Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1875, Page 5

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1875, Page 5
Ekkja lángafa sonarsonar, Kristjáns konóngs VIII.: Ekkjudrottníng Carolina Amalia, dóttir hertoga af Slesvík- Holstein-Suðurborg-Augustenborg, fædd 28. Juni 1796, gipt 22. Mai 1815, varð ekkja 20. Januar 1848. Dætur lángafa sonarsonar, Friðreks konúngs VI.: 1) Carolina, fædd 28. Oktobr. 1793, gipt erfðaprinsi Friðreki Ferdinand 1. August 1829, ekkja 29. Juni 1863. 2) Yillielmina Maria, fædd 18. Januar 1808, gipt 19. Mai 1838 Karli hertoga af Slesvík-Holstein-Suðurborg-Glúcksborg, fæddum 30. Septembr. 1813, til erfða komnum 17. Februar 1831. í þessu almanaki er hver dagur talinn frá miðnætti til mið- nættis, svo að þær 12 stundir, sem eru frá miðnætti til hádegis á degi hverjum, eru taldar „fyrir miðdag (f. m.)“, en hinar 12, frá hádegi til jafnlengdar, eða til miðnættis aptur, eru taldar „eptir miðdag (e. m.)“. Sérhver klukkustund er hér sett eptir midtíma, sem almennt er fylgt manna á milli, og öll sigurverk eru stillt eptir. En þareð þessi mælíng tímans er á flestum árstímum nokkuð frábreytt því, sem sólspjaldið (sólskífan) vísar til, eptir gaungu sólarinnar, þá verður hver sá, sem stilla vill sigurverk eptir sólspjaldinu, að taka eptir þeim mismun, sem er á milli sóltíma og miðtíma, og gjöra við honum þegar hann stillir sigurverkið. Þetta sýnir sú „Tafla um mismun á sóltíma og miðtíma", sem fylgir næst á eptir almanakinu. Þar má sjá við 1. Jan. 12 4', við 11. Febr. 12 15' o. s. frv.; það merkir, að miðtími er á þessum dögum 4 mínútum (eða 15 mínútum) á undan sóltíma, eða, að sigurverk sýna 4 (eða 15) mínútur yfir hádegi, þegar sólspjaldið sýnir hádegi sjálft (kl. 12); við 14. April og víðar stendur 12 o', það merkir, að þá koma saman miðtími og sóltími; við 1. Novbr. stendur 11 44', það merkir, að þá sýna sigurverk 11 stundir og 44 mínútur þegar sól- spjaldið sýnir hádegi, eða að miðtími er þá 16 mínútum á eptir sóltíma, o. s. frv.

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.