Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2004, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2004, Side 3
DV Fyrst og fremst MÁNUDAGUR 14.JÚNÍ2004 3 Gamla myndin var tek- in árið 1964 en þá komu fyrstu tölvurnar til lands- ins. „Ég vann við þessa tölvu í fimm ár og þótt hún hafi ekki verið nein firam- úrstefnutölva þá reyndist hún okkur vel,“ segir Helgi Sigvaldason, verkfræðing- ur .En hann sést hér á myndinni ásamt Þórhalli M. Einarssyni sem þá var tæknimaður hjá IBM, Ragnari Ingimundarsyni, verkfræðingi, Oddi Bene- diktssyni verkfræðingi, og Magnúsi Magnússyni, pró- fessor. Tölvan sem sést á myndinni var rafeinda- reiknir sem Raunvísinda- stofnun Háskóla íslands hafði fengið í sína notkun. „Ég hafði unnið við fyrstu tölvurnar sem komu til Danmörku á árinu 1960. Þær tölvur voru mun full- komnari," segir Helgi og bætir við að þeir menn sem sjást hér á myndinni hafi allir áður unnið við tölvur erlendis svo þeir hafi ekki verið haldnir neinni tölvuhræðslu. „Þetta ár komu tvær tölvur hingað til lands. Önnur til Háskólans en hin fór til Reykjavíkurborgar. Okkar tölva hafði ágæta reikni- getu og var mun fullkomn- ari.“ Tölvan kostaði á við stórt einbýlishús og var á þeim tíma talin afar öflug. Spurning dagsins Hverjir verða Evrópumeistarar? Frakkar með besta liðið „Það erengin spurning að það verða Frakkar vegna þess einfaldlega að þeir eru með besta liðið og því munu þeir vinna þetta mót. Ég held hins vegar afgömlum vana með frændum okkar Dönum sem ég held að fari ekki langt í ár. En ég mun styðja þá á meðan þeir eru í keppninni það er ekki spurning." Bjarni Felixson, íþróttafréttamaður „Ég myndi segja Frakk- land. Ég hef mjög gaman affranska lið- inu og þeir hafa líka Henry og Zi- dane sem eru lang bestir ídag. “ Dóra María Lárusdóttir, knattspyrnukona í Val „Ég held að Frakkar verði Evrópumeistar- ar en ég held með Portúgal og Englandi. Ástæðan er frekar einföld. Efég fer yfir liðið þeirra þá sé ég leikmenn sem ég vil fá í Man. United I allar stöður sem er vísbending á gott. Við erum að taka upp Svínasúpu núna en ég reyni að fylgjast með þessu eins og ég get. “ Auðunn Blöndal, sprelligosi „Ég segi að það verði Hollendingar vegna þess að þeirra tími hlýtur að vera kominn. Ég keypti mérhollenska treyju úti á Krít og hún verður ennþá flott- ari efþeir vinna þetta. Ég held samt með Italíu" Baldur Kristjánsson, söngvari „Ég hefeigin- lega bara ekki hugmynd. Ég veit hins vegar að keppnin er I gangi vegna þess að Heimir samstarfsmaður minn errosa- lega spenntur og ætlar að horfa á þetta alla helgina. Ég ætla samt að skjóta á að Þýskaland vinni þetta því þeir vinna alltaf þegar enginn býst við því. “ Inga Lind Karlsdóttir, sjón- varpskona Nú stendur Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu yfir. Um dauða mús í kirkju Séra Jón Þorláksson (1744-1819) var prestur á Bægisá á Norðurlandi og mikilvirkt skáld og ljóðaþýðandi. íslensk ljóð .. er hann fyrir að hafa þýtt á íslensku kvæðabálkinn Paradísarmissi eða Paradise Lost eftir enska skáldið John Milton. Er það mikill og þung- ur kveðskapur. En Jón orti líka kát- legri ljóð og þar á meðal er kvæðið Um dauða mús í kirkju þar sem presturinn veltir fyrir sér sorglegum örlögum músargreys sem hann hef- ur fundið á kirkjugólfinu