Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1875, Side 26
ÚR TILSKIPUN 3. FEBRUAR 1836.
VII. atr. um almatwk:
1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyíi, sem Kaup-
mannahafnar háskóla er veitt til að gefa út almanök,
annaðhvort með því að flytja til íslands eða selja útlend
almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20
til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í
Danmörku (op. br. 5. Aug. 1831); þau almanök eru og
upptæk, sem finnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þar
á ofan 7+ rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Helmíng sekta-
fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskólinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en
annar helmíngur gengur til stjörnuturnsins í Kaup-
mannahöfn.
2. gr. Yfiivöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að
enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var
talið.
3. gr, Öll mál, sem rísa af að einkaleyfi þetta er
skert, skal fara með sem opinber lögreglumál.
Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta.
Almanak þetta kostar óinnfest 5 skiidínga, en innfest 5'/=
skildíng, allstaðar á íslandi og ( Danmörku; en Gyldendals
bókaverzlan í Kaupmannahöfn, sem hefir sölu-umboðið, er
skyld til að seija hvert á 4 skild., þeim sem kaupa 30 eða
þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt að skiia
aptur óseldum almanökum, ef það er gjört innan árs loka 1874;
verður þeim þá borgað andvirði þeirra sem ósködduð eru, en
þó svo, að hin innfestu verða borguð sem óinnfest; skyldir
eru þeir og að sýna reiknínga bókaverziunarinnar, ef krafist
verður.