Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Qupperneq 9
TÍMARIT VFl 1970
19
jafnframt forstöðumaSur rannsókn-
arstofu til mæling'a á geislavirkum
efnum. Rannsóknarstofa þessi lýtur
Verkfræðideild, og skal setja ákvæði
um starfsemi hennar í reglugerð Há-
skóla Islands." Rannsóknarstofa sú,
sem þama er kveðið á um hóf störf
sín sumarið 1958. Hún starfaði allt
frá upphafi á breiðari grundvelli en
ætlast var til samkvæmt háskólalög-
unum, og hlaut hún nafnið Eðlis-
fræðistofnun Háskólans. Vafalítið
hafa störf þessarar rannsóknarstofn
og forstöðumanns hennar ráðið
mestu um það að háskólinn réðst í
mikla eflingu raunvísinda við skól-
ann með stofnun Raunvísindastofn-
unar Háskólans.
Ofangreind fjölgun prófessora við
deildina hafði þó lítil bein áhrif á
verkfræðinámið. Þó að háskólanum
hafi þar bætzt verðmætir starfs-
kraftar verður annað vart sagt en
að staða verkfræðinnar hafi frekar
veikzt við þetta því nú var aðeins
einn af fimm prófessorum deildar-
innar verkfræðingur. Við þetta bætt-
ist það að áhrif Verkfræðingafélags
Islands, sem i fyrstu höfðu mótað
allt starf deildarinnar, voru orðin
hverfandi lítil. Ég tel að á þessu
tímabili hafi gætt verulegrar stöðn-
unar í störfum deildarinnar hvað
sjálfu verkfræðináminu viðvíkur. Síð-
ustu árin hafa reyndar verið gerðar
allmiklar breytingar á náminu, en
þessar breytingar em fyrst og fremst
tilkomnar vegna ytri þrýstings, þar
sem tækniháskóli Danmerkur gat
ekki lengur tekið við öllum nemend-
unum til síðari hluta náms. Nærri
allt þetta tímabil er næsta lítil fjölg-
un þeirra nemenda, sem ljúka fyrri
hluta prófi frá deildinni eins og sést
á meðfylgjandi línuriti. Ef tekinn er
t.d. fjöldi þeirra nemenda, sem lýk-
ur prófi frá deildinni 5 fyrstu fimm
ára tímabil deildarinnar, fást 27 -
44 - 44 - 38 - 58 nemendur á hverju
timabili. Óhætt mun að fullyrða að
leitun sé að verkfræðiháskóla þar
sem fjölgun nemenda hefur ekki
verið miklu örari á þessu mikla
gróskutímabili í vísindum og tækni.
Þá er það einnig athyglisvert hve
margir nemendur hafa sótt í verk-
fræðinám beint til erlendra háskóla
í greinum, sem verkfræðideildin
veitti fyrri hluta kennslu í. Við laus-
lega athugun í Verkfræðingatali
kemur í ljós að af 221 verkfræðingi,
sem hóf nám eftir árið 1945, hafa
86 verkfræðingar farið beint utan
til námsins eða nærri 40%.
Enda þótt hin beinu áhrif VFl á
starf verkfræðideildar hafi dvínað
fljótlega, var verkfræðinám á Islandi
þó öðru hverju til umræðu innan fé-
lagsins. Félagið gekkst fyrir ráð-
stefnu árið 1960 þar sem fjallað var
um tæknilega menntun á Islandi og
vélvæðingu og vinnuhagræðingu í ís-
lenzkum atvinnuvegum. Undirbún-
ingsnefnd ráðstefnunnar lagði fram
mjög athyglisverða ályktunartillögu,
sem Steingrímur Jónsson fylgdi úr
hlaði, um verkfræðinám á Islandi.
Síðari hluti tillögunnar hljóðar svo:
,,Þar sem öll þessi kennslumál eru
í mikilli deiglu sem stendur um heim
allan og sýnilegt er, að aðlaga verð-
ur kennslu verkfræðideildarinnar
hinum nýju og breyttu aðstæðum er-
lendis, er orðið tímabært að endur-
skoða nú kennsluna við verkfræði-
deild háskólans og athuga um leið,
hvort eigi megi auka hana, svo að
háskólinn geti útskrifað verkfræð-
inga með fullnaðarprófi í helztu að-
algreinum, svo og eðlisfræðinga og
efnafræðinga og ef til vill í fleiri
greinum náttúrufræða, með prófum
er t.d. myndu svara til bachelors of
science eða engineering í enskumæl-
andi löndum, þannig að kandidatar
héðan gætu haft aðgang að fram-
haldsnámi sem víðast um lönd. Ráð-
stefna íslenzkra verkfræðinga, hald-
in í Háskóla Islands dagana 22. og
23. sept. 1960, telur, að kennsla í
verkfræði við háskólann á undan-
förnum áratugum hafi gefizt mjög
vel og beinir af þeim sökum þeim
eindregnu tilmælum til Háskóla Is-
lands, ríkisstjómar og Alþingis, að
hún verði aukin, þannig að stúdent-
ar I verkfræði við Háskóla Islands
geti lokið þar fullnaðarprófi, en jafn-
framt verði hún endurskipulögð og
samræmd því sem nú tíðkast. Vill
VFl mælast til, að það fái tækifæri
30
Stólparitið sýnir árlegan fjölda stúdenta, sem hafa lokið fyrri hluta prófi í verkfræði við Háskóla Islands frá því
að fyrsti hópurinn lauk prófi vorið 1943.