og kennir kettinum um. Ei er forvitnin öllum hent, einatt hún skaðar drótt, fallega músar færþað kennt feigðar-áræðið Ijótt; skyldi hún hafa æfi ent eða drepistsvo fljótt, hefði ei skollinn hana sent i helgidóminn um nótt? Fegurð kirkjunnar fýstist sjá, fór svo þar grandlaus inn; kötturinn sem í leyni lá og lést vera guðrækinn, heiftarverk framdi henni á, helvískur prakkarinn. Ætti því stríða flenging fá fyrir þann stráksskap sinn. Köttur leikur sér að mús Rétt eins og í kirkjunni að Bægisó. Þá myrkur-drauga músaher minnast eg þar á bið: úti við hauga uni sér, elskandi spekt og frið. f kirkjum að spauga ekki er ormanna hæfi við; kattarins auga brátt að ber, birtunnar þarfei lið. HANNÁEKKIEINN EINASTA ÓVIN - EN ALLIR VINIR HANSHATAHANN. BANDARlSKI GRÍNISTINN EDDIE CANTOR UM ÓNEFND- AN KUNNINGJA SINN. Leiklist og Ijósmynair Baldvin Halldórsson, leikari og leikstjóri, er faðir þeirra Páls Baldvins Baldvinssonar, leikstjóra og gagnrýnanda og Ingu Láru Baldvinsdóttur, fagstjóra myndasafns Þjóðminjasafns Islands. Kona Baldvins og móðir Páls Baldvins og Ingu Láru er Vigdís Pálsdóttir, lektor. Baldvin erson- ur hjónanna Steinunnar Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður og Hall- dórs Jónssonar bónda. Hann er einn afástsælustu leikurum þjóðar- innar. Arið 1973 hlauthann Silfurlampann, viðurkenningu Félags ís- lenskra leikdómenda, og vakti mikla athygli þegar hann afþakkaði verðlaunin. Páll Baldvin er þekktur fyrir skelegga leiklistar- og bók- menntagagnrýni og Inga Lára hefur staðið fyrir áhugaverðum sýningum Þjóðminjasafnsins á Ijósmyndum frá fyrri tlmum. FORSETAKOSNINGAR 26. JÚNÍ 2004 Kjörskrár og kjörstaðir í Reykjavíkurkjördæmi suður og Reykjavíkurkjördæmi norður Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður vegna forsetakosninga 26. júní n.k. liggja frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 16. júní n.k. fram á kjördag. Vakin er athygli á að kjörskrárnar verður einnig að finna á heimasíðu Reykja- víkurborgar: www.reykjavik.is. KJÖRSTAÐIR f KJÖRSTAÐIR í REYKJAVÍKURKJÖRDÆMI SUÐUR: REYKJAVÍKURKJÖRDÆMI NORÐUR: Hagaskóli Ráðhús Hlíðaskóli Kjarvalsstaðir Breiðagerðisskóli Laugardalshöll Ölduselsskóli íþróttamiðstöðin í Grafarvogi (þróttamiðstöðin við Austurberg Borgaskóli Árbæjarskóli Klébergsskóli Kjalarnesi Kjörfundur hefst laugardaginn 26. maí kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00. Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi, sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki, getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athuga- semdum við kjörskrárnar skal beina til borgarráðs, sendist skrifstofu borgarstjórn- ar, Ráðhúsi Reykjavíkur. Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður mun á kjördegi hafa aðsetur í Hagaskóla og þar verða atkvæði talin. Símanúmer yf- irkjörstjórnarinnar verður á kjördegi 563 2235. Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis norður mun á kjördegi hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur og þar verða atkvæði talin. Símanúmer yfirkjörstjórnarinnar verður á kjördegi 563 2210. Borgarstjórinn í Reykjavík Yfirkjörstjórnin í Reykjavíkurkjördæmi suður Yfirkjörstjórnin í Reykjavíkurkjördæmi norður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.