Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1875, Blaðsíða 33
VII. Haustyrkjuna höldar þrá,
Hindarkálfur rann að lá.
Fjóskonurnar fylla spá,
fram Sjöstirnið rær.
VIII. Hver Örvendils talin tá
tigni þann, er æðstum Ijá
storðir dýrð um stunda krá.
Stakan vikið fær.
maðurinn, sem stjörnufræðíngar knlia á Latínu auriga;
Kerrumaður heidur á geit, og er Kaupmannastjarnan
einkennilegust í þessu stjörnumerki (BG 4537).
Þrlhyrníngur; þeir eru nú ánefndir tveir til stjörnu-
merkja, og er hér án efa átt við þann hinn stærra
(BG 4536).
Altari er suðurmerki, á Latínu ara, það er í nánd við
Sporðdreka (BG 457).
Vatnsgýgurin mun vera sama og Vatnsmaðurinn
(Hydra), það er suðurmerki og liggur fyrir sunnan
Krabba, Ljón og Meyjarmerki (BG 4Ó28).
VII. Haustyrkjan er stjarna á hægra væng meyjarinnar f
Meyjarmerki; stjörnufræðlngar kalla hana Vindemialrixr
eða Epsilon Meyjarinnar (BG 4Ö28).
Hindarkálfur mun líklega vera það stjörnumerki,
sem annars er kallað Hreindýrið (BG4521). Verðirnir
eru tvær stjörnurnar hinar skærustu í Litlu-Birnu,
sem fyr var getið; þær eru af sumum kallaðar Kálf-
arnir (BG 4513).
Fjóskonurnar eðaFjósakonurnarerunefndaráðurvið
Maríurokkinn eða Órion (III.), að þær eru beltið
Orions (BG 4631).
Sjöstirnið eða Sjöstjarnan, alkunnasta stjörnumerki
hjá oss; það liggur á hálsi eða baki uxans í Uxamerki
og heitir latínsku nafni Plejades. Alkyone heitir
stjarna, sem er stærst í sjöstirninu (BG 45i6-s°)-
VIII. O r v e n d i 1 s-t á er haft hér eins og almenn stjörnukenning.
í Snorra-Eddu er sagt frá, að Þór bar Örvandi! hinn
frækna í meis á baki sér norðan yfir Elivoga úr
Jötunheimum, og kól af Örvandil ein táin, sem stóð
út úr meisnum, en Þór braut hana þá af og. kastaði
upp á himin og. gerði af stjörnu þá er heitir Örvand-
ils-tá. Nafnið Örvandill hefir nokkurn svip af Orioni,
og báðir voru jötnar, en á vestara fæti Orions er
merkistjarna mikil, sem stjörnufræðlngar kalla Rigel,
kann vera sú hin sama hafi verið kölluð Örvandils-tá.
(31)