Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2004, Síða 8
8 MÁNUDACUR 14. JÚNÍ2004
Fréttir DV
Skrifará
kaffihúsum
Metsöluhöfundi Harry
Potter bókanna, J.K. Rowl-
ing, finnst ennþá best að
fara á kaffihús til að skrifa
um galdrastrákinn. í fyrstu
leitaði hún þangað til að
flýja köldu íbúðarholuna
sem hún bjó í en núna þeg-
ar hún á risa villu fer hún
samt á kafiihúsin. „Maður
er ekki eins einmana og svo
þarf maður ekki að hella
upp á sjálfur," sagði millj-
arðamæringurinn Rowling.
„Svo ef mér dettur ekkert í
hug þá labba ég á næsta
kafiihús og hreinsa hugann
á meðan."
Loftsteinn
lenti á húsi
Fjölskylda á Nýja-Sjá-
landi komst í óþægilega
snertingu við himingeim-
inn þegar loftsteinn lenti á
húsi þeirra. Loftsteinninn
var á stærð við greipávöxt
og skaust í gegnum þakið
og lenti ofan á sófa. „Við
héldum að þetta væri
sprenging því það var ryk
allstaðar." Litlu munaði að
grjótið endaði á ársgömlu
barni en þá hefði ekki verið
spurt að leikslokum.
Steinninn er sá níundi sem
vitað er um á Nýja-Sjálandi
en sá fýrsti sem lendir á
húsi.
Bjargað af
þyrlu
Maxine Carr var bjargað
af þyrlu eftir að reiður
múgurinn ætlaði að ráðast
á hana. Carr er fyrrverandi
kærasta barnamorðingjans
Ian Huntíey. Hún sat helm-
inginn af 42 mánaða dómi
sínum fyrir að veita Ian
fjarvistarsönnun og hefur
fengið ný skilríki og leyni-
legt aðsetur. Hatrið í henn-
ar garð er gríðalegt og þeg-
ar upp komst um aðsetur
hennar flykktust hópar
manna að heimili hennar.
Lögreglan varð að bjarga
Maxine með því að draga
hana upp í þyrlu og fara
með hana á öruggari stað.
Fjölbrautarskólinn í Ármúla er alvarleg brunagildra. Þar er engin neyðarlýsing,
brunahólfun er ábótavant og flóttaleiðir hafa verið tepptar. Kröfum slökkviliðs-
stjóra um úrbætur er ekki sinnt. Beita á dagsektum til að knýja Fasteignir ríkisins
til að koma málunum í lag. Sölvi Sveinsson skólameistari taldi allt vera í fínu lagi.
Þúsund manns
í bpunanildpu
„Ég vissi ekki ann-
að en að þetta
væri í fínu lagi. Ég
þarfaðskoða
þetta á morgun."
Vi
Hrólfur Jónsson Má sekta
rlkiðum 14.600 krónurá
hverjum virkum degi sem llður
I har til brunavörnum í Fjoi'
brautarskólanum I Ármula
\ hefur verið komiðl lag.
| Sölvi Sveinsson
rja, hver andskot-
inn,“ segir skóla-
meistari.
WU.nÍiimt&iSZ
Fasteignir ríkissjóðs verða sektaðar um 14.600 krónur á dag þar
til brunavörnum í Fjölbrautarskólanum við Ármúla hefur verið
komið í viðunandi horf. Skólameistari hélt, þar til DV kynnti
honum málið í gær, að eldvarnir skólans væru „í fínu" lagi. Það
er þær ekki. Þeim er alvarlega ábótavant.
„Hér er um að ræða alvarlegt brot
á lögum um brunavarnir og bruna-
mál auk byggingareglugerðar," segir
í bréfi forvarnardeildar slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins til Fasteigna
ríkissjóðs vegna Fjölbrautarskólans
við Ármúla.
Bréf forvarnardeildarinnar var
sent fýrir rúmum mánuði til að
hóta dagsektum vegna þess að
meira en ársgömlum kröfum hafði
ekki verið sinnt um úrbætur á
brunamálum í Fjölbrautarskólan-
um við Ármúla. Nú hefur borgar-
ráð samþykkt 14.600 króna dag-
sektir þar sem brunavarnir skólans
eru enn í
lamasessi.
Langur syndalisti
Fulltrúum slökkviliðsstjóra leist
ekki á blikuna eftir að þeir skoðuðu
sig um í Fjölbrautarskólanum í Ár-
múla (FÁ) í lok aprfl í fyrra. Eftir út-
tektina sendu þeir Fasteignum
ríkissjóðs langan lista yfir atriði sem
voru í ólagi.
Gegnumgangandi fyrir álmur og
hæðir skólans var að neyðarlýsingu
vantaði, flóttaleiðir vom læstar eða
tepptar og að einstakir hlutar bygg-
ingarinnar vom ekki aðskildir með
brunaveggjum og brunahurðum. Þá
vantaði brunaslöngur og björgunar-
op í kennslustofum voru ómerkt.
Um miðjan maí í fyrra var Fast-
eignum ríkissjóðs gefinn þriggja
mánaða frestur, fram í miðjan ágúst,
til að lagfæra bmnavarnir FÁ. Yrði
úrbótum ekki sinnt mátti búast við
dagsektum og að tryggingafélagi
byggingarinnar yrði gert viðvart um
ástandið.
