Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2004, Síða 11
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ2004 1 7
Jeppa stolið á
Selfossi
Tíu ökumenn voru
stöðvaðir fyrir of hraðan
akstur í umdæmi lögregl-
unnar á Selfossi í fyrrinótt.
Ökumennimir voru á 105 til
130 kílómetra hraða. Á
laugardagsmorgun þegar
jeppaeigandi á Selfossi æd-
aði að huga að bifreið sirrni
kom í ljós að búið var að
stela bílnum. Þetta er vín-
rauður Pajero-jeppi, árgerð
1990 með skráningarnúm-
erinu SX-268. Þeir sem hafa
orðið varir við jeppann eða
geta veitt upplýsingar eru
beðnir um að hafa samband
við Lögregluna á Selfossi
eða Neyðarlmuna.
Vísitalan
hækkar
mikið
Vísitala neysluverðs í
júní 2004 er 235,7 stig
samkvæmt upplýsingum
frá Hagstofúnni og hækk-
aði um 0,77% frá fyrri
mánuði. Þetta er töluvert
meiri hækkun en búist var
við. Vísitala neysluverðs
án húsnæðis er 0,57%
hærri en í maí. Markaðs-
verð á húsnæði hækkaði
um 2,1% og verð á bensfrii
og gasolíu hækkaði um
6,1%. Verð á mat og
drykkjarvöru hækkaði um
0,7%. Síðastliðna tólf
mánuði hefur vísitaia
neysluverðs hækkað um
3,9% en vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis um
2,7%. Undanfama þrjá
mánuði hefur vfsitala
neysluverðs hækkað um
2,2% sem jafiigildir 9,0%
verðbólgu á ári.
Árekstur á
Skeiðarárbrú
Harður árekstur varð á
brúnni yfir Skeiðará rétt eft-
ir klukkan m'u á laugardags-
kvöld. Tveir bílar sem vom
að koma úr gagnstæðri átt
skullu saman á vesturenda
brúarinnar. Ökumaður var
einn í annarri bifreiðinni og
ökumaður og farþegi í
himfi. Ökumennina sakaði
ekki en flytja þurfti farþeg-
ann með sjúkrabfl á heilsu-
gæslustöðina á Kirkjubæjar-
klaustri og reyndist hann
nefbrotinn. Að sögn lögregl-
unnar á Höfn vom báðir bíl-
amir óökufærir og illa famir
eftir áreksturinn.
Harðir sjálfstæðismenn vilja að þjóðaratkvæðagreiðslan verði aðeins leiðbeinandi.
Einar Kr. Guðfinnsson segir samtöl innan þingflokksins trúnaðarmál. Lögspekingar
segja stjórnarskrána skýra. Karl Axelsson vanhæfur vegna aðkomunnar að Qöl-
miðlafrumvarpinu?
StjórnarandstæUngar telja
lögfpfflöingana sérvalda
„Innan þingflokksins hafa ýmsar leiðir verið ræddar, en samtöl á
þingflokksfundum okkar eru trúnaðarmál. Ég minnist þess ekki
að rætt hafi verið að þjóðaratkvæðagreiðslan verði bara ráðgef-
andi. Ég held að stjórnarskráin leyfi það ekki,“ segir Einar Kr.
Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.
Samkvæmt heimildum DV hafa
þær raddir komið upp innan Sjálf-
stæðisflokksins að fest verði í lög að
úrslitin í atkvæðagreiðslunni verði
eingöngu leiðbeinandi eða ráðgef-
andi, fyrir utan hugmyndir um lág-
marks þátttöku og/eða aukið meiri-
hlutahlutfall.
Lögspekingar em þó einróma í
þeirri afstöðu að það sé brot á
stjómarskrá að ætía sér að gera
þjóðaratkvæðagreiðsluna aðeins
leiðbeinandi. „Þeir sem kunna að
lesa og skilja mælt mál átta sig vænt-
anlega á því, að úrslit í atkvæða-
greiðslu samkvæmt 26. grein stjóm-
arskrárinnar eiga að vera bindandi,"
segir Jónatan Þórmundsson laga-
prófessor.
