum verk- fræðideildar er, hvernig gera á stúdenta hlutgenga til síðarihluta- náms við fjóra tækniháskóla, sem allir kenna nokkuð mismunandi námsefni fyrstu árin, án þess að lengja námstímann eða hlaða á hann um of. Erfiðleikar þessir munu fara vaxandi með fjölgun stúdenta vegna óhjákvæmilegra samninga við fleiri erlenda verkfræðiháskóla til að tryggja þeim skólavist við fram- haldsnámið. Núverandi kennsla til BA-prófs í raungreinum miðast við þriggja ára nám. Jafnframt raungreinanámi þarf stúdentinn að ljúka prófi í kennslu- fræðum. Heimspekideild annast kennslu i þessum fræðum, en vegna þess hversu nú háttar um kennsl- una, reynist stúdentunum illkleift að ljúka heildarnámi á skemmri tíma en fjórum árum. Á þessu þarf að verða breyting þegar í stað og hafa heimspekideild verið sendar tillögur þar að lútandi. Fylgja þær hér með sem fylglskjal VIII. Hin síðustu ár hafa verið gerðar ýmsar breytingar á námi í verk- fræðideild, flestar til að aðhæfa það betur framhaldsnámi við tæknihá- skólann í Þrándheimi. Ekki verður gerlegt að halda öllu lengra á sömu braut nema með lengingu námstím- ans. Þróunin hlýtur því að verða aukin kennsla í verkfræðilegum greinum með þvi takmarki að út- skrifa stúdenta með almennt próf í hinum mismunandi höfuðgreinum verkfræðinnar, þ.e. byggingarverk- fræði, vélaverkfræði o.s.frv. Prófið ætti ennfremur að tryggja aðgang að sérgreinanámi við erlenda tækni- háskóla, þar sem slíkri sérgreina- kennslu verður ógerlegt að halda uppi hér i náinni framtið. Kennsla í fyrrihlutagreinum verk- fræði þarf að verða fjölbreyttari og eru þá einkum hafðar í huga eðlis- og efnaverkfræði, þar sem aukin nýt- ing náttúruauðæfa mun væntanlega stórauka þörf fyrir tæknimenntaða menn á þessum sviðum næstu ára- tugi. Þá má ekki gleyma því, að kennsla í verkfræðideild er ekki eingöngu fyrir verkfræðinema. Eins og áður er minnzt á, er nú ennfremur kennt til BA-prófa í stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði, líffræði og landa- og jarð- fræði. Deildin hefur þvi þróazt úr verkfræðideild I verkfræði- og raun- vísindadeild, og hefur hún að sínu leyti samþykkt slíka nafnbreytingu. Með auknum stúdentafjölda mun þessi kennsla einnig vaxa, í fyrstu að fullkomnu fyrrihlutaprófi og síð- ar að tilsvarandi lokaprófi og minnzt var á varðandi verkfræði. 3. Kennarastöður og kennsluskylda 1 eftirfarandi áætlunum um þörf á starfsliði verkfræðideildar er gert ráð fyrir ferns konar kennarastöð- um, þ.e.: 1. Prófessor 2. Dósent 3. Lektor 4. Stundakennari Prófessorar og dósentar eru fast- ráðnir starfsmenn háskólans. Að jafnaði starfa þeir ennfremur i rann- sóknastofnunum, sem beint eða ó- beint verða tengdar háskólanum. Með hliðsjón af mismunandi rannsókna- starfi er kennsluskylda ákveðin 5-10 stundir í viku. Lektorar eru að jafnaði fastráðn- ir starfsmenn rannsóknastofnana eða annarra fyrirtækja eða stofn- ana, sem starfa á sviði fræðigreina þeirra. Þeir eru ráðnir til 2-5 ára í senn. Séu lektorar fastráðnir starfsmenn rannsóknastofnana há- skólans, skal í ráðningasamningi kveðið svo á, að hluti af starfs- skyldu þeirra sé kennsla allt að fjórum stundum í viku. Stundakennarar eru ráðnir til eins árs í senn, að jafnaði til að annast æfingakennslu. 4. Kennarar 1970 Núverandi kennslugreinum verk- fræðideildar má skipta í fjóra aðal- flokka, þ.e.: a. Stærðfræðigreinir: Stærðfræði, rúmfræði, hagnýt stærðfræði og teiknifræði. b. Eðlisfræðigreinir: Aflfræði, eðlisfræði, efnafræði og jarðeðlisfræði. c. Verkfræðigreinir: Hagfræði, burðarþolsfræði, vél- fræði, efnisfræði, húsagerð, land- mæling og raftækni. d. Náttúrufræðigreinir: Liffræði ög landa- og jarðfræði. Núverandi kennsla í þessum grein- um er, eins og áður segir, að jafnaði 160 stundir í viku. Þar af er kennsla í náttúrufræðum um 20 stundir í viku og eru umræðufundir þá ekki meðtaldir. Það, sem eftir er, skiptist nokkum veginn jafnt milli þriggja fyrst taldra greinaflokka. Á árinu 1970 má gera ráð fyrir, að kennt verði til þriggja stiga bæði í líffræði og landa- og jarðfræði og verði kennslustundir þá um 75 í viku í þeim greinum. Þá er fyrir- hugað að taka upp kennslu í fyrri- hluta eðlisverkfræði á þessu tíma- bili, en það mun í upphafi ekki hafa veruleg áhrif á kennaraþörf frá því, sem nú er. Vegna aukins stúdenta- fjölda, og að kenna þarf sérstaklega fyrir stúdenta í BA-námi meira en nú er gert, verður að gera ráð fyrir auknum stundafjölda í hinum þrem- ur fyrst töldu námsgreinaflokkum. Er reiknað með að stundafjöldi verði um 50 í viku í hverjum greinaflokki. 1 samræmi við ofanskráð er gerð eftirfarandi áætlun um kennaraþörf á árinu 1970. Samkvæmt áætluninni fjölgar prófessorum í stærðfræði-, verk- fræði- og náttúrufræðigreinum um 1 í hverjum greinaflokki. Dósentum fjölgar samtals um 6, en jafnframt verði núverandi dósentsembættum breytt eftir þvl, sem við verður kom- ið, þannig, að dósentar verði ráðnir með kennslu í verkfræðideild að að- alstarfi. 5. Kennarar 1970-1975 Á þessu tímabili er ráðgert, að kennsla í náttúrufræðigreinum verði nokkuð aukin, kennslu í fyrrihluta- greinum eðlisverkfræði verði að fullu SKRÁ I Kennarar 1970 Greinafl. Prófessorar St.í Fjöldi viku Dósentar St.í Fjöldi viku Lektorar St. í Fjöldi viku Stundak. St. I Fjöldi viku Stærðfræði 2 15 3 20 2 5 - 10 Eðlisfræöi 3 15 2 15 3 10 - 10 Verkfræði 2 20 2 15 - 15 Náttúrufræði 2 15 3 20 4 15 - 25 Samtals 9 65 10 70 9 30 (16) 60

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.