Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1875, Blaðsíða 36
Eptir auglýsíng landfógetans á íslandi 17. Juni 1854 (í
Þjóðólfi og Lagasafninu 12. April s. á.) er 1 pund sterl. í gulli
ekkí tekið í landssjóðinn nema á 8 rd. 40 slc., þar sem það þó
tfðast gildir 9 rd. eða þarumbil eptir venjulegu gángverði (nú í
Danmörk 9 rd. 4 sk.); þar á móti gildir pundið í silfri ekki
meira en 8 rd. 72 sk. eptir gángverði því sem nú er í Danmörku.
Frakkland hefir hæði gull og silfur mynt, og er talið
eptir frönkum ífranc), en í hverjum franka eru 100 centimes,
eða 20 sous (sou kemur af solidus, sem og þýðir skildíng),
svo að hver sou heldur 5 centimes. Af gullpeníngum eru 20
fránka peníngar kunnugastir og er sett verð á þá við lands-
sjóðinn 6 rd. 64 sk., en gángverð þeirra í Danmörk er nú 7 rd.
16 sk.; en á fimm fránka peníng er verðið við landssjóðinn
sett 1 rd. 71 sk., þar sem það í Danmörk sem stendur er
einúngis 1 rd. 64 sk.
Spánn hefir eiginlega margskonar peníngareikníng, en
venjulegast er talið eptir konúngsmörkum eða rjálum (Realde
vellon), og gildir 1 rjáll í silfri nærfellt 9 skild.; stundum er
talin peseta, og er hver peseta 4 konúngsmörk. Spánskir
pjastrar eða stólpadalir eru venjulegastir, og gilda hérumbil
1 rd. 80 sk., en í landssjóðnum gánga þeir á 1 rd. 84 sk.—
Til eru einnig dúblónur, sem gilda i Danmörku 28 rd. 64 sk.
eða þarumbil eptir gángverði.
Portugal hefir peníngareikníng sinn eptir Milrcis, það
er 1000 reis. Þar gánga gullpeníngar, sem eru kallaðir Coroa,
það eru háifkrónur og heilkrónur, sem gilda 5000 reis heilkrónan
og hálfkrónan 2500 reis. Silfurpeníngar eru einnig kallaðir
krónur, og er heilkróna í silfri uppá 1000 reis; en kopar-
peníngar eru stærstir uppá 20 reis.
Rússland. Þar eru penfngar taldir eptir rúblum (rubl
eða rubli) og er hver silfur-rúbla talin 100 kópek. Þar eru
gullpeníngar sem kallaðir eru dúkatar eða imperialar, og gilda
5 rúblur eða 10. Önnur tegund gullpenínga er úr hvítagulli
eða platinu, og eru það dúkatar, einfaldir, tvöfaldir eða fjórfaldir,
uppá 3, 6 eða 12 rúblur. Silfurpenfngar eru stærstir ein rúbla
eða 100 kópek. Koparpeníogar eru stærstir 5 kópek.
Bandaríkin í Norður-Ameríku. Þar er talið eptir dölum
(dollats), og skiptist hver dollar í 10 díma (dims), hver dfmi
í 10 cent, og hvert cent í 10 mills. Hver dollar er því 100
cent eða 1000 mills, og gildir hérumbil 1 rd. 80 sk.— Þar eru
gullpeníngar, sem heita Ernir (Eagles). Einfaldur Örn
hljóðar uppá 10 dollara, tvöfaldur uppá 20, hálfernir eru uppá
S og fjórðúngsernir uppá 2J/2 dollar. Til eru þar og gullpeníngar
uppá 50, 3 og 1 dollar. Örn í gulli gildir um þetta mund eptir
gángverði í Danmörk 9 rd. 24 sk. — Silfurpeníngar eru ekki
mótaðir stærri en 1 dollar, og koparpeníngarekki stærri en 1 cent.
B r a s i 1 i a. Þar er talið eptir Milreís og skiptist það f
1000 Reis. Gullpeníngar eru þar, sem hljóða uppá 20 milreis,
(34)