Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1875, Page 6

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1875, Page 6
í þriðja dálki er töluröð, sem sýnir hvern tíma og mínútu túngl er hæst á hverjum degi; þar af má marka sjáfarföll, flóð og fjörur. í yzta dálki til hægri handar stendur hið forna íslenzka tímatal; eptir því verður árinu skipt í 12 mánuði þrítugnætta og 4 daga umfram, sem ávalit skulu fylgja þriðja mánuði sumars; í því tali er aukið viku fimta eða sjötta hvert ár í nýja stíl; það heitir sumarauki eða lagningarvika. Merkidagar íslenzkir eru hér taldir eptir þvf, sem menn vita fyllst og réttast. Árið 187 5 er Sunnudags bókstaýur: C. — Gyllinital XIV. Milli jóla og Iangaföstu eru 6 vikur og 2 dagar. Lengsti dagur í Reykjavík 201. 54 m., skemmsti 31. 58 m. Myrkyar. Á árinu 1875 verða myrkvar þeir, sem hér segir: 1) Almyrkvi á sólu 6. April; sá myrkvi verður sýnilegur í suðurhluta Afríku, á Indfalandi og í Kína. í Indlands- hafi og í suðausturhluta Asíu tekur hann yfir alla sól. 2) Hríngmyrkvi á sólu 29. Septembr., hefst í Reykjavík kl. 9. 35' og er á enda kl. 10. 57'. Þegar hæst stendur nær myrkvinn yfir hérumbil tvo tólftunga sólarinnar að þvermáli.

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.