Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1970, Qupperneq 18
28
TlMARIT VF1 1970
korriið á, tekin verði upp kennsla í
fyrrihluta efnaverkfræði og aukin
kennsla til kennaraprófa í stærð-
fræði og eðlisfræði. Jafnframt er
fyrirhugað að koma á fót kennslu
i síðarihlutagreinum byggingarverk-
fræði að því marki, sem rætt er um
í 2. kafla þessarar álitsgerðar.
Gerðar hafa verið lauslegar áætl-
anir um alla þessa kennslu og fylgja
þær hér með sem fylgiskjöl I V.
Á tímabilinu er ennfremur gert
ráð fyrir að raunverulegur fjöldi
kennsluvikna aukist úr 26 i 30 á ári.
1 samræmi við þessar áætlanir um
kennslu er gerð eftirfarandi áætlun
um fjölgun vikulegra kennslu-
stunda innan hvers greinaflokks.
Jafnframt því verður að gera ráð
fyrir aukinni aðsókn að verkfræði-
deild í heild, en fjölgun kennslu-
stunda, sem af þvi mundi annars
leiða, má mæta með þeirri lengingu
kennslutímans, sem minnzt var á.
Hafa ber í huga, að gert er ráð
fyrir aukinni kennslu í þeirri tíma-
röð, sem skráin gefur til kynna.
Kennsla í efnafræði er t.d. að hluta
sameiginleg til fyrrihlutaprófs í eðl-
is- og efnaverkfræði og sama máli
gegnir um kennslu í stærðfræði og
eðlisfræði. Ný kennsla vegna síðari-
hlutanáms í byggingarverkfræði er
hins vegar óháð annarri kennslu.
Samkvæmt ofanskráðu verður
æskilegur heildarfjöldi kennara fyrir
lok timabilsins 1970-1975, eins og
skrá II sýnir.
6. Kennarar 1975-1980
Á tímabilinu er ráðgerð áfram-
haldandi aukning á kennslu í nátt-
úrufræðigreinum. Ekki hafa verið
gerðar sérstakar áætlanir um fjölg-
un kennslustunda vegna þessarar
kennslu, en Sigurður Jónsson, líf-
fræðingur frá París, gerði á síðast-
liðnu sumri, er hann var staddur hér
á landi, tillögur um námsefni í líf-
fræði og jarðfræðivísindum við H.l.
Tillögumar voru gerðar að tilhlutan
próf. Magnúsar Magnússonar, for-
stjóra Raunvísindastofnunar Háskól-
ans. Fylgja þær hér með sem fylgi-
skjal VI. Gert er ráð fyrir að kennsla
í náttúrufræðum tvöfaldist miðað við
árið 1970 eða verði um 150 stundir
í viku samtals.
Þá er fyrirhugað að taka upp
kennslu í síðarihlutagreinum véla-
verkfræði. Gerð hefur verið sérstök
áætlun um kennslu þessa og fylgir
hún hér með sem fylgiskjal VII.
Samkvæmt áætluninni fjölgar
kennslustundum í verkfræði á þessu
tímabili um 90 á viku og um 40 á
viku að auki á næsta fimm ára
tímabili.
Ekki hafa verið gerðar sérstakar
áætlanir um kennslu í síðarihluta-
greinum rafmagnsverkfræði, sem
einnig er ráðgert að taka upp á
þessu tímabili, en í eftirfarandi
áætlun um kennaraþörf er reiknað
með, að fjöldi stunda í viku verði
tilsvarandi og í vélaverkfræði.
1 greinaflokkunum stærðfræði og
eðlisfræði er gert ráð fyrir um 20%
aukningu á stundafjölda vegna fjölg-
unar stúdenta. Vegna aukinnar fjöl-
breytni í vali verkfræðigreina og
væntanlega einnig í vali náttúru-
fræðigreina er ekki reiknað meö til-
svarandi aukningu i þeim greinum.
1 samræmi við það, sem sagt er
hér á undan, verður æskilegur heild-
arfjöldi kennara fyrir lok tímabils-
ins 1975-1980, eins og skrá III sýnir.
7. Áratugurinn 1980-1990
Um þróun kennslunnar á þessum
áratug er að svo stöddu varla fram-
kvæmanlegt að gera sundurliðaðar
áætlanir. Vegna síaukins aðstreymis
stúdenta að háskólanum verður
nauðsynlegt að auka verulega fjöl-
breytni i greinavali og jafnframt að
efla þær greinir, sem fyrir eru.
Á tímabilinu verður aukið við
kennslu í síðarihlutagreinum bygg-
ingar-, véla- og rafmagnsverkfræði
og jafnframt má reikna með að haf-
in verði kennsla í síðarihlutagrein-
um eðlis- og efnaverkfræði. Á sama
hátt verður að gera ráð fyrir aukn-
ingu á kennslu í stærðfræði, eðlis-
fræði, efnafræði, jarðeðlis- og jarð-
efnafræði og ýmsum greinum nátt-
úrufræði. Sú kennsla, sem fyrir
verður, veitir svo möguleika að auka
enn fjölbreytni í greinavali, t.d. með
því að hefja kennslu í trygginga- og
tölfræði, hagverkfræði, búfræði,
fiskifræði, haffræði og veðurfræði.
Ný kennsla
Greinafl. Náttúrufr. aukning h/viku Eðlisverk- fr. f. hl. h/viku Efnaverk- fr. f. hl. h/viku Stærðfr. kennarapr. h/viku Eðlisfr. kennarapr. h/viku Byggingar- verkfr. h/viku Alls h/viku
Stærðfræði — — — 30 — — 30
Eðlisfræði — 20 10 — 15 — 45
Verkfræði — — 5 — — 50 55
Náttúrufræði 25 — — — — — 25
Samtals 25 20 15 30 15 50 155
SKRÁ II Kennarar 1970-1975
Greinafl. Prófessorar St. í Fjöldi viku Dósentar St. í Fjöldi viku Lektorar St. í Fjöldi viku Stundak. St. í Fjöldi viku
Stærðfræði 3 20 3 25 3 10 - 25
Eðlisfræði 4 25 3 25 4 15 - 30
Verkfræði 5 35 4 30 3 10 - 30
Náttúrufræði 2 15 4 30 7 25 - 30
Samtals 14 95 14 110 17 60 (30) 115
SKRÁ III Kennarai • 1975-1980
Greinafl. Prófessorar St. í Fjöldi viku Dósentar St. í Fjöldi viku Lektorar St. í Fjöldi viku Stundak. St. í Fjöldi viku
Stærðfræði 4 30 4 30 3 10 - 25
Eðlisfræði 4 30 4 30 6 20 - 35
Verkfræði 10 80 10 80 11 40 - 85
Náttúrufræði 4 30 6 45 8 30 - 45
Samtals 22 170 24 185 28 100 (50) 190