Að ári liðnu, fyrir rúmum mán-
uði, var úrbótunum ekki lokið. í
bréfi til borgarráðs fyrir rúmri viku
útíistar Bjarni Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri forvarnardeildar
slökkviliðsins, þá ágalla sem valda
dagsektunum vegna FÁ. Þar segir
að bmnahólfun byggingarinnar sé
mjög ábótavant, neyðarlýsing sé
ekki í byggingunni, fjöldi útiljósa
sé ekki nægjanlegur auk þess sem
reyklosunarlúgur úr sal á 1. hæð
séu ekki tengdar við bmnavarnar-
kerfi.
Skólameistari kemur af fjöll-
um
Þegar DV ræddi við Sölva Sveins-
son skólameistara í gær sagðist
hann alls ekkert hafa heyrt um það
að beita dagsektum vegna ástands
Fjölbrautarskólinn í
Ármúla Hér eru eitt
þúsund manns við
nám og störfámeðan
skólahalder. Komiupp |
eldur er þetta fólk I al-
varlegri brunagildru.
brunavarna í skólanum sem hann
stýrir og í em 900 nemendur auk 80
til 90 starfsmanna:
„Ja, hver andskotínn. Ég vissi ekki
annað en að þetta væri í fi'nu lagi. Ég
þarf að skoða þetta á morgun," sagði
skólameistarinn sem taldi að unnið
væri að bmnavörnum skólans í
góðri sátt við slökkviliðið og eld-
varnareftirlitið sem kemur í skólann
á hverju ári:
„Við vinnum eftir tiltekinni
áætíun og þeir gera athugasemdir
ef við fylgjum henni ekki eftir og
það höfum við gert. Það er ýmis-
legt sem þarfnast úrbóta en það er
unnið að því samkvæmt áætlun.
Það er fitílt af framkvæmdum í
gangi varðandi eldvarnir, til dæmis
varðandi bmnahólfun,“ sagði Sölvi
Sveinsson.
gar@dv.is
1 1 1 1 * -
J
Þrír Portúgalar voru reknir eftir að þeir veittu DV viðtal
Ein uppsagnanna til skoðunar
Málefni portúgölsku verkamann-
anna þriggja sem að sögn var sagt
upp störfum við Kárahnjúka fyrir
helgi, í kjölfar viðtals sem þeir veittu
DV, hefur að verið til meðferðar hjá
trúnaðarmönnum starfsmanna á
svæðinu um helgina..
Eins og fram kom í DV á laugar-
daginn hefur þremur af sex Portú-
gölum, sem umrædd viðtal var við,
verið sagt upp störfum. Ágreiningur
er um ástæður uppsagnanna sem
einn hinna reknu þremenninga seg-
Hvað liggur á?
ir vera vegna viðtalsins. Vitnar hann
í orð fitíltrúa starfsmannaleigunnar
Select sem tilkynnti honum á föstu-
dagsmorgun að honum hefði verið
sagt upp vegna viðtalsins þar sem
Impregilo og starfsmannaleigurnar
Nett og Select hlutu harða gagnrýni
Portúgalanna.
Samkvæmt heimildum DV vill þó
Impregilo meina að brottrekstur
mannanna sé til kominn vegna
brota á reglum fýrirtækisins og að
mennirnir þrír sem um ræðir hafi
allir verið búnir að fá skriflegar
Helga E. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Grimunnar - íslensku leiklistarverð-
launanna: „Það Hggur svo sem ekkert lífið á neinu núna. Það er búið að hnýta flesta
hnúta varðandi Grímuna, uppskeruhátíð leiklistarinnar sem haldin verður á mið-
vikudagskvöld. Hreingerningunni er nokkurn veginn lokið, það á bara eftir að pakka
gjöfunum fallega innsvo allir verði glaðir þegar þær verða opnaðar. Nú á maður
bara eftir að koma sér í sparifötin. Markmið hátíðarinnar erað leikhúsfólk komi
saman og njóti árangurs erfiðis síns og áhorfendur gleðjist með okkur."
áminningar. Þessu hafnaði einn
þremenninganna í samtali við DV
nú um helgina og fullyrti að um
fyrirslátt væri að ræða hjá Impregilo
sem reiðst hefði vegna orða þeirra í
umræddu viðtali.
Fulltrúar starfsmanna á svæðinu
sögðust í samtali við DV fyrir helgi
hafa fengið þær skýringar frá
Impregilo á brottrekstri þremenn-
inganna að um ítrekaðar áminning-
ar hefði verið að ræða og því hefði
fyrirtækið gripið til þess ráðs sem að
framan greinir. Oddur Friðriksson
sagði þá í samtali við DV að hann
gætí ekki annað en tekið skýringum
fýrirtækisins sem góðum og gildum
með vísan til áminninga þeirra en
kvaðst þó finnast tímasetning upp-
sagnanna dularfull.
Eftir að hafa farið yfir ástæður
uppsagnanna um helgina hafa hins
vegar fulltrúar starfsmanna ákveðið
að ekki séu nægileg rök fyrir einni af
þremur uppsögnum fyrirtækisins.
Þetta staðfestí einn fttíltrúa starfs-
fólks í samtali við DV í gær. Að sögn
hans munu fttíltrúar starfsmanna
gera formlegar athugasemdir við
fýrirtækið vegna
uppsagnar eins
starfsmanns-
ins í dag.
Burtreknu
Portúgalarnir
Fulltrúar stétt-
arfélaga á
svæðinu gera
athugasemd við
uppsögn eins
þeirra en hinir eru
farnir.