Skýrt í stjórnarskránni
Undir þetta tekur Sigurður Lín-
dal. „í 26. grein stjórnarskrárinnar
segir að leggja skuh laga-
frumvarp sem forseti
synjar staðfestingar svo
fljótt sem kostur er
undir atkvæði allra
kosningabærra
manna í landinu tú
samþykktar eða
synjunar. Úrslit at-
kvæðagreiðslunnar
ráða síðan ffamtíð-
argúdi laganna. At-
kvæðagreiðslan er
samkvæmt 26. grein
stj órnarskrárinnar
ekki leiðbeinandi,
heldur bindandi
og því getur
Alþingi
ekid
„Þeir sem kunna að
lesa og skilja mælt
mál átta sig væntan-
lega á því, að úrslltl
atkvæðagreiðslu
samkvæmt 26, gr.
stjórnarskrárinnar
eiga að vera bind-
andl."
breytt með lögum." RagrUúldur
Helgadóttir lagaprófessor í Háskól-
anum í Reykjavík er sama sinnis. „Ég
tel 26. grein stjórnarskrárinnar fela í
sér að þjóðaratkvæðagreiðsla þar
sem lagsifrumvarpi er synjað sé
bindandi."
Stjórnarandstæðing-
ar hafna hvers kyns
skUyrðum á gUdi
þjóðaratkvæða-
greiðslunnar og
segir Össur
Skarphéðins-
son formaður
Samfylkingar-
innar að einfald-
ur meirihluti eigi
að gUda. „Ég hef
ekki hugmynd um
hvaða fyrirmæli
stjórnarherrarnir
hafa geflð hinni
handvöldu
lög-
Skilyrði og skerðingar Ekki bara lágmarksþátttaka og aukinn meirihluti, heldurjafnvel að
þjóðaratkvæðagreiðslan verði eingöngu leiöbeinandi.
fræðinganefnd, en annað en ein-
faldur meirihluti gengur gegn
stjórnarskránni."
Skilyrði opna fyrir túlkunum
Jónatan segir að ef tUtekinnar
lágmarks þátttöku verður krafist
gæti farið svo að engin úrslit fáist.
„Ég læt að sinni liggja milli hluta
hvort slíkt þátttökuskUyrði fái staðist
samkvæmt stjórnarskrá, en ef fara
ættí þessa leið koma upp nokkrir
kostir í stöðunni sem hætt er við að
miklar deUur geti orðið um og að l£k-
indum dómsmái. í fyrsta lagi getur
ríkisstjórnin litið svo á, að lögin
haldi gUdi sínu. f öðru lagi kynnu
aðrir að halda því ffarn að lögin séu
úr gildi fallin. í þriðja lagi kann að
mega h'ta svo á, að endurtaka þurfi
atkvæðagreiðsluna," segir Jónatan.
Svanur Kristjánsson stjórn-
málafræðingur segir að einfaldur
meirihluti hljóta að verða niður-
staða lögfræðinganefndarinnar.
„Það er ekki tekið ffam í stjóm-
arskránni að þjóðaratkvæða-
greiðslan eigi að fara fram með
öðmm hætti en eins og í öðr-
um kosningum, þar sem engin
ákvæði em um lágmarksþátttöku
eða aukinn meirihluta. Við höfum
haldið þjóðaratkvæðagreiðslur áður
og þær höfðu ekki slflc skUyrði í för
með sér, nema 1944, vegna sam-
bandslagaákvæðis frá 1918. Ég efast
því að það standist lögfræðUega að
gera breytingar á þessu og skU ekki
hvernig hægt er að komast að
annarri niðurstöðu."
Formaðurinn vanhæfur?
Stjómarandstæðingar telja lög-
fræðingana sérvalda tU að komast
að niðurstöðu sem stjórnarhermn-
um er þóknanleg. Gagnrýnt er að
Karl Axelsson sé valinn til að leiða
hópinn, því hann sé jafnvel vanhæf-
ur þar sem hann sat í fjölmiðla-
nefndinni svoköUuðu og kom að
samningu fjölmiðlafrumvarpsins.
„Ég hefði ekki tekið sæti í starfs-
hópnum ef ég teldi svo vera,“ segir
Karl spurður að því hvort hann teldi
vanhæfissjónarmið til álita vegna
fýrri aðkomu sinnar að fjölmiðlalög-
unum.
fridrik@dv.is
Vanhæfur? Karl
Axelsson, formað-
ur lögfræðinga-
hópsins,, var i fjöl-
miðlanefndinni.
Jónatan Þór-
mundsson Skil-
yrði opna fyrir
miklar deilur.
Ragnhildur
Helgadóttir
Bindandi sam-
kvæmt stjórnar-
skrá.
Svanur Krist-
jánsson Einfaldur
meirihluti eina
niðurstaðan.
k
★
★
★
★
★
★
Rafmagnsgítar
magnari poki, ól- snúra -stillir
og auka
Söngkerfi Trommusett frá
frá 59.900,- 49.900,- stgr.
Gítarinn ehf.
Stórhöfða 27, sími 552-2125
www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is
Klassískir gítarar
frá 9.900,- stgr.
ir
★
k
k
★
★
★
★